Skessuhorn - 06.10.2021, Síða 13
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 2021 13
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hefur boðað að inn-
lausnamarkaður fyrir greiðslu-
mark sauðfjár verði haldinn í
byrjun nóvember. innlausnarverð
er núvirt andvirði beingreiðslna
næstu tveggja ára, eða kr. 13.396
á ærgildið. Það greiðslumark sem
er innleyst er jafnframt boðið til
sölu á innlausnarverði.
Sauðfjárbændur sem eiga 100
kindur eða fleiri og hafa ásetn-
ingshlutfallið 1,0 eða hærra eiga
forgang að öllu greiðslumarki
sem í boði er á markaðnum, þar
af 60% til þeirra sem eiga 200
ær eða fleiri og hafa ásetnings-
hlutfallið 1,6 eða hærra. Skipt-
ist það hlutfallslega á milli þeirra
sem hljóta forgang í samræmi við
það magn sem þeir óskuðu eft-
ir að kaupa. Hver framleiðandi
getur ekki óskað eftir ærgildum
umfram þau sem tryggja honum
óskertar beingreiðslur í samræmi
við fjölda fjár og ásetningshlut-
fall. Það greiðslumark sem ekki er
úthlutað til þeirra sem eru í for-
gangshópi verður boðið öðrum
umsækjendum.
með beiðni um innlausn á
greiðslumarki skal fylgja veðbók-
arvottorð, staðfesting á eignar-
haldi lögbýlis og samþykki ábú-
anda, sameigenda og veðhafa lög-
býlisins. Kaupandi greiðslumarks
nýtir það frá og með 1. janúar
2022. opnað hefur verið fyrir til-
boð fyrir kaup og sölu greiðslu-
marks og skal þeim skilað rafrænt
í gegnum afurd.is. tilboðsfrestur
er til og með 1. nóvember næst-
komandi.
arg
Fjórtán manna hópur bænda og
búaliðs úr Borgarfirði hélt áleið-
is í seinni leit á arnarvatnsheiði á
mánudagsmorgunn í síðustu viku.
allir komust í skála við Álftakrók
fyrir myrkur en lítið var hægt að
smala þann dag vegna veðurs. Dag-
inn eftir, á þriðjudegi, var svo norð-
an stórhríð á fjallinu og fór mann-
skapurinn ekki úr húsi, enda sáust
ekki handa skil. Á miðvikudags-
morgun þegar veðrið gekk niður
var mikill og blautur snjór um alla
heiðina. magnús eggertsson bóndi
í Ásgarði fór á miðvikudagsmorg-
unn á vel búinni dráttarvél og ruddi
vegslóðann frá Kalmanstungu að
Álftakróki en þá var heiðin með öllu
ófær. Var ekki smalað meira í þess-
ari leit og hélt mannskapurinn með
hross sín og hunda til byggða eftir
hádegið. Þá var vel búinn björgun-
arsveitarbíll frá oki sendur í skál-
ann sem sótti búnað leitarfólks og
flutti til byggða.
mm
Leitarmenn urðu frá að hverfa eftir
tveggja daga dvöl á fjallinu
Magnús Eggertsson ryður hér vegslóðann að Álftakróksskála um hádegi á
miðvikudaginn til að leitarmenn gætu haldið heim á leið á hrossum sínum.
Ljósm. jm
Innlausnamarkaður fyrir
greiðslumark sauðfjár
Veður batnaði þegar leið á miðvikudag. Hér er Þorsteinn Bjarki Pétursson kominn á öflugum bíl Björgunarsveitarinnar Oks til
að sækja búnað leitarfólks. Ljósm. þbk