Skessuhorn - 06.10.2021, Síða 20
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 202120
Helga margrét Friðriksdóttir hefur
verið ráðin nýr framkvæmdastjóri
Landnámsseturs Íslands í Borgar-
nesi. Hún tekur við af Áslaugu Þor-
valdsdóttur sem hóf fyrst störf hjá
Landnámssetrinu vorið 2009, fyrst
í uppvaskinu og núna síðast sem
framkvæmdastjóri. Nú tekur Helga
margrét við keflinu og er gífurlega
spennt fyrir nýja hlutverkinu. „Það
er búið að ganga ótrúlega vel og
það er eiginlega búið að vera brjál-
að að gera síðan ég byrjaði,“ segir
Helga margrét um nýju vinnuna.
„Ég finn að það er samt aðeins far-
ið að róast núna þegar það er kom-
inn október.“
Nýr vettvangur
Helga margrét hóf störf hjá Land-
námssetri Íslands í september
síðastliðnum. Þar áður var hún
mannauðsstjóri hjá Gæðabakstri
en þar liggur hennar bakgrunn-
ur, í mannauðsmálum. „Þetta er
frekar nýtt fyrir mér. Ég hef ver-
ið mikið í mannauðsmálum síðast-
liðin ár svo þetta er nýr vettvangur
með tilheyrandi áskorunum sem er
ógeðslega spennandi,“ segir Helga
margrét full tilhlökkunar. „Núna
kem ég meira beint að rekstrin-
um en þegar ég var í mannauðs-
málunum, þar sem maður er meira
í stjórnendaráðgjöf, svo þetta er
aðeins önnur nálgun. Þá eru inn-
kaup og fjármálin ný áskorun en
ég fæ enn að hafa puttana í mann-
auðshlutanum áfram, sem er mjög
gott,“ bætir hún við létt í lund. „Ég
sagði hins vegar við Sirrý og Kjart-
an þegar þau réðu mig að minn
listræni bakgrunnur hvað sýningar
varðar væri nú ekki svo mikill svo
þau þyrftu aðeins að þjálfa mig upp
í því. Þau eru náttúrlega sérfræð-
ingar á því svið og ég gæti ekki ver-
ið heppnari með mentora í þeirri
deild.“
Landnámssetur Íslands
er þekkt stærð
„Ég áttaði mig ekki á hversu þekkt
og stórt Landnámssetur Íslands
í rauninni væri fyrr en ég byrj-
aði að vinna hérna. maður getur
hálfskammast sín í rauninni fyr-
ir að segja það,“ segir Helga mar-
grét og hristir hausinn yfir sjálfri
sér. „Áður en ég byrjaði að vinna
í september var ég að reyna finna
hugmyndir hvernig við gætum
auglýst setrið, hvernig við gæt-
um komið því betur á kortið. Það
í raun þarf ekkert að auglýsa það,
það er brjálað að gera hérna,“ segir
hún og hlær. „Það er ótrúlega stór
fasta kúnna basi hérna, heimafólk,
sem sækir í þjónustu okkar eins og
til dæmis hádegishlaðborðið sem
við bjóðum upp á alla daga. ofan
á það erum við í góðum samskipt-
um við ferðaskrifstofur sem hafa
það að föstum lið í sínum ferð-
um að koma við í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi. Þá er mikið farið
á sýningarnar og einnig í hádegis-
eða kvöldmat,“ bætir hún við.
Sníða sér stakk
eftir vexti
Starfsmannastaðan í Landnáms-
setrinu er góð núna þegar sumarið
er að klárast en það gekk erfiðlega
um tíma í vor að fá fólk í vinnu
og var ástæðan fyrst og fremst
óvissa inn í sumartímann vegna
faraldursins. „eins og staðan er
núna, þá erum við vel sett,“ seg-
ir Helga margrét ánægð um stöð-
una. „Fólk var að keyra inn í sum-
arið af rosalegri óvissu, við vissum
ekkert í hvað stefndi þannig að það
var pínulítið verið að halda að sér
höndunum í ráðningum og passa
að ráða ekki of mikið fyrir sumarið
sem yrði kannski ekki neitt úr. en
svo rættist úr þessu sumri, bless-
unarlega. aðalatriðið var að sníða
sér stakk eftir vexti og sinna þess-
um kjarna rekstri. Við ætlum svo
sannarlega að halda sjó í því,“ bæt-
ir Helga margrét við að lokum.
glh
Landnámssetur Íslands í Borgarnesi.
Helga Margrét ráðin framkvæmdastjóri
Landnámsseturs Íslands
Helga Margrét Friðriksdóttir er nýr framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands.