Skessuhorn - 06.10.2021, Qupperneq 21
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 2021 21
Sögu sveitaþorpsins Varmalands/
Laugalands í Borgarfirði er gerð
skil í bókinni Við Veggjalaug sem
Helgi Bjarnason blaðamaður frá
Laugalandi skrifar og gefur sjálfur
út. um bókina, sem er í kiljuformi,
segir Helgi:
„Byggðin myndaðist þar vegna
hversins Veggjalaugar og hef-
ur þróast á 80 árum. Í bókinni er
rakin saga húsmæðraskólans og
barnaskólans, garðyrkjustöðvar-
innar, sundlauganna, félagsheim-
ilisins, íþróttavallarins, hótelsins,
björgunarsveitarinnar Heiðars
og annarrar starfsemi á staðnum.
Sagt er frá gamla húsmannsbýl-
inu Laugalandi og ábúendum þess
sem og örnefnum í dalverpinu. Þá
eru birtir listar yfir starfsfólk skól-
anna.“
Bókin kostar 4.800 krónur og
fæst einungis hjá höfundi. „Hægt
er að panta hana með orðsendingu í
skilaboðum á messenger á Facebo-
ok eða á netfangið helgibjarna@
gmail.com eða þá í síma 669 1310.
Greiðslu má leggja inn á reikning
537-14-6215, kt. 140753-7699.“
mm
myndlistarsýning Jóhönnu L. Jóns-
dóttur var opnuð í Hallsteinssal í
Safnahúsi Borgarbyggðar laugar-
daginn 2. október. Sýningin stend-
ur til 4. nóvember og er opin alla
virka daga frá klukkan 13-16.
myndirnar sem Jóhanna sýnir
eru fantasíur sem fæðst hafa í huga
hennar þegar hún starir á auð-
an strigann og umbreytir honum.
Í verkum hennar er að finna inn-
blástur frá árstíðabundnum litum
og birtu í íslenskri náttúru. allir
velkomnir en gestir eru beðnir um
að virða gildandi sóttvarnareglur.
vaks
Bíóhöllin á akranesi hefur að und-
anförnu verið að undirbúa endur-
komu sína inn á afþreyingarmark-
aðinn eftir að Kórónuveirufarald-
urinn lamaði alla slíka starfsemi
fyrir um 18 mánuðum síðan.
Ísólfur Haraldsson rekstrar-
aðili Bíóhallarinnar sagði í sam-
tali við Skessuhorn að til að byrja
með verði reynt að hafa sýningar
á sunnudögum. Svokallaðir bíó-
sunnudagar með barnamyndum að
deginum til og myndir fyrir þá eldri
um kvöldið, síðan verði hugsanlega
bætt ofan á það. Þessar sýningar
hafa verið að undanförnu og verður
séð til með framhaldið, þegar þessi
markaður fer enn frekar af stað. Á
meðan á faraldrinum stóð var þó
nokkur fjöldi kvikmynda settar í
streymisveitur eins og hjá á Dis-
ney+ veitunni þar sem ekkert ann-
að var í boði. Voru þetta kvikmynd-
ir eins og mulan og tom Hanks
kvikmyndin Greyhound en báðar
þessar kvikmyndir hefðu örugglega
fengið góða aðsókn í kvikmynda-
húsum ef það hefði verið í boði að
sýna þær þar.
Nú í október verður nýjasta Jam-
es Bond myndin „No time to
Die“ sýnd í Bíóhöllinni og verður
hún frumsýnd 8. október, sama dag
og almennar sýningar hefjast á Ís-
landi. Þá verður ari eldjárn með
uppistand í Bíóhöllinni fimmtu-
daginn 28 október nk. Byrjar hann
á akranesi á ferð sinni um land-
ið og er þetta í fyrsta sinn í tvö ár
sem hann er með uppistandsýning-
ar. Þá sagði Ísólfur að líkur væru
á því að Bíóhöllin verði með við-
burði í tengslum við Vökudaga og
Heimaskaga verkefnið á akranesi.
Í jólamánuðinum verða Þorláks-
messutónleikar Bubba og jafnvel
enn frekara tónleikahald. Það er
því góður hugur í Ísólfi og félögum
að koma starfsemi Bíóhallarinnar í
fyrra horf.
se
Hæfileikinn til að segja sögur, býr
í okkur öllum. Sum okkar láta sér
nægja að segja sögur á kaffistof-
unni í vinnunni, eða í fjölskyldu-
boðum, en svo eru þau sem taka
sagnalistina skrefinu lengra. Það
eru t.d. kennarar, leiðsögumenn
og fólk sem vinnur með fólki, sem
nýtir sagnalist í sínum störfum.
Svo eru þau sem gera sagnalistina
að sínu meginstarfi og koma fram
og segja sögur við ýmis tækifæri,
víða um heim.
einn slíkur er norski sagna-
þulurinn torgrim mellum Stene,
sem kennir á sagnanámskeiði
sem haldið verður í Grundarfirði
helgina 15. – 17. október næst-
komandi. Þar verður unnið með
alla þá fjölmörgu þætti sem flétt-
ast saman í sagnalistinni, svo sem
huga, minni, líkama, tilfinning-
ar og innsæi. efniviðinn sækjum
við m.a. í eigin sögur, fjölskyldu-
sögur og náttúrulegt umhverfi.
Útkoman er svo þeir töfrar sem
verða þegar góð saga er sögð –
bæði fyrir þau sem segja og þau
sem hlusta.
Námskeiðið kallast „Stories of
Remembering“ og hentar jafnt
þeim sem hafa fengist við að segja
sögur og þeim sem eru að stíga
fyrstu skrefin. torgrim kennir á
ensku, en þátttakendur geta unnið
á íslensku hver með öðrum.
Sunnudaginn 17. október, kl.
16, verður svo slegið upp sögu-
stund, „Sögur sem lifna“. Þar
koma nokkrir íslenskir sagnaþul-
ir fram ásamt torgrim og þátttak-
endum af námskeiðinu.
Námskeiðið og sögustundin eru
haldin af Sögustofunni í Grund-
arfirði í samstarfi við Sagnaseið
á Snæfellsnesi og Svæðisgarðinn
Snæfellsnes. Hvoru tveggja er
styrkt af uppbyggingarsjóði Vest-
urlands.
Námskeiðið fer fram á Læk, að
Sæbóli 13, í Grundarfirði. Nán-
ari upplýsingar veitir Sigurborg
Kr. Hannesdóttir, sigurborg@ildi.
is, sími 866 5527. Vert er að geta
þess að verðið lækkar, ef þátttaka
er skráð fyrir lok dags 8. október.
-fréttatilkynning
Safnahúsið. Ljósm. Borgarbyggð
Fantasíur - Sýningar-
opnun í Safnahúsinu
Bókin
Við veggjalaug segir
sögu Varmalands í
Borgarfirði
Ísólfur Haraldsson rekstraraðili Bíóhallarinnar. Ljósm. úr safni/glh
James Bond og Ari Eldjárn
væntanlegir í Bíóhöllina í október
Torgrim Mellum Stene.
Sagnanámskeið og sögustund
í Grundarfirði