Skessuhorn - 06.10.2021, Page 22
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 202122
„Ég hef horft á þættina top Gear
í örugglega tuttugu ár og lengi
haldið því fram að þeir sem sjá um
þá þætti séu í bestu vinnu í heimi.
Ég áttaði mig á að ég yrði aldrei
ráðinn í svona vinnu nema ég
myndi búa hana til sjálfur,“ segir
James einar Becker sem nú hef-
ur farið af stað með þættina tork
Gaur. Í þáttunum reynsluekur
James nýjum bílum og tekur það
upp um leið og hann segir áhorf-
endum frá bílunum og hvernig
hann upplifir þá. um er að ræða
stutta þætti sem hver er um þrjár
til fjórar mínútur að lengd. Þætt-
ina vinnur James meðal annars í
samstarfi við BL bílaumboðið,
Víkurvagna og Kormák og Skjöld.
„Ég er sjálfur að vinna sem mark-
aðsstjóri við Háskólann á Bifröst
og þar bý ég til markaðsefni. Ég
er mikið að búa til myndbönd og
auglýsingar og fannst ég alveg
fullfær um að framleiða svona efni
sjálfur. Þarna var ég líka að sam-
eina tvö helstu áhugamálin mín
sem eru kvikmyndagerð og bílar,“
segir James.
Samvinna við BL
James hafði áður gert trailer að
þáttunum fyrir hugmyndadaga hjá
RÚV en var hafnað. „Ég gafst alls
ekki upp við það, enda sá ég ekki
fyrir mér að framleiða svona þætti
fyrir línulega dagskrá. Ég ákvað að
taka málin bara í eigin hendur en
vantaði þá aðgang að bílum,“ segir
hann. „mér datt þá í hug að selja
bílaumboði þessa hugmynd. Bíla-
umboðin eru líka oftast bara með
auglýsingar frá framleiðendum
sem eru þá ekki gerðar á Íslandi.
Það er erfitt að finna auglýsingar
af bílum við íslenskar aðstæður,“
heldur James áfram. Hann ákvað
að hafa samband við BL bílaum-
boðið því það umboð hefur flest-
ar gerðir bíla. „Þau eru með níu
merki og ég sá fram á að fá ansi
góða flóru af bílum hvað varðar
stærð, gerð og tegund. Ég náði að
selja markaðsstjóra BL þessa hug-
mynd og fékk um hálft ár til að
vinna þetta efni,“ segir hann.
Gerir mest sjálfur
aðspurður segist James að mestu
vinna þættina einn en hann fær
stundum aðstoð þegar hann þarf
bæði að láta keyra bíl og taka upp.
„Þá hef ég fengið einhvern til að
keyra fyrir mig, mest konuna mína
en líka systur mína og manninn
hennar. en ég geri handritin sjálfur,
tek upp og klippi. Ég hef svo fengið
smá aðstoð við markaðssetningu, þá
við að finna markhópa á samfélags-
miðlum,“ segir James. „Þetta er
svona 85% ég sjálfur,“ bætir hann
við og hlær. en hversu langan tíma
hefur hann fyrir hvern bíl? „Það er
misjafnt hvað ég hef fengið að hafa
bílana lengi. Það fer mikið eftir því
hver hugmyndin er og hvert ég má
fara með bílinn. Ég fékk í eitt skipti
veglegan BmW sem ég sótti í lok
dags og þurfti að skila aftur í hádeg-
inu daginn eftir. Það var smá pressa.
en oft hef ég fengið bílana um
miðjan dag á laugardegi og fengið
að hafa þá fram á mánudagsmorg-
unn,“ svarar James og bætir við að
þetta sé í raun bara helgarhobbí hjá
honum.
Tengja bílana
við raunveruleikann
Í einum þættinum sýnir James frá
isuzu pallbíl en þá nýtti hann tæki-
færið og notaði bílinn til að flytja
hestana sína milli landshluta. „Ég
er með tvo hesta sem ég var með
í hagagöngu í Reykholtsdal en ég
þurfti að koma þeim yfir á suður-
landið. en ég átti ekki bíl né kerru
til að gera það. Ég fékk þá þennan
isuzu pallbíl til að sýna besta bíl-
inn til að draga hestakerru. Kerruna
fékk ég svo að láni frá Víkurvögnum
og sýndi þá kerruna líka í þættinum.
Þetta er að mínu mati besti þáttur-
inn því í honum eru hestar, pallbíll
og hestakerra, hvað viltu meira?“
segir hann og hlær. „Svo keyrði ég
líka yfir uxahryggi með hestana en
það er myndræn og falleg leið,“ seg-
ir James og bætir við að hann reyni
eins og hægt er að tengja bílana við
raunveruleg verkefni til að sýna
bílana enn betur og hvað þeir geta.
Lét drauminn um bestu vinnu í heimi rætast
James Einar Becker
með Land Rover Disco-
very Sport í bakgrunni.
Ljósm. Lara Becker
Izusu með hestakerru í Norðurárdal. Ljósm. James Einar Becker
Þennan BMW X5 fór James með á Húsafell til að taka upp þátt. Ljósm. James Einar Becker