Skessuhorn - 06.10.2021, Blaðsíða 23
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 2021 23
Þetta logo hannaði Lara, kona James,
fyrir þættina hans, Tork Gaur.
Brattabrekka falleg
James er búsettur á Bifröst og seg-
ist mikið hafa notast við umhverf-
ið í Borgarfirði við upptökur á
þáttunum. „Ég hef farið á Húsa-
fell, Reykholtsdal og líka verið hér
við Hreðavatn. en ég hef líka mik-
ið notað Bröttubrekku, þar er eitt
fallegasta útsýni af öllum heiðum
á landinu og það er rosalega gam-
an að keyra kraftmikla bíla upp
Bröttubrekku. Svo er ekki mik-
il umferð þar og ég þekki brekk-
una eins og lófann á mér,“ seg-
ir James. „Það er líka fínt að keyra
á bílunum hingað vestur og kynn-
ast þeim aðeins áður en ég byrja
að taka upp. Á leiðinni reyni ég að
finna eitthvað til að segja frá. Þó ég
sé vissulega í samstarfi og reyni að
finna björtu hliðarnar við bílana er
ég alltaf hreinskilinn,“ segir hann.
Þættirnir eru ellefu talsins og birt-
ast einn í einu næstu fimmtudaga
á öllum helstu samfélagsmiðlum
eins og; Youtube, Facebook, twit-
ter, Linkedin og instagram undir
nafninu tork Gaur. „Ég nota þetta
verkefni líka svolítið til að læra inn
á alla þessa samfélagsmiðla, hvað er
að virka hvar og slíkt. miðlarnir eru
allir ólíkir og maður er svona alveg
að detta í miðaldra svo það fer bara
hver að verða síðastur að læra á og
skilja alla þessa miðla,“ segir James
og hlær. Fyrsti þátturinn birtist síð-
astliðinn fimmtudag þar sem James
sýnir frá glæsilegum Hyundai.
Ekki allir sem fá
þetta tækifæri
en er þetta í raun og veru besta
vinna í heimi eins og James hélt?
„Þetta er rosalega gaman, ég verð
að segja það. Svo er þetta góð af-
sökun til að keyra nýja bíla á viku
fresti. Það er ekki hver sem er svo
heppinn að fá að prófa alla þessa
glæsilegu bíla yfir heila helgi,“ svar-
ar hann. aðspurður segir James alls
níu bíla vera sýnda í þáttunum en
auk þess er hann með þætti sem
sýna aðeins bak við tjöldin. Hann
heimsækir til dæmis BmW vottað
verkstæði þar sem hann talar við
einstaklinga í bílabransanum. „Ég
ræði þar við bifvélavirkja um orku-
skipti og hvernig þau hafa breytt
starfinu á verkstæðunum. menn
eru ekkert lengur á kafi í olíu upp
að öxlum. Þetta er allt annar raun-
veruleiki í dag. Þarna fara til dæm-
is bifvélavirkjar út á námskeið hjá
framleiðendum BmW til að læra
um nýjar vélar og hvernig þær
virka. Þeir þurfa svo að ná próf-
um til að fá að vinna í þessum nýju
bílum sem eru í ábyrgð. Ég sýni
svona aðeins hvað það er sem fólk
er að fá þegar það fer á BmW vott-
uð verkstæði með bílana sína. Ég
reyni samt að vera ekki of nörda-
legur þegar ég er að segja frá og tala
á mannamáli. Svo reyni ég líka að
segja frá fleiru en bara túrbínum og
öðru sem dellufólk hefur áhuga á.
Ég reyni að miða að því að fólk fái
umfjallanir um þá hluti sem það vill
vita, eins og öryggismál og svoleið-
is,“ segir James.
Vill gera fleiri þætti
aðspurður segist hann vonast til að
eiga eftir að gera enn fleiri þætti.
„Það er líka svo gaman að búa svona
á landsbyggðinni og fá að sýna að-
eins frá þessu fallega umhverfi hér.
Ég á enn eftir að taka upp á svo
mörgum stöðum og gæti til dæmis
tekið upp heila seríu á Snæfellsnesi.
Það er líka svo gaman að síðan ég
byrjaði á þessu er ég farin að horfa
á umhverfið öðrum augum og spá
mikið í því hvernig svæðin kæmu
út á myndbandi,“ segir hann. en
myndi hann þá halda áfram að vinna
með BL? „Það hefur reynst mér vel
og ég væri mikið til í að vinna með
þeim áfram. en það væri líka gam-
an að komast í samstarf við einkaað-
ila sem eru að flytja inn svona ofur
spes bíla, sportbíla eða ofurfjalla-
jeppa. en við sjáum til með það,“
svarar hann. „Ég verð líka bara að
þakka konunni minni og fjölskyldu
fyrir að sýna mér skilning og skapa
tækifæri fyrir mig til að sinna þessu
áhugamáli. Það er ekkert sjálfgefið
að geta vesenast í svona helgarhob-
bíi og þá er sannarlega gott að eiga
góða að,“ segir James einar Becker
að endingu. arg/ Ljósm. aðsendar
James með myndavélina við tökur á Land Rover Defender. Ljósm. Lara Becker
Land Rover í skógi í Norðurárdal. Ljósm. James Einar Becker
James er hér við Selvatn að taka upp efni um þennan fína Izusu pallbíl. Ljósm. James Einar Becker