Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2021, Qupperneq 30

Skessuhorn - 06.10.2021, Qupperneq 30
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 202130 Hver er helsti kostur Borgarness? Spurning vikunnar (Spurt í Borgarnesi) Jón Kristinn Jakobsson „Gott að vera með börn hérna.“ Fannar Kristjánsson „Besta bakaríið á landinu er í Borgarnesi.“ Birgir Andrésson „Langbesta bakaríið á landinu.“ Sigrún Halla Gísladóttir „Útsýnið.“ Hafrún Sigurðardóttir „umhverfið og fólkið.“ Íslandsmeistaramótið #3 í klifri fór fram helgina 25. og 26. september hjá Klifurfélagi Reykjavíkur í Klif- urhúsinu. Fjölmennur hópur frá Klifurfélagi Ía tók þátt í mótinu en um var að ræða keppendur sem tóku þátt í B- og C flokki. Frá þessu segir á fésbókarsíðu klifurfélagsins en B flokkur félagsins hóf keppni á laugardeginum og voru leiðir mótsins í erfiðari kantinum og því var lítið um toppa. Í kvennaflokki var einungis ein leið toppuð og því réðu tilraunir í bónusa úrslitum og þar náði Sylvía Þórðardóttir bronsi fyrir Ía. Í karlaflokki var elís Gísla- son frá KfR í sérflokki og toppaði allar leiðir en baráttan um annað og þriðja sætið var mjög hörð. Þar fór svo að Sverrir elí Guðnason frá Ía bjargaði deginum með frá- bærum toppi í síðustu leið og land- aði bronsverðlaunum með tveimur toppum í farteskinu. Á sunnudeginum fór síðan fram seinni hluti mótsins, um morgun- inn klifruðu yngri flokkar og eftir hádegið fór C flokkur af stað. Þar landaði Þórkatla Þyrí Sturludóttir gulli fyrir Ía með frábæru klifri þar sem hún toppaði sjö af átta leiðum mótsins. Glæsilegur C flokkur hjá Klifurfélagi Ía sem á eflaust eftir að gera góða hluti á næstu misser- um. Fram undan hjá Klifurfélagi Ía á Smiðjuloftinu er Íslandsmeistara- mótið í línuklifri og Hrekkjavök- umót Ía í lok október og svo Jóla- mót Ía í desember. Þá má einnig geta þess að stofn- þing Klifursambands Íslands var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laug- ardal 27. september síðastliðinn. með stofnun þessa nýja sérsam- bands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 34 talsins en manuela magnúsdóttir var kjörin fyrsti formaður Klifur- sambandsins. . Klifurfélag akraness er aðili að þessu nýja sérsambandi og á fulltrúa í varastjórn en það er arnór már Guðmundsson. vaks Skagastrákarnir Helgi arnar Jóns- son og alexander Örn Kárason stóðu sig vel á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyfting- um í Svíþjóð í síðustu viku. Helgi keppti í -83 kg flokki og bætti hann sig í öllum greinum. Hann setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju þeg- ar hann lyfti 235 kg og í réttstöðu- lyftu þegar hann náði 270 kg upp. Í bekkpressu lyfti hann 132,5 kg. Samtals lyfti Helgi því 637,5 kg sem er persónuleg bæting um 29,5 kg. Dugði það honum til að ná 10. sæti á mótinu. alexander keppt í -93 kg flokki. Hann sett nýtt Íslandsmet í tveim- ur flokkum og Íslandsmet ung- linga í samanlagðri þyngd. Í hné- beygju setti hann Íslandsmet í opn- um flokki þegar hann lyfti 257,5 kg. Þá setti hann Íslandsmet unglinga í bekkpressu þegar hann lyft i 190 kg og dugði það honum til að ná silfr- inu í þeirri grein. Í réttstöðu tók hann upp 262,5 kg. Samanlagt lyfti alexander því 710 kg sem er pers- ónuleg bæting og nýtt Íslandsmet í flokki unglinga. Hafnaði alexander í 12 sæti í sínum flokki. arg/ Ljósm. Kraftlyftingasamband Íslands Helgi Arnar Jónsson bætti sig um 29,5 kg á HM unglinga í klassískum kraftlyftingum í Svíþjóð. Kröftugir Skagastrákar Alexander Örn Kárason nældi í silfrið í bekkpressu í -93 kg flokki. Klifurfélag ÍA stóð sig vel á Íslandsmeistaramótinu Sverrir Elí Guðnason fékk brons í B flokki. Sylvía Þórðardóttir á verðlaunapalli. Ljósm. Klifurfélag ÍA Þórkatla Þyrí Sturludóttir vann gull í C flokki. Stund milli stríða hjá krökkunum. Kvennalið Snæfells byrjaði vel í 1. deild kvenna í körfubolta þennan vet- urinn þegar þær lögðu KR að velli í Vesturbænum síðasta laugardag með minnsta mögulega mun, 73:74. Jafn- ræði var nánast allan fyrsta leikhlut- ann í leiknum en KR leiddi við flaut- una með fjögur stig, 21:17. Í öðrum leikhluta var nánast sama upp á ten- ingnum, jafnt á öllum tölum og KR með þriggja stiga forskot í hálfleik, 40:37. Baráttan hélt áfram fram og til baka í þriðja leikhluta en undir lok hans komst Snæfell yfir og var með fjögurra stiga forskot, 53:56. Spenn- an var enn til staðar í þeim fjórða en um miðjan leikhlutann náði Snæfell sex stiga forystu og lokamínúturn- ar voru æsispennandi. KR-ingurinn Hulda ósk Bergsteinsdóttir minnk- aði muninn í aðeins eitt stig með tveimur vítaskotum þegar rúmar fjörutíu sekúndur voru eftir á klukk- unni en þær misstu síðan boltann tvívegis á lokamínútunni á meðan Snæfell klikkaði á fjórum vítaskotum undir lok leiksins. Lokatölur 73:74 og frábær byrjun hjá Snæfelli í fyrsta leik vetrarins. Stigahæstar í liði Snæfells voru þær Sianni martin sem var með 23 stig, Vaka Þorsteinsdóttir og Pres- lava Koleva voru með 12 stig hvor og Rebekka Rán Karlsdóttir var með 10 stig. Í liði KR með Borgnesinginn Hörð unnsteinsson sem þjálfara var fyrrnefnd Hulda ósk langstigahæst með 30 stig og Fanney Ragnarsdótt- ir var með 11 stig. Næsti leikur Snæ- fells er gegn liði Þórs frá akureyri og verður fyrir norðan fimmtudag- inn 7. október og hefst klukkan 18 vaks/ Ljósm. karfan.is Snæfellsstúlkur sigruðu KR í fyrsta leik

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.