Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2021, Side 31

Skessuhorn - 06.10.2021, Side 31
miðViKuDaGuR 6. oKtóBeR 2021 31 Kristín Þórhallsdóttir gerði sér lít- ið fyrir og nældi í bronsverðlaun á Hm í klassískum kraftlyftingum í Halmstad um síðustu helgi. Krist- ín, sem æfir með Kraftlyftinga- félagi akraness, var að keppa á sínu fyrsta alþjóðlega móti og er óhætt að segja að hún hafi heldur betur sýnt að þar eigi hún heima. Hún lyfti 217,5 kg í hnébeygju og setti þar með nýtt Íslandsmet og jafnaði evrópumetið, sem hafði verið sett einni mínútu áður en sú sem lyfti fyrst fær metið skráð á sitt nafn en því miður ekki Kristín. Í bekk- pressu lyfti Kristín 112,5 kg sem er nýtt Íslandsmet og í réttstöðu- lyftu tók hún 222,5 kg sem einnig er nýtt Íslandsmet. Glæsilegur ár- angur hjá Kristínu og persónuleg bæting um 12,5 kg. arg Glæsilegur árangur hjá Kristínu á HM í klassískum kraftlyftingum Sundmaðurinn einar margeir Ágústsson, sem er 16 ára, bætti akranesmetið í piltaflokki (15-17 ára) í 50 metra skriðsundi í 25 metra laug á arena móti Ægis um helgina. Gamla metið sem Ágúst Júlíusson setti árið 2006, var því orðið tæplega 15 ára gamalt. einar margeir synti 50 metrana á 25 sek- úndum sléttum og bætti met Ágústs um 14 sekúndubrot. alls sendi Ía 16 keppendur (13 ára og eldri) á arena mótið sem fram fór í Laugardalslaug og fengu keppendur Ía alls 11 gull, 14 silf- ur og 6 brons á mótinu. Þá tóku tíu sundmenn tólf ára og yngri þátt í Speedo mótinu í Keflavík. Var þetta fyrsta mótið hjá þessum ald- ursflokki í haust og stóðu þau sig mjög vel og bættu sig bæði í tækni og hraða. vaks Ljósm. Sundfélag Akraness Þær voru ansi margar undirskrift- irnar sem voru skrifaðar niður sunnudaginn 3. október síðastlið- inn þegar Víkingur ólafsvík gerði samning við 6 unga og upprenn- andi knattspyrnumenn sem eru að ganga upp úr yngri flokkum félags- ins. Þetta er fyrsti samningur þess- ara leikmanna sem allir eru á sext- ánda aldursári. Þeir munu nú hefja æfingar með meistaraflokki Vík- ings undir dyggri leiðsögn Guðjóns Þórðarsonar og Brynjars Krist- mundssonar. Það verður gaman að fylgjast með þessum framtíðarleik- mönnum næstu árin. tfk Skallagrímur byrjaði veturinn í fyrstu deild karla í körfuknattleik með tveimur leikjum og var sá fyrri þarsíðasta mánudagskvöld þegar liðið mætti Álftanesi syðra. mikið jafnræði var með liðunum í byrj- un leiks en eftir fimm mínútna leik tóku heimamenn við sér og komust í 17:10. Sá munur hélst nokkurn veginn fram að lokum fyrsta leik- hluta en þó náðu Skallagrímsmenn að minnka muninn í 24:18. ann- ar leikhluti var á svipuðum nótum framan af en svo bætti Álftanes við forystuna jafnt og þétt og staðan í leikhléi var 50:34. Lítið gekk hjá Skallagrími að þétta raðirnar í þriðja leikhluta og Álftnesingar juku muninn jafnt og þétt og komust í 66:44 um miðjan leikhlutann og voru komnir með 28 stiga forskot í lok leikhlutans, 77:49. Í síðasta leikhlutanum bættu heimamenn enn betur í og unnu verðskuldaðan stórsigur, 101:67. Stigahæstir í liði Álftnesinga voru þeir Friðrik anton Jónsson með 22 stig og isiah Coddon með 19 stig. Hjá Skallagrími voru þeir eli- jah Bailey með 22 stig, almar Örn Björnsson með 16 stig og ólafur Þorri Sigurjónsson með 9 stig. Skallagrímur lék síðan sinn fyrsta heimaleik í vetur á föstudagskvöld- ið, þegar liðið mætti Fjölni úr Graf- arvogi. mikið jafnræði var með lið- unum í fyrsta leikhluta og staðan í lok hans 13:16 Fjölni í vil. Sama var upp á teningnum í öðrum leik- hluta, Skallagrímur var þó yfirleitt alltaf með forystuna en staðan jöfn í hálfleik 38:38. Í þriðja leikhluta bættu Fjölnis- menn í og náðu 14 stiga forystu eftir fimm mínútna leik og héldu henni nokkurn veginn til loka leik- hlutans og staðan þá 52:65. Í síðasta leikhlutanum gekk lítið hjá heima- mönnum, um tíma var munurinn kominn í 19 stig og erfiðlega gekk hjá Sköllunum að saxa niður for- skotið. Lokatölur leiksins 77:88 og annað tap Skallagríms í röð í deild- inni í vetur. Stigahæstir í liði Skallagríms voru Nebojsa Knezevic með 22 stig, marinó Þór Pálmason og al- mar Örn Björnsson voru með 14 stig hvor og Davíð Guðmunds- son var með 13 stig. Hjá Fjölni var Daníel Ágúst Halldórsson með 18 stig, Viktor máni Steffensen með 17 stig og Dwayne Ross Foreman Jr. með 16 stig. Næsti leikur Skalla- gríms í deildinni er gegn liði Ham- ars úr Hveragerði og er leikurinn syðra föstudaginn næsta, 8. októ- ber, klukkan 19.15. vaks Ía hóf leik í fyrstu deild karla í körfubolta í liðinni viku með tveim- ur leikjum en sá fyrri var gegn liði Hauka í íþróttahúsinu við Vestur- götu síðasta þriðjudag. Skagamenn fengu óvænt sæti í fyrstu deild- inni þegar þeir þáðu boð KKÍ að taka sæti Reynis Sandgerði sem lét það frá sér um miðjan septem- ber. Haukar hins vegar féllu úr úr- valsdeildinni á síðasta tímabili og stefna á að komast aftur upp á með- al þeirra bestu. Það sást fljótlega í leiknum því Haukar voru komnir í 7:22 eftir sex mínútna leik og stað- an var orðin 12:33 eftir fyrsta leik- hluta. Haukar héldu áfram að herja á heimamenn í öðrum leikhluta og hreinlega völtuðu yfir þá og staðan í hálfleik hálf ótrúleg, 21:67. ekki skánaði leikur Skagamanna mikið í þriðja leikhluta og Hauk- ar voru ekki langt frá hundraðinu þegar honum lauk en staðan var þá 33:93. Skagamenn skoruðu ekki stig fyrstu fjórar mínúturnar í fjórða leikhluta og Haukar héldu áfram að safna stigum. Líklega voru Skagamenn frelsinu fegnir þegar lokaflautan gall og lokatölur leiksins 44:120 fyrir Haukum. Stigahæstir hjá Skagamönnum voru þeir Nestor elijah Saa með 17 stig og 8 fráköst, Davíð alex- ander magnússon var með 9 stig og aðrir minna. Hjá Haukum var Shemar Bute með 26 stig og 11 fráköst, orri Gunnarsson með 19 stig og Jose aldana var með 18 stig, 7 stoðsendingar og 7 stolna bolta. Skagamenn ferðuðust svo á Flúðir síðasta föstudagskvöld þar sem þeir mættu liði Hrunamanna og urðu að sætta sig við naumt tap, lokatölur 106:101. Hrunamenn byrjuðu betur í leiknum en Skaga- menn komust yfir 18:19 eftir sex mínútna leik og staðan 28:30 þeim í vil eftir fyrsta leikhluta. Jafnt var nánast á öllum tölum í öðrum leik- hluta og staðan 54:50 fyrir Hruna- mönnum þegar leikmenn gengu til hálfleiks. Hrunamenn náðu fljótlega níu stiga forystu í þriðja leikhluta en Skagamenn komu sterkir til baka og náðu að minnka muninn í fjög- ur stig þegar honum lauk og stað- an 81:77. mikil spenna var í fjórða leikhluta en undir lokin náðu Hrunamenn að hrista Skagamenn- ina af sér og sigldu sigrinum í höfn, 106:101. Stigahæstir í liði Ía voru þeir Cristopher Clover sem var með 26 stig, Nestor elijah Saa var með 24 stig og Davíð alexander magnús- son með 20 stig. Yfirburðamaður í liði Hrunamanna var Kent David Hanson sem henti í 43 stig og 20 fráköst, Clayton Ladine var með 19 stig og Karlo Lebo með 13 stig. Næsti leikur Ía er gegn Selfossi næsta föstudag í Íþróttahúsinu á Vesturgötu og hefst klukkan 19.15. vaks/ Ljósm. úr safni/ jho. Jóhann Pétursson formaður Víkings er hér með þessum efnilegu leikmönnum. F.v. Davíð Svanur Hafþórsson, Viktor Andri Kristmundsson, Kristján Freyr Tómasson, Björn Óli Snorrason, Ísak Máni Guðjónsson og Max Alex Bochra Penninn á lofti í Ólafsvík Hluti keppenda ÍA á Arena móti Ægis um helgina. Nýtt Akranesmet í sundi í piltaflokki Einar Margeir Ágústsson setti nýtt piltamet í 50 metra skriðsundi. ÍA tapaði naumlega fyrir Hruna- mönnum en stórt gegn Haukum Marinó Þór og Almar Örn voru með 14 stig hvor gegn Fjölni. Ljósm. glh Tvö töp hjá Skallagrími í vikunni

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.