Vesturbæjarblaðið - dec. 2021, Side 4
Helgi Vilhjálmsson oftast kenndur við Sælgætisgerðina Góu
segir að ef hann ætti að lifa æfi sína á nýjan leik myndi hann
ekki vilja sleppa æskuárum sínum í Vesturbæ Reykjavíkur.
Hann ólst upp í braggahverfi í Vesturbænum. Fór á sjó um
tíma en síðan yfirtók “nammið” líf hans eins og hann segir
sjálfur frá. Helgi er einn af stærri atvinnurekendum landsins.
Rekur Sælgætisgerðina Góu í Garðabæ og einnig KFC eða
Kentucky Fried Chicken skyndibita sem margir þekkja. En
hvernig hefur líf hans verið í gegnum tíðina. Vinna og aftur
vinna myndu sumir segja, útsjónarsemi myndi öðrum koma
til hugar. Sennilega blandast þetta saman auk glaðlyndis og
góðrar skapgerðar. Helgi er einnig þekktur fyrir að liggja ekki
á skoðunum sínum og vera tilbúinn að tala fyrir þeim nánast
hvar og hvenær. Hann hefur gagnrýnt lífeyrissjóðakerfið
og að undanförnu hafa málefni heldri borgara verið honum
hugleikin. Hann hefur viðrað þá hugmynd að breyta Bænda
höllinni, sem nú stendur að mestu auð og tóm, í litlar íbúðir
fyrir heldra fólk. Þótt Helgi nálgist áttrætt vinnur hann fullan
vinnudag í fyrirtækjum sínum. Kveðst vilja vinna á meðan
hann getur. „Við skulum koma inn í fundarherbergið,“ segir
hann við komumann. „Þá höfum við aðeins næði.“ Þegar
þangað er komið dregur hann fram ramma sem hann var með
undir hendinni. Í rammanum var mynd af bragga hverfinu þar
sem hann ólst upp fyrir sjö til átta áratugum. Hann vildi sýna
komumanni æskustöðvarnar.
„Þarna byrjaði þetta. Ég hefði
alls ekki viljað missa af þessum
tíma. Þessu uppeldi Þrátt fyrir
fátækt höfðum við krakkarnir
margt gott. Vorum mikið úti
og lékum okkar. Þá voru engir
skjáir til þess að glápa á og
ekki við neitt annað að vera en
útiveruna og síðan tók skóli
lífsins við. Þar voru engin próf
en ef við stóðumst þennan
skóla þá var flestum borgið. Ég
fór í Melskólann eins og aðrir
krakkar. Þar gekk oft mikið á
og kennararnir máttu stundum
hafa sig alla við að halda aga.
Stundum var tekið aðeins í mann.
Þeir notuðu jafnvel sippubandið.
Það gerði ekkert til en slíkar
kennsluaðferðir eru ekki vel séðar
í dag. Tímarnir eru breyttir. Ég
tel að Reykvíkingar geti talist
heppnir að setuliðið skyldi eftir
sig mikið af húsnæði þótt deila
megi um hversu heppilegt það
var til búsetu. Við höfðum engin
efni á að byggja yfir þann fjölda
sem tók sér búsetu í borginni á
þeim tíma. Braggahverfin leystu
tímabundinn vanda í sögu
þjóðarinnar. Vanda sem ég sé
ekki hvernig annars hefði verið
leystur.“
Vertíðin gekk fyrir
Helgi kveðst viss um að þessi
ár í Vesturbænum hafi mótað það
sem á eftir kom í lífinu. Hann fór
snemma að vinna. Lífið snerist
um vinnu. Að hafa í sig og á. Hann
fór til starfa hjá Sælgætisgerðinni
Nóa sem var ti l húsa við
Skúlagötuna. Honum liggur gott
orð til Hallgrímsfjölskyldunnar
sem átti og rak fyrirtækið. „Þarna
má rekja upphaf þess að ég lenti
í namminu. Ég lærði mikið þarna.
Hvernig átti að gera hlutina. Ég
ílengdist þó ekki þar. Fór á sjóinn
um tíma en fann að sjómennskan
átti ekki við mig. Alla vega ekki til
lengdar. Ég var á sjó frá Grindavík
og rak sjoppu í bænum með fram
róðrunum. „Ég var á sjónum
þegar elsta dóttir okkar fæddist
þann fyrsta apríl. Ég hafði huga á
að skreppa í land og líta á barnið.
Skipstjórinn sagði að svoleiðis
gerðu menn bara í landlegum.
Það liðu einhverjar vikur þar til
ég sá barnið. Vertíðin gekk fyrir.
Kunni eitthvað
fyrir mér namminu
„Þegar ég kom í land fór ég
að huga að því hvað ég vildi
gera. Mig langaði að taka þátt
í atvinnulífinu. Ég hafði kynnst
namminu. Ég sá að þar ég gæti
þreifað fyrir mér. Fann að ég
kunni eitthvað til verka. Ég
stofnaði Góu 1. janúar 1968. Til
að byrja með átti fyrirtækið eina
karamelluvél en árið 1973 hófst
framleiðsla á hraunsúkkulaðinu
sem hefur verið ein vinsælasta
vara fyrirtækisins upp frá því.
Árið 1993 runnu tvær ást sælustu
sæl gætisgerðir land sins, Góa í
Hafnarfirði og Linda á Akureyri
saman. Í september 2002
keypti Góa svo rekstur lakkrís
gerðarinnar Drift sf. Góa er í dag
næststærsti sæl gætisframleiðandi
landsins. Starfs mannafjöldinn
er um 50 manns og hafa sumir
þeirra starfað hjá fyrirtækinu í
yfir 40 ár. Þegar ég stofnaði Góu
spurði ég sjálfan mig hvort ég
gæti keppt við þetta ágæta fólk
sem ég hafi unnið hjá og átt
ágæta daga. Þetta fólk átti hin
og þessi fyrirtæki. Ég vildi ekki
efast og reyndi. Byrjaði á að
framleiða karamellur og hjólin
fóru að snúast.“
Keyptum aldrei
sígarettupakka
eða bjórkippu
Helgi kveðst ekki hafa hugsað
um ríkidæmi þegar hann var að
alast upp. Stundum hafi verið
gantast með það í strákahópnum
að það væri gott að ná sér í ríkar
stelpur. Helgi gifti sig ungur þótt
hann hafi ekki haldið í heitið um
ríka konu. En þau hjónin voru
samhent sem gerði gæfumun.
Eiginkona Helga var Jóna
Steinunn Patricia Conway. Þau
Helgi gengu í hjónaband þann. 21.
september 1963. Jóna Steinunn
eða Patty eins og hún var kölluð
lést október 2011. Þau hófu
búskap að Skjólbraut í Kópavogi
en bjuggu lengst af á Skjólvangi
í Hafnarfirði. „Ég var heppin. Við
Patty voru gift í tæpa hálfa öld.
Allt þar til hún lést. Við unnum
bæði að rekstrinum. Á meðan
þetta var að fara af stað settist ég
yfir bókhaldið eftir vinnu og hún
fór svo í bankann á morgnana.
Stundum með barnavagninn á
undan sér. Fyrstu tvo áratugina
vorum við með skrifstofuna á
eldhúsborðinu. Fyrirtækið og
fjölskyldan uxu hvort með öðru.
Og þegar vel er farið með verður
eitthvað eftir. Við keyptum
aldrei sígarettupakka eða bjór
kippu. Ég hef ekki fengið mér
vín um dagana.“
Þú átt eftir að
byggja mikið
Helgi rifjar upp að þegar hann
var að alast upp í Vesturbænum
ha f i fu l lorð in kona bú ið
þar skammt frá. „Hún bjó í
hálfgerðum kofa fyrir neðan þar
sem Melabúðin er. Fékkst minnir
mig við smíðar og gekk hölt.
Var með klumbufót eins og það
var kallað í þá daga. Hún kom
einhverju sinni að máli við mig
drenginn og sagði að ég ætti eftir
og byggja mikið. Ég lagði eyrun
við en gerði ekki mikið með
þennan spádóm. Alla vega ekki
þá. En svo fór þetta hjá mér eins
og konan sagði. Ég fór að byggja
og hef byggt eitt og annað um
dagana. Sá að ég gat ekki rekið
fyrirtækið nánast á vörubílspalli
þegar það stækkaði. Ég hef verið
að byggja síðustu fjóra áratugina.
Ég hef líklega um 15 til 20 þúsund
fermetra þegar allt er talið.
Bæði verksmiðjubyggingar og
íbúðarhúsnæði. Ég rauk meðal
annars í að byggja einbýlishús
yfir mig. Ef til vill má rekja það til
uppeldisins í bragganum. Fundist
ég eiga betra skilið eftir að hafa
alist þar upp. Nú bý ég einn eftir
að hafa verið ekkjumaður í um
áratug. Ég hef ekkert með þetta
hús að gera bara yfir sjálfan mig.
Gæti alveg hugsað mér að flytja
í litla íbúð.“ Helgi er ómyrkur í
máli þegar íbúðabygginga berast
í tal. „Við þurfum að byggja meira
af litlum íbúðum fyrir ungt fólk.
Íbúðir þar sem fólk getur byrjað
sinn búskap. Og ekki síður fyrir
eldra fólk sem vill eða þarf að
minnka við sig. Það skortir
sárlega húsnæði fyrir aldraða
sem uppfyllir þarfir þeirra hvað
varðar einkalíf. Litlar íbúðir þar
sem fólk hafi sitt prívat og geti
tekið á móti ættingjum og vinum.
Það er illa búið að öldruðu fólki.“
4 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2021
Hefði ekki viljað sleppa uppvaxtarárunum
- segir Helgi Vilhjálmsson í Góu sem spjallar við Vesturbæjarblaðið um ævi sína
Helgi Vilhjálmsson á vörulagernum í Góu.
Braggahverfin leystu
tímabundinn vanda
í sögu þjóðarinnar.
Vanda sem ég sé ekki
hvernig annars hefði
verið leystur.
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Er Bændahöllin ekki að mestu tóm?
Hvað á að gera við þetta stóra hús?
Hef heyrt að það sé til sölu. Mér fyndist
tilvalið að breyta því í íbúðir fyrir heldra
fólk. Húsið er á góðum stað í miðjum
Vesturbænum. Útsýnið er frábært. Svo
mætti útbúa fína félagsaðstöðu fyrir fólkið.
Þar sem það gæti komið saman og átt
góðar stundir. Það mætti setja upp stóran
skjá þar sem Raggi Bjarna væri að syngja.
Enginn er tengdari Sögu en hann