Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Blaðsíða 5
Tilvalið að breyta
Hótel Sögu í íbúðir
fyrir eldra fólk
Helgi leiðir talið að Bænda
höllinni. „Er hún ekki að mestu
tóm. Hvað á að gera við þetta
stóra hús. Hef heyrt að það sé
til sölu. Mér fyndist tilvalið að
breyta því í íbúðir fyrir heldra
fólk. Húsið er á góðum stað í
miðjum Vesturbænum. Útsýnið
er frábært. Svo mætti útbúa fína
félagsaðstöðu fyrir fólkið. Þar
sem það gæti komið saman og
átt góðar stundir. Það mætti setja
upp stóran skjá þar sem Raggi
Bjarna væri að syngja. Enginn er
tengdari Sögu en hann.“
Tilefni fyrir
lífeyrissjóðina
Helgi segir að þarna væri
komið tilefni fyrri lífeyrissjóðina.
Hann hefur undanfarinn áratug
velt stöðu þeirra fyrir sér og
hvernig farið er með þá fjármuni
sem þeir fá til ávöxtunar. „Ef
sjóðirnir notuðu tvo milljarða á
ári til að byggja litlar íbúðir fyrir
ellilífeyrisþega væri hægt að
útrýma húsnæðisskorti aldraðra
á áratug eða svo. Ég er ekki að
tala um ölmusu. Þeir sem hafa
greitt í sjóðina eiga þessa peninga
og eiga líka að fá ráðstafa þeim að
vild. Mér finnst lífeyrissjóðirnir
hafi gleymt okkur. Við sendum
þeim peninga en þeir hugsa lítið
um hvernig þeir geti auðveldað
fólki ævikvöldið. Ég byrjaði
að tala um lífeyrissjóðina fyrir
áratug. Þá námu eignir þeirra um
400 milljörðum, en nema nú um
þrjú þúsund milljörðum. Þeir fá
12 prósent af laununum okkar
en þeir sem greiða hafa ekkert
um það segja í hvað peningarnir
eru notaðir.“ Hugmyndir Helga
um að lífeyrissjóðirnir taki að sér
að byggja yfir aldraða hafa vakið
mikla athygli og hann fengið
jákvæð viðbrögð fyrir að benda
á þetta.
Lífeyrisgreiðslur skipta
máli við makamissi
Helgi heldur áfram. „Þegar ég
byrjaði að greiða í lífeyrissjóð
árið 1964 höfðu menn ekki neitt
val í hvaða sjóð þeir greiddu.
Sem betur fer hefur það breyst.
Menn þurfa að huga vel að því í
hvaða sjóði þeir greiða og hvert
viðbótarlífeyrissparnaðurinn
fer. Ég og mín fjölskylda fórum
að greiða í Frjálsa lífeyrissjóðinn
fyrir tíu til tólf árum. Þegar
sonur minn dó greiddi sjóðurinn
tíu milljónir inn í dánarbúið.
Það kom hins vegar ekki króna
frá Gildi sem hann var búinn að
greiða í mörg ár. Svipað gerðist
þegar konan mín féll frá. Þá fékk
ég átta milljónir eftir hana en
dæturnar eina og hálfa milljón
hver. Það skiptir svo miklu máli
þegar fólk missir maka sinn að
það fái lífeyrisgreiðslur.“
Maður ólst dálítið upp
með Ameríku
Helgi hefur ekki látið nammið
eins og hann kemst að orði
nægja. Hann fór að horfa eftir
fleiri tækifærum. Fyrir rúmum
fjórum áratugum opnaði hann
fyrsta KFC staðinn hér á landi.
„Ég hafði látið mig dreyma
um að opna skyndibitastað.
Maður ólst dálítið upp með
Ameríku. Pabbi sigldi þangað
og ýmis áhrif bárust hingað.
Sérstaklega á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar og eftir
hana. Ég var búinn að sjá KFC
fyrir mér hér á landi og var búinn
að leggja talsverða vinnu í að fá
umboðið. Ég opnaði fyrsta KFC
staðinn í Hafnarfirði 9. október
1980. Þá voru liðin 50 ár frá því
Colonel Harland Sanders opnaði
sinn fyrsta stað í Kentucky í
Bandaríkjunum árið 1930. Nú eru
átta KFC staðir hér á landi þar
af sex á höfuðborgarsvæðinu.
Ég hef verið við þetta frá byrjun
en í dag eru það þó aðalleg
afkomendur mínir sem annast
um rekstur KFC.“ Helgi segir að
tilkoma KFC hafi breytt kjúklinga
framleiðslunni hér á landi.
„Við fórum að nota kjúklinga
bringurnar meira. Áður var
áherslan lögð á læri, leggi og
vængi. Mesti maturinn er þó
í bringunni. Þegar KFC var 40
ára efndum við til einskonar
bílalúguleik. Hann fór þannig fram
að farþegar í níunda hverjum
bíl fengu afmælisfötu með níu
kjúklingaleggjum gefins.“
Þola bara Pepsí og
kjúkling
Helgi er keikur. Segir þó að
stundum veki talan 80 með sér
ónot. Þar á hann sennilega við
afmæli sitt þegar hann sjálfur
mun standa á átta tugum. „Þetta
angrar mig þó ekki alvarlega. Ég
hef stunum hóað nokkrum saman
sem eru á svipuðum aldri og ég.
Þegar ég gerði það fyrst spurðu
þeir hvort barinn væri opinn.
Þeir vildi fá brennivín. Ég var ekki
alveg á því að þess þyrfti með.
Nú fá þeir bara kjúkling og Pepsí
að drekka með. Þeir þola ekki
meira,“ segir Helgi Vilhjálmsson
sem hvergi er að láta deigan síga.
5VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2021
Helga fyndist tilvalið að breyta Hótel Sögu í íbúðir fyrir heldra fólk.
Ég var á sjónum
þegar elsta dóttir
okkar fæddist þann
fyrsta apríl. Ég hafði
huga á að skreppa í
land og líta á barnið.
Skipstjórinn sagði að
svoleiðis gerðu menn
bara í landlegum. Það
liðu einhverjar vikur
þar til ég sá barnið.
Mér finnst lífeyris
sjóðirnir hafi gleymt
okkur. Við sendum
þeim peninga en þeir
hugsa lítið um hvernig
þeir geti auðveldað
fólki ævikvöldið. Ég
byrjaði að tala um
lífeyrissjóðina fyrir
áratug. Þá námu
eignir þeirra um
400 milljörðum. Nú
nema þær um þrjú
þúsund milljörðum.
LANDSBANKINN. IS
Mundu eftir
Aukakrónunum
um jólin
Þú getur keypt næstum hvað
sem er fyrir Aukakrónur hjá yfir
200 samstarfsaðilum okkar
um allt land. Þú sérð stöðuna
á krónunum þínum í appinu.
Kynntu þér Aukakrónur
á landsbankinn.is
Skemmuvegi 44m • Kópavogi
www.bilarogtjon.is