Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Blaðsíða 15

Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2021 www.kr.is GETRAUNIR.IS 107 GETRAUNANÚMER KR Brynjar Þór spilaði sinn 300 leik Knattspyrnumaðurinn Aron Kr. Lárusson hefur skrifað undir 4 ára samning við Knattspyrnudeild KR. Aron, sem fæddur er árið 1998, hefur leikið með ÍA, Þór Akureyri og Völsungi og er hann frábær liðsstyrkur fyrir KR. Knattspyrnudeild KR býður Aron hjartanlega velkominn á Meistaravelli! Aron Lárusson til KR Aron Kr. Lárusson er gengin til liðs við KR. Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Brynjar Þór Björnsson náði þeim merka áfanga að spila sinn 300 deildarleik fyrir KR á dögunum gegn Grindavík. Brynjar Þór eða Hr. KR er margfaldur meistari bæði í yngri flokkum félagsins og í meistaraflokki. Margir muna eftir frægri 3 stiga körfu Brynjars gegn Snæfelli í undanúrslitum 2007 sem að jafnaði oddaleikinn á síðustu sekúndu leiksins og vannst svo sigur í framlengingu. Í sjálfum lokaúrslitunum vannst sigur á Njarðvík og var það upphafið af langri sigurgöngu KR. Margir titlar fylgdu í kjölfarið og var Brynjar Þór Íslandsmeistari til viðbótar við titilinn 2007 árin 2009, 2011, 2014, 2015, 2016, 2017 og 2018. Að auki vannst Bikarkeppni KKÍ 2011, 2015 og 2016 með Brynjar innanborðs. Til hamingju með þennan merka áfanga Brynjar! KR – konur vilja bjóða allar konur á öllum aldri sem á einhvern hátt hafa tengst eða tengjast KR velkomnar í sinn hóp. Þær óska eftir að konur sendi tölvupóst á netfangið krkonur@kr.is KR – konur eiga sér nær hálfrar aldar sögu. Þann 28. nóvember 1973 komu átján konur saman til fundar í KR­ heimilinu. Tilgangurinn var að stofna félagsskap kvenna sem hefði það að markmiði að efla og styrkja Knattspyrnufélag Reykjavíkur. Félagið hlaut nafnið KR­ konur og var fyrsti formaður Aldís Schram. KR – konum fjölgaði hratt því á fimm ára afmælinu voru þær 85 talsins. Fyrsta verkefni KR – kvenna var að fegra félagsheimili KR og stuðla að bættri umgengni. Aflað var fjár til margvíslegra verkefna í gengum tíðina og hafa ýmsar fjáröflunarleiðir verið notaðar. Þar á meðal kökubasarar, kaffisölur, bingó, flóamarkaðir, garðplöntusala, sala á húfum, könnum, svuntum, spilum, jólaböll fyrir börnin, jólaföndri, jólakortum og margt fleira. Starfsemi KR – kvenna hefur tekið breytingum í gegnum tíðina en helsta hlutverk er ennþá að afla fjár til ýmissa verkefna, einna helst að styðja við yngri flokka félagsins og vera bakhjarl við rekstur félagsheimilis KR. Þorrablót Vesturbæinga er hugsmíð KR­kvenna og er orðinn fastur liður í KR heimilinu. Allur ágóði þorrablótsins rennur óskiptur í yngri flokka starf félagsins í ólíku formi og má þar nefna styrki til keppnis­ og æfingaferða, fyrirlestra sjúkraþjálfa, næringarfræðinga og svefnráðgjafa fyrir iðkendur og skyndihjálparnámskeið fyrir þjálfara. Í st jórn KR kvenna eru: Arna Guðrún Þorsteinsdóttir formaður, Þórhildur Garðarsdóttir gjaldkeri, Halldóra Sigtryggsdóttir ritari, Helga Ösp Jóhannsdóttir meðstjórnandi, Ragnhildur Elín Garðarsdóttir – meðstjórnandi og Anna Ingigerður Jónsdóttir meðstjórnandi. Vilja bjóða konur á öllum aldri velkomnar KR-ingurinn Norbert Bedö sigraði á Stórmóti HK og Stiga, sem fram fór í Íþróttahúsi Snælandsskóla laugardaginn 13. nóvember. Leikið var í opnum flokki karla en keppni í kvennaflokki féll niður. Í karlaflokki var fyrst keppt í riðlum en síðan leikið upp úr riðlunum með útslætti. Norbert sigraði Björn Gunnarsson, HK í úrslitum. Skúli Gunnarsson, KR hafnaði í 3.­4. sæti, sem og Óskar Agnarsson, HK. Verðlaunahafar fengu gjafir frá Ping Pong.is, umboðsaðila Stiga á Islandi og frá Nóa­Síríus. Mynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur. Norbert úr KR sigraði á Stórmóti HK KR – konur Brynjar Þór Björnsson.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.