Feykir


Feykir - 01.02.2021, Blaðsíða 3

Feykir - 01.02.2021, Blaðsíða 3
Sérfræðikomur í febrúar 2021 www.hsn.is 8. FEBRÚAR Haraldur Hauksson alm/æðaskurðlæknir 10. FEBRÚAR Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir 22. OG 23. FEBRÚAR Sigurður Albertsson alm. skurðlæknir 25. OG 26. FEBRÚAR Orri Ingþórsson kvensjúkdómalæknir Tímapantanir í síma 432 4236 Í síðustu viku afhenti forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, verðlaun á Bessastöðum í lestrarkeppni grunnskóla en keppnin var á vegum Samróms, samstarfsverkefnis um mál- tækni sem Almannarómur, Deloitte, Háskólinn í Reykjavík og Nýsköpunarsjóður námsmanna standa að. Höfðaskóla á Skagaströnd lenti í 2. sæti í sínum flokki með 102.535 lesnar setningar og í 3. sæti á landsvísu og var því hópur nemenda mættur á Bessastaði. Markmið Samróms er að þróa nauðsynlega innviði fyrir hugbúnað sem skilur og talar íslensku. Í grunnskólakeppninni var raddsýnum safnað og gagnast þau við að skipa íslensku máli verðugan sess í stafrænum heimi. Þátttaka í keppninni var mikil í ár, því 136 skólar lögðu sitt af mörkum og lásu samtals um 790 þúsund setningar. Smáraskóli, Grenivíkurskóli og Setbergsskóli sigruðu hver í sínum stærðarflokki, en einnig voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur til Höfðaskóla, Gerðaskóla og Myllubakkaskóla. /ÓAB Höfðaskóli á Skagaströnd Nemendur stóðu sig með glæsibrag Forsetahjónin Guðni og Elíza ásamt Súsönnu og Steinunni Kristínu, nemendum Höfðaskóla. MYND AF SÍÐU HÖFÐASKÓLA

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.