Feykir


Feykir - 31.03.2021, Blaðsíða 6

Feykir - 31.03.2021, Blaðsíða 6
Magnús Ólafsson, sagnamaður á Sveinsstöðum í Austur- Húnavatnssýslu, hefur í nógu að snúast þó kominn sé af allra léttasta skeiði. Í vetur hefur hann verið í leiðsögunámi hjá Ferðamálaskóla Íslands á Bíldshöfða og stefnir á að fara nýja söguferð með hópa um heillandi slóðir. Þá verður væntanlega framhald á hesta- ferðum hans um söguslóðir síðustu aftökunnar á Íslandi. Feykir hafði samband við Magnús og spurði hann út í námið og ferðirnar sem mynd er að færast á þessa dagana. „Nú eru Reynisstaðabræður komnir sterkt inn í minn huga og ég er með í undir- búningi fjögurra daga ferð á góðum fjallabíl þar sem ekið verður upp úr sunnlenskum sveitum svo til nákvæmlega leiðina sem Reynisstaða- bræður fóru sína hinstu för haustið 1780. Þeir fóru frá Tungufelli og tjölduðu næstu nótt í Svínárnesi við Sandá. Hreppamenn fylgdu þeim þar uppeftir og áfram dag- inn eftir, allt þar til norðan- menn fóru yfir Jökulfallið. Þess vegna er vitað með vissu hvar þeir fóru. Næsta sumar fundust bein tveggja manna og einnig bein fjölda fjár og hrossa á og við Beinhól. Mannshönd í vettlinig fannst næsta vor við Blöndu. Á þumal vettlingsins voru saumaðir stafirnir J. A., upp- hafsstafir Jóns Austmanns. Var því talið nokkuð víst að Jón hefði freistað þess að komast til byggða eftir hjálp. Það var svo 65 árum síðar sem bein bræðranna fund- ust.“ Magnús segir að þessi magnaða örlagasaga verði sögð á meðan leiðin upp með Hvítá og Jökulfallinu verður farin í sumar. Komið verður á Beinhól á öðrum degi ferðarinnar og segir Magnús það magnaðan stað að standa á og hugsa um örlög vaskra manna. Þá verður komið við á Hveravöllum þar sem stór- brotin náttúra verður skoðuð og saga Fjalla-Eyvindar sögð. „Hugsanlega verður kíkt yfir Þjófadali, enda talið að Reynisstaðabræður, Fjalla-Eyvindur, Björn Eysteinsson, forustufé og fjallamenn í bland við síðustu aftökuna hjá Magnúsi á Sveinsstöðum Aldrei of gamall til þess að læra Magnús við Breiðamerkurjökul í helgarferð leiðsögunema. MYND AÐSEND Magnús Ólafsson, sagnameistari frá Sveinsstöðum, segir frá atburðum síðustu aftökunnar á Íslandi. MYND: AXEL JÓN þar hafi verið gósenland fyr- ir útilegumenn. Á leiðinni norður Auðkúluheiði þegar sér yfir Forsæludalskvíslar verður saga Björns Eysteins- sonar sögð, einn af þeim mörgu Íslendingum sem tók- ust á við harða náttúru en höfðu sigur.“ Margar sögur lifa Magnús hefur frætt marga um síðustu aftökuna á Íslandi sem fram fór á Þrístöpum í Vatnsdalshólum, skammt frá Sveinsstöðum, m.a. farið hestaferðir um sögustaði er tengdust fólki sem flæktu sína örlagaþræði í þá atburði. Í fyrravetur flutti hann, á sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi, söguna Öxin, Agnes og Friðrik við miklar vinsældir. Það er einmitt á þriðja degi ferðarinnar sem verður ekið um söguslóðir síðustu aftökunnar, bæði um Vatnsdal og Vatnsnes. „Að heyra kjarna sögunnar á Þrí- stöpum er mörgum ógleym- anlegt,“ útskýrir Magnús og eru það orð að sönnu. „Seinasta daginn verður svo ekið suður að Arnarvatni stóra og Réttarvatni. Þar hittust Húnvetningar og Borgfirðingar um árabil og lifa margar sögur um þeirra samfundi. Síðan verður ekið niður með Norðlingafljóti í Húsafell. Þaðan suður Kalda- dal en um Kaldadal reið Skúli á Sörla forðum og um Kalda- dal fór móðir mín rúmlega fermd þegar hún var send einsömul ríðandi norður í Kalmannstungu að sækja hest. Mögnuð saga um magn- aða konu.“ Magnús vonast til að um frábæra ferð verði að ræða, með fjölbreyttu landslagi og miklum sögum. „Ég hef tryggt mér góðan bíl í ferðina þannig að vel fari um þátt- takendur og gönguferðir í lágmarki. Þar sem sætafjöld- inn er takmarkaður er vissara fyrir þá sem hefðu hug á að fylgja mér í þessari ferð að hafa samband sem fyrst. Allar nætur verður gist á góðum gististöðum með uppbúnum rúmum og snæddur góður kvöldverður.“ Auk framangreindrar ferð- ar ætlar Magnús að fara fjórar ferðir ríðandi um söguslóðir síðustu aftökunnar í sumar en slíkar ferðir hefur hann farið þrjú undanfarin ár. Segir hann þeim fjölga stöðugt sem vilja komast í þær. „Frábærar UMFJÖLLUN Páll Friðriksson 6 13/2021

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.