Feykir - 28.04.2021, Side 4
„Hérna er saga sem gæti verið
sönn. Saga um vonir og þrár,
sorgir og sigra þar sem mann-
legur breyskleiki er töluvert
sýnilegur. Þessu er svo pakkað
inn með gleði og glaum, þar
sem þekkt sjómannalög eru í
gegnum sýninguna, fyrir utan
Viðtal við Pétur Guðjónsson leikstjóra og höfund Sæluvikuleikritsins
„Þessi hópur er alveg einstak-
lega skemmtilegur og skapandi“
Eftir langa og stranga æfingu er höfundur og leikstjóri Á frívaktinni látinn stilla sér upp fyrir myndatöku. MYND: PF
Leikfélag Sauðárkróks fumsýnir á heimsvísu Á frívaktinni, frumsamið leikrit Péturs
Guðjónssonar sem leikstýrt hefur hér á Krók bæði hjá LS og Nemendafélagi Fjölbrauta-
skólans. Titillinn vísar í samnefndan útvarpsþátt sem var mjög vinsæll á sínum tíma á
Rás 1 og var óskalagaþáttur fyrir sjómenn. Sjómannalögin eru allsráðandi í verkinu og
segir höfundurinn að áhrif þáttarins komi við sögu. Auk þess að semja verkið,
leikstýrir Pétur því einnig.
VIÐTAL
Páll Friðriksson
eitt lag, sem er eftir Elmar
Sindra Eiríksson og Brynjar
Davíðsson. Það lag fór í sýn-
inguna af því það passaði svo
vel inn í með öllum þekktu
lögunum,“ segir Pétur um leik-
ritið.
Hugmyndina að verkinu
segir Pétur hafa komið þegar
hann sat og horfði á þátt
Möggu Blöndal og Felix Bergs,
Veröld, sem fjallaði um sjó-
mannalögin. „Þá er nú bara
eins og elding skjótist í hausinn
á mér.“
Þú ákveður að setja þetta upp
á Króknum, hvernig kemur
það til?
„Það er nú vegna þess að Lulla,
formaður LS, greip hugmynd-
ina. Ég á það til að blaðra eða
jafnvel hugsa hlutina upphátt
þegar ég fæ hugmyndir. Ég var
að leikstýra Línu Langsokk hjá
LS þegar hugmyndin fæðist.
Ég fer því að hlusta á sjó-
mannalög og sjá fyrir mér
senur. Síðan ákvað ég að taka
að mér leikstjórn að vori 2020
og þá bar ég þessa hugmynd
upp á stjórnarfundi og hún
var samþykkt. Það var bæði
gleðilegt og skelfilegt því sagan
var eingöngu á hugmyndastigi
og ég ekki búinn að setja niður
svo mikið sem eitt orð á blað.
En svo kom þetta þegar ég
byrjaði.“
Til stóð að sýna verkið
síðasta vor en kórónuveiran
stöðvaði það. Pétur segir að
æfingar hafi rétt verið byrjað-
ar. „Við vorum byrjuð að rúlla
texta án handrits og aðeins
farin að kíkja á lögin. Svo kom
stopp og ákveðið að fresta
fram á haust. Við hittumst
a.m.k. einu sinni í sumar. Það
þurfti að breyta aðeins hlut-
verkaskipan fyrir haustið og
það var allt klárt. Svo kom
aftur frestun. Þá þurfti aftur að
breyta töluvert hlutverka-
skipan og breyta jafnvel hlut-
verkum fyrir viðkomandi
leikara, breyta um kyn á
karakter og ýmislegt annað.
Þannig að þetta hefur verið
svolítið limbó.“
Hvernig hefur gengið að æfa í
vetur?
„Þetta hefur verið algjörlega
frábært þó aðstæður væru
hræðilegar. Það er kannski það
sem gerir þetta frábært, hversu
vel hefur gengið við þessar
aðstæður. Við höfum verið að
æfa með grímur og á tímabili
aðeins tíu í húsi með fjarlægðir
og sóttvarnir í toppmálum.
Þetta hefur verið mjög flókið á
köflum en þessi hópur hefur
gert þetta mögulegt.
Svo verð ég líka að tala um
hversu gaman það er að vinna
með svona skapandi fólki. Það
er alltaf svolítið hættulegt að
leikstýra eigin verki því þá er
hætta á bullandi sjálfhverfu.
En leikhópurinn hefur verið
mjög skapandi og þarna fæðast
margar skemmtilegar senur.
Ég trúi einlægt á mátt leik-
hópsins en ekki einræði
leikstjórans. Stundum gengur
það ekki, það fer svolítið eftir
því hversu skapandi hópurinn
er. Þessi hópur er alveg ein-
staklega skemmtilegur og
skapandi.“
Frumsýning fer fram eftir
Sæluviku, hvernig stendur á
því?
„Nú er ég kannski ekki rétti
maðurinn til að svara því. Ég
held að ákveðið hafi verið að
halda tímasetningu á Sæluviku
sem við getum ekki fylgt.
Þurfum meiri tíma til að æfa
leikritið. Held að þetta sé
svona. Ég vona bara að allt
gangi upp. Á þessum tíma-
punkti er framtíðin óljós. En
hvað sem gerist, þá er ég alveg
ofsalega þakklátur að vera í
þessu verkefni og vinna með
þessu frábæra fólki.“
Í apríl varð héraðsfréttablaðið Feykir 40 ára og
var til dæmis haldið upp á tímamótin með
útgáfu afmælisblaðs. Nú hefur verið opnuð
dálítil afmælissýning í Safnahúsi Skagfirðinga og
er sýnt á báðum hæðum. Um er að ræða
upprifjanir á minnisstæðum fréttum nokkurra
þeirra aðila sem að blaðinu hafa komið í gegnum
tíðina. Sýningin er hluti af dagskrá Sæluviku
Skagfirðinga sem nú stendur yfir.
Það voru starfsmenn Héraðsskjalasafns
Skagfirðinga, þær Sólborg, Kristín og Eyrún,
sem höfðu frumkvæði að uppsetningu
sýningarinnar, söfnuðu saman efni og tóku
viðtöl, en Nýprent annaðist uppsetningu,
prentun og frágang. Á öllum spjöldunum má
finna svokallaða QR-kóða sem vísa ýmist í
fréttirnar sem minnst er á og opnast þær þá á
Tímarit.is eða þá að hlýða má á hlaðvarpsviðtöl
við viðkomandi viðmælendur.
Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu
Héraðsskjalasafns Skagfirðinga og finna þar
Feykir í 40 ár
Feykissýning í tilefni
afmælis í Safnahúsinu
Klara í Nýprenti vinnur við upplímingu á plaggötum. MYND: ÓAB
hlaðvarpsþætti með þessum sömu viðtölum.
Sýninguna sjálfa er hægt að skoða á opnunar-
tímum Safnahússins og í vikunni stendur til að
opna ljósmyndasafn Feykis á vef safnsins. /ÓAB
AÐALFUNDUR
Krabbameinsfélag Skagafjarðar
boðar til aðalfundar
fimmtudaginn 6. maí kl. 17
í Þjónustumiðstöð okkar
Suðurgötu 3 Sauðárkróki.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
og önnur mál.
Allir velkomnir
STJÓRNIN
4 17/2021