Feykir


Feykir - 28.04.2021, Qupperneq 5

Feykir - 28.04.2021, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Eitt af toppliðum Dominos- deildarinnar í körfubolta, Þór Þorlákshöfn, mætti í Síkið sl. sunnudagskvöld og spilaði við lið Tindastóls sem hefur verið að rétta úr kútnum eftir strembinn vetur. Vanalega eru viðureignir þessara liða fyrir spennufíkla og það varð engin breytinig á því þar sem úrslitin réðust þegar 0,2 sekúndur voru eftir af leiknum. Þá tók Flenard Whitfield einu vítaskot sín í leiknum og tryggði Tindastóls- mönnum sigurinn eins og að drekka vatn. Lokatölur 92-91. Hreint frábær leikur og mikilvægur sigur Tindastóls sem eru nú, þegar fjórar umferðir eru eftir af deildar- keppninni, í sjötta sæti. Jaka Brodnik var bestur í annars jöfnu liði Tindastóls en hann var með 18 stig og átta fráköst, Anta Udras var stigahæstur með 19 stig og fjögur fráköst og Tomsick gerði 17 stig og átti tíu stoð- sendingar. Allir leikmenn sem við sögu komu skiluðu sínu í hörkuleik og gerðu stórar körfur en Axel setti niður þessa þrjá þrista sem hann hefur verið með í áskrift að undanförnu og þá gerði Helgi Rafn sjö stig. Ef eitthvað má gagnrýna að lokn- um svona naglbít þá væri það helst hvað leikur Stólanna varð ómarkviss á lokamínútunum þegar liðið var komið í vænlega stöðu. Tindastóll - Þór Ak 117–65 Það virtist sem Tindastólsliðið Dominosdeildin í körfubolta | Leikir við Þór Þorlákshöfn og Þór Akureyri Stál í stál og stál í ál Þórsarar sækja að Flenard Whitfield en kappinn gerði tíu stig og sigurstigin af vítalínunni þegar 0,2 sekúndur voru eftir. MYND: HJALTI ÁRNA Tveir leikir fóru fram í 1. umferð Mjólkurbikars karla á Sauðárkróksvelli um helgina. Fyrst tapaði lið Tindastóls fyrir Völsungum frá Húsavik og svo féll lið Kormáks Hvatar fyrir Hömrunum frá Akureyri. Tindastóll – Völsungur 0–2 Tindastóll og Völsungur mættust á föstudag í rjóma- blíðu. Gestirnir spila deild ofar en Stólarnir og mátti því reikna með erfiðum leik fyrir heimamenn og sú varð raunin. Húsvíkingar voru talsvert sterkari á svellinu en Tinda- stólsliðið varðist ágætlega framan af leik. Fyrsta mark leiksins kom á 60. mínútu en eftir efnilega sókn Húsvíkinga fengu þeir hornspyrnu og úr henni skallaði Aðalsteinn Friðriks- son boltann í netið. Stólarnir reyndu að færa sig framar og fengu ágætt færi en boltinn var sendur himinhátt yfir. Leik- urinn opnaðist nú og Atli Dagur hélt Stólunum inni í leiknum með stórbrotinni markvörslu á köflum. Heima- menn urðu fyrir blóðtöku eftir 70 mínútna leik þegar Konni fyrirliði varð að yfirgefa völl- inn meiddur. Þar með fór ankerið úr liðinu og ekki leið á löngu þar til gestirnir bættu við seinna marki sínu. Það gerði Santiago Abalo, en hann vann boltann á miðsvæðinu og geystist óáreittur að víta- teignum þar sem hann náði hörkuskoti, stöngin inn, óverjandi. /ÓAB K/H – Hamrarnir 2–3 Lið Kormáks Hvatar tók á móti Hömrunum á laugardag. Eftir góða byrjun urðu Húnvetningar að bíta í það súra epli að fá á sig þrjú mörk í síðari hálfleik og tapaðist leikurinn 2-3. Lið Kormáks Hvatar því úr leik þetta sumarið. Nýráðinn þjálfari liðsins, Ingvi Rafn Ingvarsson, kom sínum mönnum yfir á 8. mínútu og hann bætti við öðru marki á 22. mínútu leiksins. Vendipunktur leiksins varð rétt fyrir hlé þegar Sigurði Aadnegard var vikið af velli og Húnvetningar því einum færri allan síðari hálfleikinn og fengu á sig þrjú mörk. /ÓAB Mjólkurbikar karla í knattspyrnu Bæði liðin af Norðurlandi vestra úr leik Lið Kormáks Hvatar sækir að marki Hamranna. MYND: JÓI SIGMARS Lið Tindastóls og Stjörnunnar mættust í 1. deild kvenna í Síkinu á laugardag. Lið Tindastóls átti ágætan leik og sigraði 83-66 eftir að hafa haft yfirhöndina nær allan leikinn. Góð barátta og fínn varnarleikur skópu sigurinn og þá náðu stelpurnar sínu mesta stigaskori í vetur í þessum leik en oft hefur liðinu gengið illa að finna körfu andstæðinganna. Eva Wium og Marín Lind voru atkvæðamestar í liði heimastúlkna. Eva var með 19 stig og tíu fráköst en Marín 26 stig og sex fráköst. Karen Lind skilaði 16 stigum og Inga Sólveig hirti 13 fráköst. Bergdís Lilja og Alexandra Eva voru bestar í liði Stjörnunnar. Lið Stólastúlkna hefur tekið framförum í vetur og er að spila töluvert skipulagðari bolta og boltinn gengur betur. /ÓAB 1. deild kvenna í körfubolta | Tindastóll – Stjarnan 83–66 Stelpurnar með góðan sigur á liði Stjörnunnar í Síkinu Stjörnustúlkum gekk illa að hemja Marínu. MYND: HJALTI ÁRNA Kjarnafæðismótið | Tindastóls – F/H/L 6–1 Sigur hjá Stólastúlkum Leikið var í Kjarnafæðismóti kvenna á laugardag en þá héldu Stólastúlkur norður á Akureyri þar sem leikið var við sameinað lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis. Leikið var á KA-vellinum. Mur var spræk eins og stundum áður og var komin með hattrick fyrir hálfleik. Hún gerði fyrstu tvö mörkin og Dom gerði þriðja mark Tindastóls úr vítaspyrnu áður en Mur fullkomnaði þrennuna rétt fyrir hlé. Síðari hálfleikur hófst á sjálfsmarki Austfirðinga eftir fyrirgjöf frá Laufeyju en síðan klóruðu sameinaðir Austfirðingar í bakkann áður en Mur bætti við fjórða marki sínu í leiknum. Á lokamínútunum fékk síðan Amber, markvörður Tindastóls, að líta rauða spjaldið en samkvæmt upplýsingum Feykis eru ekki leikbönn í þessu móti nema leikmaður sýni mikinn háskaleik eða óíþróttamannslega hegðun, sem á ekki við í þessu tilviki. Hvorki Jackie né Bryndís Rut voru í liði Tindastóls þar sem báðar urðu fyrir hnjaski í leiknum gegn Gróttu. /ÓAB hafi bæðið fundið sparifötin og fjalirnar góðu í nýafstaðinni kófpásu því spútnikliði Akur- eyringa var sökt með dúki og disk í glimrandi körfubolta- veislu í Síkinu sl. fimmtudags- kvöld. Leikmenn Tindastóls höfðu fram að þessu ekki unnið leik sannfærandi í vetur en það var annar og betri bragur á liðinu gegn Þór því þó svo að Pétur og Tomsick hafi staðið upp úr þá voru allir að skila sínu. Gamli góði liðsbragurinn virtist hafa dúkkað upp á ný. Lokatölur? Jú, 117–65! Lið Þórs hafði gert sér lítið fyrir og unnið fimm síðustu leiki sína í Dominosdeildinni og hreinlega verið magnað að fylgjast með ævintýri Akur- eyringa. Pétur var með 25 stig, 11 stoðsendingar og fimm fráköst og Stólarnir eru bara allt önnur maskína með Pétur malandi. Tomsick skilaði 23 stigum og níu stoðsendingum og Anta gerði 16 stig. Axel og Hannes Ingi, sem lítið hafði spilað í síðustu leikjum, komu sprækir til leiks og Hannes endaði með 13 stig en Axel 11, báðir settu niður þrjá þrista. Næsti leikur Tindastóls er í Hafnarfirði á fimmtudag þar sem hungraðir Haukar bíða. Hafnfirðingarnir hafa nú unnið tvo leiki í röð og gæla við það að geta bjargað sér frá falli. Sunnudaginn 2. maí nk. mætir síðan gríðarsterkt lið Keflavíkur í Síkið og hefst leikurinn kl. 20:15. /ÓAB 17/2021 5

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.