Feykir - 28.04.2021, Síða 7
Hvað geturðu sagt um liðið
sem þú spilar með á Spáni?
„Liðið sem ég spila með hefur
ekki átt gott tímabil, við erum
samt með góða leikmenn.
Stráka sem hafa spilað í yngri
landsliðum hjá Spáni, og
nokkra sem hafa spilað í ACB
deildinni sem er efsta deildin
hér á Spáni og talin vera ein
sterkasta deild í Evrópu.“
Hvað var best við að spila með
Stólunum? „Tímabilið sem ég
spilaði með Stólunum [2017–
2018] var skemmtilegasta
tímabil sem ég hef tekið þátt í.
Við vorum með mjög vel
saman sett lið og andinn í
hópnum var frábær. Svo var
ekki slæmt að hafa þessi
frábæru stuðningsmenn sem
liðið hefur að styðja okkur
bæði heima og í útileikjum.“
Hver er munurinn á að spila í
Dominos í Síkinu eða á Spáni?
„Það er munur á þessum
deildum. Hérna á Spáni eru
töluvert fleiri stórir menn í
hverju liði. Hraðinn er hins
vegar minni og meira hugsað
um taktík. Munurinn á íþrótta-
húsum hérna og heima er
mikill. Þó svo að heimavöll-
urinn hjá mínu liði sé minni en
Síkið þá eru flest lið með stórar
hallir.“
Hver er hápunktur dagsins?
„Það eru æfingarnar, bæði sem
ég tek sjálfur á morgnana
og liðsæfingarnar á kvöldin.
Finnst fátt skemmtilegra en að
æfa.“
Hvað er best við að búa í þínu
nýja landi? „Ég verð að segja
veðrið. En ég er einnig hrifinn
af afslöppuðum kúltúrnum
hérna.“
Hvað gerir þú helst í frí-
stundum? „Slaka á í sólinni
með gott hlaðvarp eða kíki á
kaffihús í miðbænum. Ég nýti
líka tímann í að læra spænsku.“
Hverju hefur COVID-19 helst
breytt fyrir þér/ykkur og
hvernig er ástandið í ykkar nýja
landi? „Það hefur ekki breytt
miklu síðan ég kom hingað,
nema ég þarf að fara í covid test
einu sinni í viku sem er orðið
vel þreytt. Það er allt opið hér
en grímuskylda alls staðar. Það
er útivistarbann eftir klukkan
23 hérna.“
Hvers saknar þú mest að
heiman? „Ég sakna bara fjöl-
skyldu og vina. Það var mjög
erfitt að fara frá kærustunni og
nýfæddum syni mínum.“
Gætir þú deilt einhverri
sniðugri eða eftirminnilegri
sögu eða uppákomu frá dvöl
þinni erlendis? „Á leiðinni til
Madridar frá Íslandi lenti ég í
smá veseni. Ég millilenti í
London en mátti ekki fljúga til
Spánar frá Englandi. Þannig að
ég þurfti að fljúga til Hollands
og þaðan til Spánar. Ferðalag
sem átti að taka sjö klukku-
stundir tók rúmlega tvo
sólarhringa. Síðan týndist
farangurinn minn sem tók
viku að skila sér. Ég lenti í
Madrid á leikdegi með engan
farangur og þurfti því að kaupa
mér körfuboltaskó. Ég mætti
rétt fyrir leik af því að ég lenti í
umferðateppu út af því að það
var allt á kafi í snjó og fólk ekki
vant því að keyra í snjó hérna.
Án þess að hafa mætt á eina
æfingu spilaði ég ellefu mín-
útur í leiknum og setti þrjá
þrista á síðustu tveimur mín-
útum leiksins og kom leiknum
í framlengingu.“
En ekki hvað? Feykir þakkar
Arnari fyrir spjallið.
Arnar fer að körfu KR-inga í Laugardalshöllinni. MYND: HJALTI ÁRNA Maltbikarmeistarar! „Tímabilið sem ég spilaði með Stólunum var skemmtilegasta tímabil sem ég hef tekið þátt í.“ MYND: HJALTI ÁRNA
Frá El Rastro flóamarkaðinum í Madrid. MYND AF NETINU
Molar um Madrid af netinu...
Sagt er að Madrid, sem ku vera önnur stærsta
borgin á svæði Evrópubandalagsins, sé borg
sem kunni að lifa. Borg sem býður upp á
ótrúlegan arkitektúr, heimsklassa gallerí,
nóg af sögu, frábæran mat og stórkostlegt
næturlíf.
Talið er að Madrid hafi sprottið upp árið 860
eða 14 árum áður en Ingólfur Arnars flúði
Noreg fyrir 101 Reykjavík. Madrid varð
höfuðborg Spánar árið 1561 en nú búa ríflega
3,2 milljónir manna í borginni og nánast
helmingi fleiri ef úthverfin eru tekin inn í
dæmið. Kannski er það vegna þess að sagt
er að nær engin borg í Evrópu geti státað að
jafn mörgum heiðríkjudögum og Madrid.
Madrid stendur 667 metra yfir sjávarmáli og
því geta veturnir verið svalir en meðalhitinn
í júlí, sem er vanalega heitasti mánuðurinn,
getur verið 32-34 gráður á gamla góða
Celsíus. Þá liggur jafnvel við að meðal Íslend-
ingurinn bráðni.
Margt er hægt að gera sér til dundurs í
Madrid annað en að borða gúrmet, skoða
listasöfn og arkitektúr. Má til dæmis heim-
sækja Warner Brothers Movie World
skemmtigarðinn, fótboltaþyrstir gætu haft
gaman af að skoða heimavöll Real Madrid
sem er jú sigursælasta fótboltalið sögunnar,
El Rastro flóamarkaðurinn er víst engum líkur
og þar má nálgast allt milli himins og jarðar
og þá þykir ekki ónýtt að svolgra í sig bjór
á veröndinni en endalaus fjöldi bara færir
viðskiptin út á gangstétt þegar veður leyfir –
sem er væntanlega oft.
Séð yfir miðborg Madrídar. MYND AF NETINU
Warner Bros Movie World skemmtigarðurinn. MYND AF NETINU
17/2021 7