Feykir - 28.04.2021, Page 10
Það er nú ekki ónýtt að hafa fyrrverandi
meistaradeildarleikmann Breiðabliks í
sjúkrateymi Tindastóls, bæði í fótbolta
og körfu en Helena Magnúsdóttir eða
Lena sjúkraþjálfari, hefur sinnt því hlut-
verki um margra ára bil. Hún starfar við
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðár-
króki en passar upp á leikmenn kvenna
og karla þess utan með sínu árangursríka
nuddi.
Á heimasíðu KSÍ má finna fótboltaferil
Lenu sem hófst hjá Breiðablik í 1. deild
kvenna árið 1994 og þar á hún alls 32
meistaraflokksleiki fram til 1999 er deildin
kallaðist Meistaradeild kvenna. Lena svarar
spurningum í Liðinu mínu.
Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska
boltanum og af hverju? -Spurningin hefði
verið miklu auðveldari í svörun ef við
værum að tala um íslensk lið þá væri það
allan daginn Tindastóll og líka kvennalið
Breiðabliks í efstu deild enda gamall
leikmaður. Þannig að í þeim leikjum þá slær
Tindastólshjartað sterkar enda frábært að
sjá stelpurnar okkar komnar á stóra sviðið
í deild þeirra bestu. En við erum að tala um
ensku og þar er það Manchester United. Í
raun var ég og hef aldrei verið gallharður
stuðningsmaður en í menntaskóla þá
héldu tveir af mínum bestu vinum með
Liverpool og þegar ég var spurð þá valdi ég
erkifjendur þeirra Manchester United og hef
haldið mig við það alla tíð síðan.
Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu?
-Auðvitað segi ég alltaf að þeir muni vinna
deildina þó svo að ég hafi oft á tíðum ekki
hugmynd um það hvar þeir séu í deildinni!
Ertu sátt við stöðu liðsins í dag? -Ef maður
hefur alltaf trú á því að liðinu gangi vel þá
hlýtur maður að vera sáttur. En miðað við
gengi liðsins í dag (þurfti að kíkja á stöðuna
til að vera viss) þá er ég nokkuð sátt, annað
sætið er ansi góður árangur.
Hefur þú einhvern tímann lent í deilum
vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Í
gamla daga lenti maður í þessum rökræðum
um Liverpool og Manchester United en í dag
er það ekki mikil rifrildi því ég enda alltaf á
því að segja að ég hafi ekki hugmynd um
liðið eins og það er í dag.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og
síðar? -Uppáhaldsleikmaður minn með
Manchester United er Ryan Giggs. Hann var
alltaf svo solid leikmaður. En ef ég mætti líka
nefna íslenskan leikmann þá set ég Margréti
R. Ólafsdóttur, leikmann Breiðabliks í fyrsta
sætið. Við spiluðum saman í Breiðablik og
traustari manneskju er ekki hægt að finna
innan vallar sem utan.
Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Því
miður, nei, þá hef ég ekki farið, en það
hefur verið á stefnuskránni í mörg ár. Það
verður að bíða betri tíma miðað við ástandið
í heiminum.
Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu?
-Já ég á bolla sem er merktur Manchester
United og er ég með hann uppi í vinnu.
Bróðir minn, sem er harður stuðningsmaður
Liverpool, gaf mér bollann eftir eina af
sínum boltaferðum til Englands.
Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldu-
meðlimi upp í stuðningi við liðið? -Það
gengur akkúrat ekkert að ala mína menn
upp sem United stuðningsmenn. Held samt
að yngri sonurinn sé að komast á bragðið
en það er ekki vegna áhrifa frá móðurinni.
Hefur þú einhvern tímann skipt um uppá-
halds félag? -Í raun ekki, það hefur alltaf
verið þannig að þú skiptir ekki um lið...
þannig að, nei auðvitað ekki.
( LIÐIÐ MITT ) palli@feykir.is
Fékk boltann beint í
höfuðið og steinlá í grasinu
Helena Magnúsdóttir heldur með Manchester United
Það fer ekkert á milli mála hvert uppáhaldsliðið er í íslenska boltanum. AÐSEND MYND
Uppáhalds málsháttur? -Þolinmæði þrautir
vinnur allar. Þetta er málsháttur sem Vanda
Sig. setti á blað fyrir mig einu sinni er hún
var minn þjálfari og þessi málsháttur á svo
vel við bæði í íþróttum og í minni vinnu.
Einhver góð saga úr boltanum? -Miðað við
hvað ég spilaði lengi með Breiðablik þá eru
til margar sögur. Ein góð er frá því er við
fórum til Portúgals í æfingarferð, þjálfarinn
var þá Jörundur Áki Sveinsson, og fannst
okkur geggjað að komast á gras svona
snemma og líka í sól. Á einni æfingunni
voru fyrirgjafir frá kantinum og horn æfð,
ég spilaði alla tíð í vörn og var það ekkert
öðruvísi í þessari æfingu. Það kom hár
bolti frá kantinum í áttina að mér og ég var
eitthvað lengi að ákveða mig hvort ég ætlaði
að sparka honum frá eða skalla sem endaði
með því að ég fékk boltann beint í höfuðið og
steinlá í grasinu. Kristrún Lilja, sóknarmaður
mikill, var við hliðina á mér og áður en hún
lagðist í grasið og skellihló þá tékkaði hún
á því hvort það væri nú ekki í lagi með mig.
Einhver góður hrekkur sem þú hefur fram-
kvæmt eða orðið fyrir? -Ég er nú ekki mikið
fyrir það að hrekkja aðra en fyrir nokkrum
árum fór ég með unglingalandsliði út í
keppnisferðalag sem sjúkraþjálfari. Ég man
ekki hvar í veröldinni við vorum en í hópnum
voru nokkrir leikmenn sem nú eru leikmenn
A landsliðskvenna í dag. Dömurnar voru
tvær og tvær saman í herbergi og eitt
herbergið var svolítið utan við sig og voru
nokkrum sinnum búnar að læsa sig úti og
í morgunmat einn daginn gleymdu þær
lyklinum að herberginu á borðinu og við
tókum lykilinn og settum gervirottu ofan í
niðurfallið í sturtunni hjá þeim. Það eina sem
sást var skottið hitt var ofan í niðurfallinu.
Svo biðum við mjög spenntar ég og
liðstjórinn í ferðinni eftir því að þær færu í
sturtu eftir æfingu og lætin sem við heyrðum
voru sko ekki á lágu nótunum. Þetta tókst
svo hrikalega vel að þær voru alla ferðina
að reyna að svara fyrir sig.
Spurning frá Vöndu Sig: -Hvert er þitt
skrítnasta augnablik sem sjúkraþjálfari
íþróttaliðanna á Króknum? -Ég held að
skrítnustu augnablikin séu samskipti
dómara við þjálfara og leikmenn. Nokkur
skondin atvik hafa komið upp, sérstaklega
á fótboltavellinum. Eitt gott var þegar Árni
Arnarson fékk krampa í báða kálfa og
dómari hleypti mér ekki inn á til að hjálpa
honum út af og til að komast út af þá skreið
Árni út af vellinum í miklum kvölum við
mikinn hlátur liðsmanna hans. Annað gott
atvik var með kvennaliðinu þegar Pétur
Björnsson var aðstoðarþjálfari, leikurinn
gekk ekki eins og við vildum og Pétur tók
lyklana sína og henti þeim í tartanið með
nokkrum vel völdum orðum. Dómarinn kom
hlaupandi að til að spjalda Pétur og spurði
hann til nafns og hann með sinni djúpu háu
rödd sagði hátt og snjallt „ég heiti Pétur
Björnsson“ dómarinn sem ekki þekkti Pétur
hálf datt aftur fyrir sig því honum brá svo við
þetta háa dimma svar. Við hin skemmtum
okkur mjög vel við þetta atvik.
Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum
spurningum? -Þjálfara meistaraflokks karla
Tindastóls í körfuboltanum, Baldur Þór
Ragnarsson.
Hvaða spurningu viltu lauma að viðkom-
andi? -Hvaða sigur Tindastóls undir þinni
stjórn er sá sætasti og af hverju?
Heilbrigðisráðuneytið
kynnti í gær áætlun um
afléttingu innanlandstak-
markana vegna COVID-19 í
áföngum með hliðsjón af
framgangi bólusetningar.
Áætlað er að aflétta megi
öllum innanlandstakmörk-
unum síðari hlutann í júní
þegar um 75% þjóðarinnar
hafi fengið a.m.k. einn
bóluefnaskammt.
Samkvætt frétt á vef
stjórnarráðsins er afléttingar-
áætlunin í fjórum skrefum
og tekur mið af framgangi
bólusetningar.
Fyrsta skref afléttingar
hefur þegar verið tekið með
tilslökunum á samkomutak-
mörkunum og í skólastarfi
en í maí er gert ráð fyrir að
a.m.k. 50% landsmanna hafi
fengið bólusetningu. Þá verði
unnt að rýmka fjöldatak-
markanir til muna, sem verði
einhvers staðar á bilinu 100
til 1.000 manns. Á síðari
hluta júní er gert ráð fyrir því
að öllum takmörkunum
verði aflétt innanlands enda
verði búið að bólusetja um
75% landsmanna að minnsta
kosti einu sinni. /PF
Aflétting innanlands-
takmarkana í áföngum
Engar
takmarkanir
í lok júní
Á aðalfundi Félags eldri
borgara í Húnaþingi, sem
haldinn var á Blönduósi
þann 21. apríl sl., var Ás-
gerður Pálsdóttir endur-
kjörinn formaður til næstu
tveggja ára. Gréta Björns-
dóttir og Ragnheiður
Þorsteinsdóttir voru einnig
endurkjörnar í aðalstjórn.
Húni.is greinir frá því að
vegna Covid-áhrifa hafi starf
félagsins að mestu legið niðri
síðasta ár en vonir standi til
að birta fari til í þeim efnum.
Fullbókuð er ferð á Snæfells-
nes í lok ágúst og styttri ferðir
í undirbúningi. Ferðanefnd
var kosin til eins árs en hana
skipa Sigrún Grímsdóttir,
Kolbrún Zophoníasdóttir,
Magnús Ólafsson, Bóthildur
Halldórsdóttir og Ágúst Sig-
urðsson. Félagsmenn eru nú
rúmlega 130./PF
Aðalfundur Félags eldri
borgara í Húnaþingi
Ásgerður
endurkjörin
10 17/2021