Feykir - 25.08.2021, Blaðsíða 3
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað
starfsfólks, stuðning til náms og
heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum,
snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.JAFNLAUNAVOTTUN
2019–2022
LAUS STÖRF
í VARMAHLÍÐ
Starfsfólk nýtur góðra afsláttarkjara
og styrks til heilsueflingar.
Nánari upplýsingar hjá verslunarstjóra.
Sótt er um á olis.is
Umsóknarfrestur til og með 6. september
Hæfniskröfur
• Snyrtimennska og reglusemi
• Jákvæðni, dugnaður, þjónustulund
og hæfni í mannlegum samskiptum
VIÐ LEITUM AÐ
TRAUSTU STARFSFÓLKI
Við leitum að starfsfólki í fullt starf
eða hlutastarf á þjónustustöð Olís í
Varmahlíð. Störfin felast í almennri
afgreiðslu í verslun og veitingum,
vörumóttöku, áfyllingu, þrifum,
þjónustu við viðskiptavini og öðru
tilfallandi.
Merkilegur fornleifafundur á Þingeyrum
Telja að klaustrið sé fundið
Fyrir skömmu greindi fréttastofa RÚV frá því að
fornleifafræðingar, sem vinna að rannsóknum á
Þingeyraklaustri, hafi fundið þar merkilega gröf
sem talin er tilheyra Jóni Þorleifssyni,
klausturhaldara á Þingeyrum, en hann lést árið
1683. Í gröfinni fundust m.a. gullhringur og
veglegt höfuðfat.
„Það er ekki oft sem það finnst gripur úr gulli
eða hringar eins og þessi, og eins er þetta höfuðfat
mjög merkilegt þannig að ég tel þetta vera með
merkilegri fundum síðari ára í fornleifafræð-
inni,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í
fornleifafræði við Háskóla Íslands, í viðtali við
Óðin Svan Óðinsson, fréttaritara RÚV.
Rannsóknir á Þingeyraklaustri hófust árið 2014
með það að leiðarljósi að komast að því hvar
klaustrið stóð. Steinunn telur að búið sé að finna
klaustrið og ýtir þessi merkilegi fundur undir þá
kenningu.
Ástæðan fyrir því að maðurinn í gröfinni er
talinn vera Jón Þorleifsson er sú að munirnir sem
fundust á honum eru taldir gefa vísbendingu um
það.
„Þegar gröfin var opnuð, þá kom í ljós að þessi
einstaklingur sem þarna var grafinn bar hring úr
gulli, þetta er svona innsiglishringur sem er með
ákveðnu tákni og það leiddi okkur á sporið um
hver þetta gat verið. Hann var líka með forláta húfu
á höfði,“ segir Steinunn.
Sjá nánar á Feykir.is. /SMH
Gullhringurinn og höfuðfatið
MYND: ÞINGEYRAR FORNLEIFARANNSÓKN
Hvammstangi International Puppetry Festival
Alþjóðlega brúðulista-
hátíðin á Hvammstanga
Alþjóðlega brúðulistahátíðin
Hvammstangi International
Puppetry Festival – HIP Fest –
fer fram í annað sinn dagana
8. - 10. október 2021. Á
hátíðina koma á þriðja tug
erlendra listamanna frá átta
löndum sem bjóða upp á
fjölda sýninga og vinnusmiðja,
auk fyrirlestra og kvikmynda-
sýninga með umræðum við
listamennina á eftir á meðan á
hátíðinni stendur.
HIP Fest er einstök viðbót í
menningarlíf landsmanna enda
eina brúðulistahátíð landsins.
HIP Fest var valinn menningar-
viðburður ársins á Norðurlandi
vestra árið 2020 og skipu-
leggjandi hátíðarinnar, Hand-
bendi – Brúðuleikhús, er nú-
verandi Eyrarrósarhafi en
Eyrarrósin eru verðlaun sem
veitt eru framúrskarandi menn-
ingarverkefni á landsbyggðinni.
Þrátt fyrir verulegar sam-
komutakmarkanir á hátíðinni í
fyrra tókst hún einstaklega vel
við mikla ánægju þátttakenda
og áhorfenda. Brúðulistin er
fjölbreytt og fornt listform sem
stöðugt haslar sér meiri völl í
menningarlífi landsins. Á hátíð-
inni má líta fjölbreyttar sýningar
fyrir alla aldurshópa, sem nýta
sér öll blæbrigði listformsins.
Miðasala fer fram á tix og
dagskrá hátíðarinnar má
gaumgæfa á heimasíðu hennar,
thehipfest.com. /SMH
Nýr forstöðumaður Árvistar
Sigríður Inga ráðin
Ráðinn hefur verið nýr
forstöðumaður Árvistar á
Sauðárkróki, Sigríður Inga
Viggósdóttir, og tekur hún við af
Rögnu Fanneyju Gunnarsdóttur.
Á heimasíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar kemur fram að
Sigríður Inga sé með B.Sc próf í
íþróttafræði og hafi víðtæka
reynslu af störfum með börnum
á grunnskólaaldri.
Í færslu sveitarfélagsins
kemur einnig fram að Sigríður
hefur verið verkefnisstjóri Vina-
liðaverkefnisins undanfarin ár
sem og stýrt starfi í Húsi
frítímans og séð um skipulag á
starfi í Sumar Tím í Skagafirði.
Sigríður hefur reynslu af starfi
skrifstofustjóra hjá Körfuknatt-
leikssambandi Íslands sem og
sviðsstjórastarfi á vegum Íþrótta
– og Ólympíusambands Íslands
og hefur einnig sinnt körfu-
boltaþjálfun barna hjá Tinda-
stóli.
Árvist er frístundaheimili í
húsnæði Árskóla fyrir nemend-
ur í 1.–4. bekk skólans. /PF
Heimili fatlaðs fólks við Skúlabraut
Alma Dögg
nýr forstöðumaður
Alma Dögg Guðmundsdóttir
hefur verið ráðin forstöðu-
maður á heimili fatlaðs fólk við
Skúlabraut á Blönduósi.
Alma Dögg er með BA gráðu
í þroskaþjálfafræði frá Háskóla
Íslands en hefur einnig lokið
MSc námi í atferlisfræðum frá
University of Kent. Þá hefur
Alma Dögg lokið margvíslegum
námskeiðum sem tengjast
störfum hennar undanfarin ár.
Að loknu námi hefur Alma
Dögg starfað sem atferlisfræð-
ingur í geðheilsuteymi Tauga-
þroskana hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, hefur
einnig m.a. starfað hjá Vel-
ferðarsviði Reykjavíkurborgar
sem þroskaþjálfi og atferlis-
fræðingur. /Fréttatilkynning