Feykir - 25.08.2021, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Pepsi Max deild kvenna – Þór/KA Tindastóll 1-0
Tilvera Tindastóls
tæp í toppdeildinni
Lið Þórs/KA tók á móti Tindastólsstúlkum
þriðjudagskvöldið 17. ágúst sl. Bæði lið ætluðu
sér að selja sig dýrt enda um hörkuleik að ræða,
nokkuð um pústra og glímutök.
Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði fyrir
Akureyringa á 19. mínútu með ansi laglegu
einstaklingsframtaki fyrir framan vítateiginn og
hárnákvæmu skoti framhjá annars góðum mark-
manni Stóla. Þetta var eina mark leiksins þó
möguleikarnir væru nokkir til að bæta við. Þegar
leik var við það að ljúka fengu Norðankonur
umdeilt víti sem dæmt var á Kristrúnu innan
vítateigs er hún virtist fara í boltann og síðan í
manninn. Dómari var ekki á sama máli og Feykir
og benti ákveðið á vítapunktinn. Lukkudísirnar
voru ekki með vítaskyttunni sem skaut í þverslá og
varnarmenn Stóla bægðu hættunni frá.
Heilt yfir var leikur Stóla ágætur og mun betri í
seinni hálfleik þó, hraðari bolti og meiri ákveðni
og harka. Með örlítilli heppni hefði verið hægt að
koma með eitt stig í Skagafjörðinn. Stólastúlkur
sitja nú á botni deildarinnar með 11 stig en rétt
fyrir ofan þær eru Keflavík og Fylkir með 12 stig og
því ljóst að botnbaráttan verður spennandi á
lokasprettinum þar sem fjórar umferðir eru eftir af
mótinu.
Næsti leikur Tindastóls er gegn toppliði Vals á
Hlíðarenda í kvöld, 25. ágúst. /PF & SMH
Knattspyrna karla
Lið Tindastóls á botni 3. deildar
Það virðist allt ganga á
afturfótunum hjá karlaliði
Tindastóls sem hefur tapað
tveimur af sínum síðustu
leikjum frekar illa og situr nú á
botni deildarinnar með 14 stig.
ÍH – Tindastóll 8-0
Strákarnir í Tindastól gerðu sér
ferð suður í Hafnarfjörð mið-
vikudaginn 18. ágúst þar sem
ÍH tók á móti þeim. Liðin voru
með jafnmörg stig fyrir leikinn,
voru í tíunda og ellefta sæti
deildarinnar, og það mátti því
reikna með hörkuleik og hasar.
7-0 í hálfleik fyrir heimamenn
var ekki eitthvað sem menn sáu
fyrir sér. Lokatölur 8-0 fyrir ÍH
og eitt versta tap í sögu Tinda-
stóls döpur staðreynd.
Tindastóll – Ægir 1-3
Tindastóll og Ægir úr
Þorlákshöfn mættust síðan á
fagurgrænum Sauðárkróksvelli
sunnudaginn 22. ágúst sl. Það
reyndist gestunum alltof auðvelt
að næla í stigin þrjú, gerðu tvö
ódýr mörk í fyrri hálfleik og
Stólarnir virkuðu aldrei líklegir
til að trufla þá verulega í síðari
hálfleik. Lokatölur 1-3.
Það eru fjórar umferðir eftir
af mótinu og því ennþá mögu-
leiki á því að bjarga sér frá því að
spila í neðstu deild á næsta ári en
til þess þurfa Tindastólsdrengir
að girða sig í brók. Feykir hefur
þó fulla trú á okkar mönnum og
er bjartsýnn á þrjú stig á laugar-
daginn nk. þegar Stólarnir
heimsækja Sindra á Hornafirði.
4. deild karla D-riðill
Samherjar – K/H 0-1
Lið Kormáks/Hvatar spilaði
síðasta leik sinn í riðlakeppni 4.
deildar laugardaginn 21. ágúst
sl. en þá héldu Húnvetningar í
Eyjafjörðinn þar sem þeir mættu
Samherjum á Hrafnagilsvelli.
Það var svo sem ekki mikið
undir annað en heiðurinn því
sæti Kormáks/Hvatar í
úrslitakeppni 4. deildar var
löngu tryggt. Það fór svo að
stigin þrjú fóru með Hún-
vetningum heim en lokatölur
voru 0-1. /ÓAB & SMH
Bræðurnir Bragi og Hólmar Skúlasynir á
fullu spani með Stólunum. MYND: ÓAB
Síðasta umferðin í 4. deild
karla fór fram um síðustu
helgi og þá varð ljóst hvaða
lið mætast í úrslitakeppninni
sem hefst nú á föstudaginn.
Lið Kormáks/Hvatar hafði
þegar tryggt sæti sitt í úrslita-
keppninni fyrir lokaumferð-
ina og hefur spilað vel í
sumar. Lið Húnvetninga fær
hins vegar verðugt verkefni í
átta liða úrslitum en þá etja
þeir kappi við lið Álftaness
og fer fyrri leikur liðanna
fram á Blönduósi 27. ágúst
og hefst kl. 18:00. „Ég held að
það megi búast við skemmti-
legri viðureign tveggja góðra
liða þar sem allt getur gerst.
Ef við mætum klárir þá hef ég
ekki miklar áhyggjur,“ segir
Ingvi Rafn Ingvarsson, spil-
andi þjálfari Kormáks/Hvat-
ar, í spjalli við Feyki.
„Álftanes er vel spilandi
lið, bæði með unga leikmenn í
bland við nokkra reynslumeiri.
Hins vegar höfum við fulla trú á
okkur sjálfum og erum ekki að
pæla alltof mikið í liðunum sem
við fáum,“ bætir Ingvi við.
Hvað er það sem hefur helst
glatt þjálfara Kormáks/
Hvatar í sumar? „Fyrst og
fremst hef ég verið virkilega
sáttur við stigasöfnun liðsins.
Við náðum fyrsta markmiði
okkar, sem var að tryggja
sæti í úrslitakeppninni, og
erum við ánægðir með það.
Spilamennska liðsins hefur
verið nokkuð góð í flestum
leikjum. Varnarleikurinn hef-
ur verið sterkur í bland við
fínasta sóknarleik oft á tíðum.
Þrátt fyrir það erum við alltaf
að reyna að verða betri sem
lið og hef ég fulla trú á að við
eigum eftir að gera enn betur í
úrslitakeppninni. Þá hef ég verið
þakklátur fyrir stuðninginn úr
stúkunni í sumar og vona ég
að stuðningurinn haldi áfram út
úrslitakeppnina.“
Það virðast ansi mörg lið í
úrslitakeppninni hafa á að
skipa sterkum hópi. Fer góðum
liðum í 4. deild fjölgandi? „Ég
myndi segja það já. Á hverju
tímabili eru að bætast við lið
sem eru tilbúin að skrúfa upp
metnaðinn til að komast upp
um deild þó leiðin sé erfið. 4.
deildin er því alltaf að verða
sterkari, sem er fagnaðarefni,
en þá eru sterkustu liðin að
fá enn fleiri alvöru leiki. Þá tel
ég að það sé mikið af öflugum
leikmönnum í deildinni sem
gætu auðveldlega verið að
spila í efri deildum.“
Getumunur á sterkari og
veikari liðum 4. deildar er
mikill. Er kominn tími á að
fjölga liðum í 3. deild og
skipta henni í tvennt eða
ertu sáttur við skipulagið á
mótshaldinu eins og það er í
dag? „Auðvitað er alltaf mikil
skemmtun í úrslitakeppninni
sem 4. deildin hefur upp á að
bjóða. Hins vegar er leiðin upp
í 3. deild oft erfið þar sem liðin
þurfa að vera stöðug í gegnum
deildina til að tryggja sér sæti í
úrslitakepninni. Þegar þangað
er komið byrjar í raun ný
keppni þar sem liðin mega ekki
mísstíga sig til að koma sér upp
um deild.
Ég er ekkert endilega á því
að það þurfi að fjölga í 3. deild
en mín pæling er hvort væri
ekki hægt að fjölga deildum á
Íslandi. Þá væri hægt að mynda
4. deild með sterkustu liðunum
úr henni, sem myndi þá fjölga
fleiri alvörum leikjum fyrir liðin.
Leiðin upp í 3. deild yrði þá
auðveldari en þá myndu efstu
tvö liðin úr deildinni komast
beint upp. Þá myndu veikari
liðin sem eru í 4. deild núna
mynda þar með 5. deild.“
Eru allir leikmenn heilir fyrir
átökin í úrslitakeppninni?
„Það eru engin alvarleg meiðsli
í hópnum. Einungis einhver
smávægileg meiðsl en eins
og alltaf verða menn fljótir að
gleyma því þegar þeir stíga inn
á völlinn í eins stórum leikjum
og eru framundan fyrir okkur.
Það eru því allir klárir,“ segir
Ingvi Rafn að lokum. /ÓAB
Ingvi Rafn þjálfari Kormáks/Hvatar í spjalli
Baráttan við Álftanes
leggst vel í Ingva Rafn
Ingvi Rafn á ferðinni með liði Kormáks/Hvatar fyrr í sumar. MYND: ÓAB
Meistaramót Íslands í frjálsum í öldungaflokki
Feðgarnir Kalli og Teddi fóru mikinn
Meistaramót Íslands í frjálsum
íþróttum í öldungaflokki fór
fram á Sauðárkróksvelli
dagana 14. - 15. ágúst.
Keppendur Ungmennasam-
bands Skagafjarðar, UMSS,
voru sigursælir á mótinu og
hrepptu 21 Íslandsmeistaratitil.
Karl Lúðvíksson keppti í flokki
karla 70 til 74 ára og féllu hon-
um sjö Íslandsmeistaratitlar í
skaut. Hann sigraði í spjótkasti,
kringlukasti, kúluvarpi, lang-
stökki, stangarstökki, hástökki
og 100 metra hlaupi.
Theodór Karlsson hreppti
átta Íslandsmeistaratitla en hann
keppti í flokki 45 til 49 ára og
vann spjótkast, kringlukast,
kúluvarp, þrístökk, langstökk,
stangarstökk og hástökk.
Jón Kolbeinn Jónsson vann
þrjá Íslandsmeistaratitla; kúlu-
varp, langstökk og hástökk.
Einnig varð hann í öðru sæti í
spjótkasti og þriðja sæti í 100 og
200 metra hlaupi. Jón keppti í
flokki 35 til 39 ára.
Þorkell Stefánsson keppti
einnig í flokki 35 til 39 ára og
varð hann þrefaldur Íslands-
meistari í 100, 200 og 400 metra
hlaupi.
Þess má geta að Karl Lúð-
víksson og Theodór Karlsson
eru feðgar og voru einu feðgarnir
á mótinu svo vitað sé.
Glæsilegur árangur hjá okkar
mönnum á MÍ öldunga og ljóst
að framtíðin er björt hjá UMSS í
frjálsum íþróttum öldunga.
Það er einnig gaman að segja
frá því að Helgi Hólm sem
keppir fyrir Keflavík setti
Íslandsmet í hástökki karla 80-
84 ára þegar að hann hoppaði
yfir 1.16 metra./SMH
32/2021 5