Feykir - 25.08.2021, Blaðsíða 10
Norðvesturkjördæmi 1. sæti – Bergþór Ólason 2. sæti – Sigurður Páll Jónsson
Við gerum það sem við
segjumst ætla að gera
Árið 1970 kaupir American
Motor Corporation (AMC)
Kaiser Jeep og heldur áfram
framleiðslu jeppans til 1972
við miklar vinsældir. En árið
1973 eru gerðar breytingar á
jeppanum, settur var 6cyl
mótor í ásamt ýmsu öðru og
var nafninu breytt í
Keyrður aðeins 25.596 km
EINS MANNS RUSL ER ANNARS FJÁRSJÓÐUR
Samgöngusafnið í Stóragerði
Nýuppgerður Jeepster árgerð 1967. MYNDIR AÐSENDAR
UMSJÓN
siggag@nyprent.is
Commando. Þessar fram-
leiðslubreytingar entust ekki
lengi því eftir eitt ár var fram-
leiðslunni hætt.
Þessi tiltekni Jeepster er
árgerð 1967 og er keyptur nýr
af Garðari Hallgrímssyni, svæf-
ingalækni á Siglufirði, sem átti
hann meðan hann lifði en eftir
hans daga eignast sonur hans,
Steingrímur Garðarsson, bíl-
inn. Steingrímur sá fram á að
hann myndi aldrei ná að klára
uppgerðina því hann var ein-
ungis búinn að taka neðri
hlutann í gegn og ryðbæta en
efri hlutinn var allur eftir.
Steingrímur tók því þá
ákvörðun að afhenda Sam-
göngusafninu í Stóragerði
bílinn og var hann kominn á
verkstæði safnsins þann 3.
ágúst 2008, þá ekinn aðeins
25.596 km. Á þessum tíma var
Gunnar í mörgum verkefnum
og sá ekki fram á að komast í
verkið strax og fékk bíllinn því
að standa í nokkurn tíma áður
en hann byrjar á því að vinna í
húsinu því það þurfti að smíða
nýtt gluggastykki að framan í
bílinn. Næstu árin vann hann
svo í bílnum á milli annarra
verka. Má þá nefna að samhliða
þessum var hann að vinna í
Kolkuósjeppanum og byggja
nýja skemmu en það var ekki
fyrr en haustið 2012 sem hann
einbeitti sér að því að klára
bílinn fyrir sprautun. Páll
Magnússon á Hofsósi tók það
verkefni að sér og gerði af sinni
einstöku snilld og kláraðist
uppgerðin veturinn 2013.
Jeepster kom fyrst á markað árið 1966 frá fyrirtækinu Kaiser
Jeep og átti að vera helsti keppinautur Toyota Landcruiser, Scout
og Ford Bronco. Þeir komu í nokkrum útfærslum, hardtop (eins
og á mynd), pickup og með blæju og var með 75 hestafla 4cyl
hurricane vél. Sú vél kom í staðin fyrir „Go Devil Engine“
sem voru notaðar í seinni heimsstyrjöldinni í öllum
Jeep Willis jeppum.
Páll Magnússon við sprautun og Gunnar Þórðarson fylgist með.
Nýsprautuð grind Jeepstersins.
10 32/2021