Feykir - 25.08.2021, Síða 6
Hvernig nemandi varstu? Úff.
Ég var skapmikill, hávær og
prakkari allt í senn. En á sama
tíma ágætlega metnaðarfullur.
Bara plís ekki spyrja Ingu
Huld og Huga Halldórs sömu
spurningar!
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Það var
púðursykurs marengs frá ömmu
Laugu sem var í ruglinu góð!
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Það breyttist
nokkurn veginn dag frá degi.
En gjarnan þegar ég og Sævar
bróðir vorum að keppa í hinum
ýmsu greinum í Hólatúninu átti
ég það til að lýsa þar til ég hætti
eða varð of tapsár, þannig að
ætli það hafi ekki legið beinast
við að ég kæmi til með að starfa
við íþróttaumfjöllun einn daginn.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Fatasláin í forstofunni heima var
notuð daglega í körfubolta. Við
tróðum hana niður ca. þúsund
sinnum.
Besti ilmurinn? Ætli það sé ekki
bara þegar Weber-kóngurinn er
búinn að henda einhverjum vel
völdum sneiðum úr efstu hillu
hjá KS á grillið.
Hvar og hvenær sástu núver-
andi maka þinn fyrst? Í
íþróttahúsinu að Varmá hér í
Mosfellsbæ. Vorum bæði, og
erum enn, fastagestir þar.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Fyrsta
lagið sem ég rúntaði við var
Mr. Blue Sky með Electric Light
Orchestra. Annars er ég alæta á
tónlist og gott ef næsta lag þar á
eftir hafi ekki verið með Bubba.
Hvernig slakarðu á? Í faðmi
fjölskyldunnar eða úti á golf-
velli.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Ef það er skíða-
keppni í sjónvarpinu þá fer
hún yfirleitt ekki fram hjá mér.
Annars, því miður, hef ég staðið
sjálfan mig að því að horfa á
Love Island. Skil ekki hvernig
það orsakaðist en á oft erfitt með
að slökkva á því.
Hver er besta bíómyndin?
Coach Carter, veit ekki
hvað það er en hún
er inspírerandi og vel
leikin. Smúllinn stendur
alltaf fyrir sínu.
Hvaða íþróttamanni
hefurðu mestar
mætur á? Konan
mín er geggjaður
íþróttamaður,
erum í vand
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Gunnar Birgisson.
ÁRGANGUR: 1994.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Á yndislega kærustu sem heitir Velina og saman
eigum við rúmlega eins og hálfs árs gamla stelpu sem heitir Anna
Sóley.
BÚSETA: Mosfellsbær.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Þorgerður Sævarsdóttir
og Birgir Gunnarsson eru foreldrar mínir, alinn upp í Hólatúninu á
Sauðárkróki. Þvílík gata!
STARF: Starfa sem íþróttafréttamaður hjá RÚV og knattspyrnuþjálfari
hjá Breiðabliki.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Sem stendur er ég að ranka við mér eftir alla
törnina í kringum Ólympíuleikana. Forgjöfin hefur staðið í stað og það
væri gaman að ná að grípa í golfkylfur áður en hann tekur að hausta.
Gunnar Birgis
ræðum með að finna pláss
fyrir alla bikarana sem hún
hefur lyft í blakinu í gegnum
tíðina. Erlendis hugsa ég að
skíðamaðurinn Petter Northug
skori alltaf hátt hjá mér.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Ég vil
svolítið gera hlutina þegar það
hentar mér. Einhverjir myndu
kalla þetta frestunaráráttu – ég
hlusta ekki á það.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ég hlýt að fá að telja
grillið með þarna, annars er ég
í veseni!
Hættulegasta helgarnammið?
Það er líklega fjandans bragða-
refurinn.
Hvernig er eggið best? Skrambl-
að með smá salti og pipar.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu? Það er líklega
títtnefnd frestunarárátta sem ég
vil þó meina að sé algjört rugl.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Neikvæðni og
svartsýni.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Stefndu á tunglið og
þú gætir gripið stjörnu í leiðinni.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Ætli það sé ekki bara
úr leikskólanum á Glaðheimum
í góðu glensi með Ingva Rafni,
Val Orra og Auðunni Blöndal,
street bolti þar sem lítið var
gefið eftir.
Þú vaknar einn morgun í lík-
ama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera
og hvað myndirðu gera?
Ætli maður tæki ekki LeBron
James og myndi skrifa undir
hjá Tindastóli í körfunni. Hann
myndi svo ranka við sér næsta
dag með óuppsegjanlegan
samning og græja loks titilinn
heim í fjörðinn fagra.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Ég er lítið
í bókunum nema það sé tengt
þjálfun eða sjálfsævisögum.
Síðasta bók sem ég las var
Talent Code eftir Daniel Coyle.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Bæng!
Hvaða þremur persónum
vildirðu bjóða í draumakvöld-
verð? Ég væri til í að heyra í
liðsmönnum ABBA sveitarinnar
og spyrja þau hvað fór úrskeiðis.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Svo sem
fátt sem ég myndi breyta. En ég
væri til í að reyna að koma í veg
fyrir alla meiðslasöguna mína í
íþróttum á einhvern hátt.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Bingó á borði fjögur.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
hvar myndirðu lenda? Akkúrat
núna þrái ég að komast í gott
frí, bara þar sem er sól og næs.
Að vetri til væri svarið alltaf
Noregur.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en
þú gefur upp öndina: Væri til
í að ferðast hringinn í kringum
heiminn, komast á Ólympíuleika
og fara holu í höggi.
Gunnar í Mosó.AÐSEND MYND
6 32/2021