Morgunblaðið - 22.04.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.04.2022, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 COSTA DEL SOL ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 30. APRÍL - 09. MAÍ ALUASUN COSTA PARK 4* VERÐ FRÁ93.900 KR FJÖLSKYLDUHERBERGI MEÐ HÁLFU FÆÐI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN 30. APRÍL - 09. MAÍ HOTEL PALMASOL 3* VERÐ FRÁ67.500 KR TVÍBÝLI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Samfylkingin í Reykjavík kynnti kosningaáherslur sínar fyrir borg- arstjórnarkosningarnar í Gamla bíói í gær. Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri kynnti þar helstu áherslur flokksins. „Það er augljóst að bar- áttan verður mjög stutt og snörp því að það er stutt í kosningar. Við erum að fara á fullt núna að tala fyrir okk- ar málum og hitta borgarbúa, heim- sækja vinnustaði og ganga í hús. Við byrjum í Breiðholti núna um helgina,“ segir Dagur í samtali við Morgunblaðið. Spurður um helstu stefnumál seg- ir Dagur mikla áherslu lagða á hús- næðismálin. „Við erum að tvöfalda þær lóðir sem eru til ráðstöfunar á næstu fimm árum og tvöfalda upp- bygginguna sem getur orðið. Við leggjum áherslu á að hluti hennar verði óhagnaðardrifinn á vegum fé- laga sem eru þá að byggja fyrir tekjulægri, stúdenta og eldra fólk.“ Hann segir Samfylkinguna kalla eft- ir húsnæðissáttmála fyrir höf- uðborgarsvæðið. Þá eru málefni barna og barna- fólks ofarlega á lista Samfylking- arinnar. „Við viljum hækka frí- stundakortið í 75 þúsund á ári og 100 þúsund fyrir þá sem eru tekjulægst- ir til að tryggja jafnt aðgengi allra að frístundum,“ segir Dagur. Dagur segir loftslagsmálin skipta miklu máli. „Loftslagsmálin eru svona grænn þráður í gegnum þetta allt saman af því að áætlanir okkar byggja á samgöngugreiningu og þar er lykilatriði að koma borgarlínunni til framkvæmda, koma Miklubraut og Sæbraut í stokk og bæta þannig lífsgæðin um alla borg.“ „Ég held að þetta séu rosalega mikilvægar kosningar vegna þess að á næsta kjörtímabili fara borg- arlínan og Miklubrautarstokkur í framkvæmd, margar framkvæmdir klárast en aðrar fara í gang,“ segir hann. „Ég held að það sé hætt við því að mjög mikið af þessu tefjist ef fólk sem er með óljósa framtíðarsýn kemst að og ef einhver ætlar sér að kollvarpa stefnunni er hætt við því að húsnæðisuppbygging tefjist, taf- irnar í umferðinni verði meiri og það verði dýrara.“ Vilja fjárfesta í núverandi hverfum en ekki dreifa byggð „Við leggjum áherslu á að fjár- festa í hverfunum okkar þar sem fólkið býr en ekki að færa fókusinn og fjármagnið út í hverfi þar sem enginn býr. Eitt af neikvæðu atrið- unum við að dreifa byggð er að þá dreifum við fjármagninu líka, við viljum fjárfesta í íþróttamann- virkjum, sundlaugum og slíku í nú- verandi hverfum,“ segir Dagur. Spurður hvort eitthvað hefði get- að farið betur á kjörtímabilinu segist Dagur hafa viljað að mikilvægu hlut- irnir hefðu gerst enn hraðar. „Það er búinn að vera slíkur kraftur í ýmsu þrátt fyrir Covid og um tíma hafði ég áhyggjur af því að það myndi tefja fyrir íbúðauppbyggingu og öðru slíku en þvert á móti sjáum við að þetta eru algjör metár í slíkri uppbyggingu.“ Óviss með Framsókn Framsóknarflokkurinn boðaði ný- lega uppbyggingu í Keldnalandi sem Dagur hefur gagnrýnt. Segir hann það vera óraunhæft að byggja upp þar á næstu fimm árum. Dagur seg- ist ekki viss um hvort hann sjái fram á samstarf með Framsókn- arflokknum, og að flokkurinn yrði að vita í hvorn fótinn ætti að stíga. Mest áhersla lögð á húsnæðismálin - Borgarlína komi til framkvæmda á næsta kjörtímabili Morgunblaðið/Óttar Geirsson Kosningar Dagur segir húsnæðismálin ofarlega á lista Samfylkingarinnar. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir afskipti lögreglu af saklausum unglingspilti, tvisvar á innan við sól- arhring við leit að strokufanganum, vera afar óheppileg. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir hinum 20 ára Gabríel Douane Boama sem strauk úr Héraðsdómi Reykja- víkur á þriðjudag. Lögreglan hafði í gær í annað sinn afskipti af unglingspilti í tengslum við leitina að strokufanganum og hefur móðir drengsins kallað eftir opinberri afsökunarbeiðni frá lög- reglu. Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðv- aði strætisvagn á miðvikudag vegna tilkynningar um að Gabríel væri um borð í honum en í ljós kom að um annan dreng var að ræða. Átti rík- islögreglustjóri í framhaldinu fund með drengnum og móður hans. Hafði lögregla síðan aftur afskipti af honum á fimmtudagsmorgun. Ráðherra segir að hann muni eiga samtal við ríkislögreglustjóra og óska eftir viðbrögðum lögreglu vegna afskipta hennar af drengnum. Hann tekur einnig fram að starfandi eftirlitsnefnd sem fylgist með störf- um lögreglu taki á slíkum málum ef tilefni er til þess. „Menn þurfa að hafa það í huga að þetta eru erfiðar aðstæður sem lögreglan vinnur við og það þarf að sýna því skilning.“ Gunnar Hörður Garðarsson, sam- skiptastjóri ríkislögreglustjóra, seg- ir fjarskiptamiðstöð vera til skoðun- ar þar sem tilkynningar koma og þá hvort hægt sé að bera fyrr kennsl á rangar ábendingar. Lögreglan hvetur til varkárni í samskiptum um þetta mál og önnur sem tengjast minnihlutahópum. For- dómar eigi aldrei rétt á sér og leit að hættulegu fólki megi ekki verða til þess að minnihlutahópar upplifi ótta. Lýsa enn eftir strokufanganum - Höfðu afskipti af sama unglingspilti tvisvar á sólarhring Morgunblaðið/Eggert Lögreglan Enn hefur ekki tekist að finna strokufangann sem slapp. Píratar hófu formlega kosningabar- áttu sína á Kjarvalsstöðum í gær, þar sem þeir kynntu helstu stefnu- mál sín fyrir komandi borgarstjórn- arkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, sagði í samtali við mbl.is í gær að helstu stefnumál Pírata fyr- ir næsta kjörtímabil mætti setja í þrjá flokka, það er að borgin verði fagleg og nútímaleg lýðræðisborg, græn og barnvæn þekkingarborg og aðgengileg og fjölbreytt mann- réttindaborg. Dóra sagði að hún teldi það mik- ilvægast á næsta kjörtímabil að hraða uppbyggingu borgarlínu og halda áfram þéttingu byggðar með því að fjölga íbúðum. Þá mótuðu loftslagsmál alla ákvarðanatöku í borgarstjórn. Þar skipti miklu máli að hennar mati að efla samgöngur í borginni. „Sem dæmi viljum við fá aftur næt- urstrætó og veita börnum undir 18 ára ókeypis aðgang í strætó.“ Gagnsæi og lýðræði Að sögn Dóru standa Píratar fyrst og fremst fyrir gagnsæi, lýð- ræði og heiðarleg stjórnmál. „Það þýðir að við gefum engan afslátt, við erum ekki tilbúin í málamiðlanir eða að svíkja okkar kjarna-prinsipp, hvort sem það varðar loftslagsmál, mannréttindamál eða baráttuna gegn spillingu,“ sagði Dóra. Hún sagðist einnig vera jákvæð fyrir því að halda áfram núverandi meirihlutasamstarfi og sagði það hafa gengið vel. „Við höfum í sam- einingu náð fram miklum krafti í þeim málaflokkum sem sameina þessa flokka,“ sagði Dóra. Sagði hún að sá munur sem væri á meirihlutaflokkunum hefði ekki truflað samstarfið og tók fram að það efli margbreytileika og stuðli að upplýstri og lýðræðislegri ákvarð- anatöku. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Píratar Dóra Björt Guðjónsdóttir kynnti áherslur Pírata á Kjarvalsstöðum. Hraði borgarlínu og þéttingu byggðar Áherslur Pírata » Stórefla gagnsæi og gagna- innviði borgarinnar. » Valdefla íbúa og styrkja lýð- ræðisleg vinnubrögð stjórn- sýslunnar. » Gera græn plön og fram- kvæmdir enn grænni og metn- aðarfyllri svo bíllaus lífsstíll þurfi ekki að vera jaðarsport. » Hraða uppbyggingu fjöl- breytts húsnæðis í þéttri lífs- gæðabyggð. 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.