Morgunblaðið - 22.04.2022, Side 6

Morgunblaðið - 22.04.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir Eftir að brimlöður hafði skvest yfir erlenda ferðalanga sem nutu veður- blíðunnar á Malarrifi undir Snæ- fellsjökli í gærmorgun, skemmtu þeir sér konunglega í hverri bun- unni á fætur annarri í aparólu. Ferðamennirnir vissu að landsmenn væru að halda upp á sumardaginn fyrsta og sögðust hlæjandi renna sér þar inn í sumarið. Fádæma veðurblíða var í þjóð- garðinum við Snæfellsjökul í gær- morgun og líka á jöklinum sjálfum en tugir manna óku þá upp að jökul- rótunum og gengu á tindinn á skíð- um. Á Djúpalónssandi var líka tals- vert af ferðalöngum að njóta blíðunnar við svarrandi brimölduna og í Dritvík voru rifjaðar upp sögur af hundruðum sjómanna sem voru fyrr á öldum þar á vorvertíð. Helga Magnea Birkisdóttir, sem er með veitingarekstur við Arnar- stapa, býst við miklum fjölda gesta á Snæfellsnesi í sumar og sagði ljós- myndara að ferðamannavertíðin væri þegar hafin. Annars konar vorvertíð en var undir Jökli fyrrum. Sannkallað blíðviðri var á Snæfellsnesi í sumarbyrjun Renndu sér inn í sumarið Morgunblaðið/Einar Falur Salíbuna Erlendir ferðalangar skemmtu sér vel í aparólunni á Malarrifi í Snæfellsnesþjóðgarði í gærmorgun. Lóndrangar í baksýn. Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Á miðvikudaginn birtist grein á mbl.is þar sem Hildur Steinþórsdótt- ir sagði að borgaryfirvöld væru farin að bjóða barnafólki pláss á leikskóla sem væru ekki byggðir og sagði sam- skipti sín við borgina ekki hafa verið góð. Núna fjórum mánuðum eftir að leikskólavist dóttur hennar átti að hefjast sé ekki enn búið að byggja leikskólann. Skúli Helgason, formað- ur frístunda- og skólaráðs borgarinn- ar, segir ýmislegt í greininni byggja á misskilningi, og bendir á að það sé reglan að innritað sé í leikskóla með nokkurra mánaða fyrirvara og gildi þá einu hvort um pláss á starfandi eða nýjum leikskóla sé að ræða. Fjölgun barna eftir faraldurinn Hann segir að þörfin á síðustu tveimur árum hafi aukist mikið um- fram fyrri áætlanir því fæðingarár- gangurinn 2021 hafi verið miklu stærri en þeir sem á undan komu og muni sú fjölgun halda áfram á árinu 2022. Brugðist hafi verið við því með því að fjölga leikskólaplássum enn meira en áður stóð til, svo standa mætti við fyrirheit um að bjóða börn- um allt niður í 12 mánaða í leikskóla. Í byrjun mars á þessu ári var sam- þykkt á fundi borgarráðs að fjölga leikskólarýmum um 1.680 næstu fjögur árin, og er gert ráð fyrir um 850 nýjum plássum á þessu ári. „Við erum að opna átta nýja leik- skóla á þessu ári. Tveir nýir leikskól- ar eru nú þegar teknir til starfa, ann- ar á horni Eggertsgötu og Njarðargötu sem opnaði í febrúar og hinn í Bríetartúni sem opnaði núna í byrjun apríl, en sá leikskóli er sér- útbúinn sem ungbarnaleikskóli.“ Skúli segir að næstu leikskólar sem opna séu við Nauthólsveg sem áætlað er að opni í júní og síðan hefji þrír leikskólar starfsemi í ágúst. „Stór leikskóli opnar við Kleppsveg með 120 plássum, annar í Vogabyggð með 100 plássum auk leikskóla við Ármúla með 60 plássum sem rekinn verður með leikskólanum Múlaborg sem er á næstu lóð.“ Á haustmán- uðum munu svo leikskólar opna við Safamýri og Barónsstíg við Vörðu- skóla. Stærsta uppbygging aldarinnar „Frá árinu 2018 hafa 430 ný leik- skólapláss bæst við í Reykjavík og núna á þessu ári bætast 850 ný pláss við og síðan 800 til viðbótar næstu fjögur árin samkvæmt aðgerðaáætl- uninni Brúum bilið sem samþykkt hefur verið í borgarráði og er að fullu fjármögnuð,“ segir Skúli. „Þetta er stærsta uppbygging í leikskólamálum á þessari öld og þótt víðar væri leitað. Nú verður hægt að byrja að taka á móti 12 mánaða börn- um í haust eða fyrir næstu áramót og meðalaldur við inntöku lækkar úr 19 mánuðum í 13-14 mánuði.“ „Átta nýir leikskólar opna á árinu“ Morgunblaðið/Eggert Leikskólar Mæta á þörf á leikskólaplássum með Ævintýraborgum. - Formaður frístunda- og skólaráðs svarar gagnrýni - Skipulagt fram í tímann - 850 ný pláss í ár - Hreyfanlegar bráðabirgðalausnir - Brugðist við stóru fæðingarári - Ekki ímyndaðir leikskólar Vestmannaeyjabær ætlar að styrkja Björgunarfélag Vestmannaeyja um 35 milljónir króna vegna kaupa fé- lagsins á nýju björgunarskipi. Íris Róbertsdóttir bæj- arstjóri segir að málið sé bæjarfélaginu mikilvægt, en hún undirritaði samkomulag um styrkinn ásamt þeim Arnóri Arnórssyni, formanni Björgunarfélagsins, og Kristínu Hartmannsdóttur, formanni framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja, í fyrradag. „Landsbjörg er í risastóru verkefni með að endurnýja þennan björgunarskipaflota vítt og breitt um landið,“ segir Íris og bætir við að Björgunarfélagið hafi leitað til bæjarins vegna svonefnds Bátasjóðs félagsins. Segir Íris að bæjarstjórnin hafi ákveðið fljótlega að bærinn myndi koma myndarlega að þessu máli. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið hér í Eyjum að hér sé vel útbúið björgunarskip. Við erum sjávarútvegspláss og það skiptir okkur öllu máli að hafa öflugan og öruggan björgunarbúnað. Nýtt björg- unarskip skipar stóran þátt í því og eykur öryggi sjúkra- flutninga á sjó og bara björgunargetuna hér í Vest- mannaeyjum,“ segir Íris. Björgunarsveit Vestmannaeyja varð 100 ára árið 2018. „Þeir hafa sinnt mjög óeigingjörnu starfi í gegnum tíðina og bæjarstjórninni fannst því vel til fundið að koma vel að þessu verkefni og styrkja félagið með þessum hætti,“ segir Íris. Vestmannaeyjabær mun greiða sjö milljónir á ári næstu fimm árin til verkefnisins og fyrsta skipið verður komið til landsins síðsumars. „Það kemur einmitt hingað til Vestmannaeyja,“ segir Íris að lokum. Myndarlegur styrkur - 35 milljónir til kaupa á nýju skipi Björgunarfélagsins Morgunblaðið/Óskar Friðriksson Undirritun Íris, Arnór Arnórsson formaður og Kristín Hartmannsdóttir undirrituðu samkomulagið. Ævintýraborgir eru færanleg bráðabirgðalausn sem nýttar eru til að auka hratt framboð á leikskólaplássum á árinu til að mæta aukinni eftirspurn. Þetta eru einingahús, sem Skúli Helgason segir björt og falleg, en sterkbyggð og sér- staklega hönnuð fyrir leikskóla- starfsemi. Fjórar Ævintýraborgir verða opnaðar á árinu, og er sú fyrsta þegar tekin til starfa við Egg- ertsgötu, en hinar verða við Nauthólsveg sem opnar í júní, í Vogabyggð sem opnar í ágúst og á Barónsstíg á lóð Vörðu- skóla, sem opnar síðla á haust- mánuðum. Hreyfanleg ævintýraborg EKKI ÍMYNDUÐ ÆVINTÝRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.