Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Hjólastillingar | Smurverkstæði/þjónusta HJÓLASTILLINGARPÚSTÞJÓNUSTASMURÞJÓNUSTAVARAHLUTIRVÉLASTILLINGAR VIÐGERÐIR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við bræðurnir vorum að grínast með það að það þýddi ekki fyrir mig að mæta heim án Skeifunnar,“ segir Helgi Valdimar Sigurðsson í Skolla- gróf í Hrunamannahreppi. Hann vann til helstu verðlauna á Skeifu- degi hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri, Morgunblaðsskeifuna sem dagurinn er kenndur við. Svo vill til að systir hans og bróðir hafa áður unnið til þessara verðlauna. „Ég reyndi að gera sem minnst úr þessu en aðrir voru að setja á mig pressu með því að gera sem mest úr þessu,“ segir Helgi þegar hann er spurður hvort pressan hafi verið mikil. Fram kemur í Skeifu- blaði nemenda að hann hafi lagt mikið á sig til að krækja í verðlaun- in. Þorbjörg Helga, systir hans, vann Morgunblaðsskeifuna árið 2016 og Guðjón Örn, bróðir þeirra, 2019. Sýna reiðmennsku virðingu Morgunblaðsskeifan var fyrst veitt við skólaslit Bændaskólans á Hvanneyri 4. maí 1957. Morg- unblaðið vildi sýna virðingu sína fyrir þessari fornu og fögru íþrótt, hestamennskunni. Hún hefur verið veitt síðan, í 64 ár. Þessi árin er hún veitt þeim nemanda sem hefur náð bestum samanlögðum árangri á frumtamningaprófi og í reið- mennsku III. Gissur Gunnarsson varð í öðru sæti í Skeifukeppninni, Vilborg Jónsdóttir í þriðja sæti, Erla Björg Björnsdóttir í fjórða og Salbjörg Ragna Sævarsdóttir varð í fimmta sæti. Ýmis önnur verðlaun voru veitt á Skeifudeginum sem fram fór í reið- höll Landbúnaðarháskóla Íslands á Mið-Fossum. Linda Bjarnadóttir fékk Eiðfaxabikarinn fyrir bestu einkunn í bóklegum áfanga reið- mennsku III. Sigríður Magnea Kjartansdóttir fékk ásetu- og reið- mennskuverðlaun Félags tamninga- manna og Gissur Gunnarsson fékk Framfaraverðlaun Reynis. Síðast- nefndu verðlaunin eru veitt til minn- ingar um Reyni Aðalsteinsson tamn- ingameistara þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mestan áhuga og ástundun og tekið mestum fram- förum í reiðmennsku. Á Skeifudeginum var, eins og venja er, fjórgangskeppni. Sigríður Magnea Kjartansdóttir sigraði í keppninni um Gunnarsbikarinn sem veittur er til minningar um Gunnar Bjarnason, fyrrum hrossarækt- arráðunaut og kennara á Hvanneyri. Ágústa Rut Haraldsdóttir sigraði í hópi nemenda á hestafræðibraut. Ætlar í búskap Helgi Valdimar Sigurðsson kem- ur úr mikilli hestafjölskyldu, eins og verðlaun systkinanna bera vott um. Foreldrar þeirra eru Sigurður Haukur Jónsson og Fjóla Helga- dóttir, bændur í Skollagróf. Afi hans var Jón Sigurðsson, þekktur hestamaður og hrossaræktandi. „Við stöndum saman í þessu, fjöl- skyldan, í hrossaræktinni og hesta- mennskunni,“ segir Helgi. Hann segist ekki hafa mikið unnið tamn- ingar en verið um tíma á Jaðri í Hrunamannahreppi og einnig lært mikið af Þórarni Ragnarssyni í Vesturkoti. Helgi er í tveggja ára búfræði- námi á Hvanneyri. „Ég hef gríð- arlegan áhuga á búskap og vil auka þekkingu mína á greininni. Maður verður að læra til að geta staðið sig vel í búskapnum á komandi árum,“ segir hann og viðurkennir að ekkert annað komi til greina en að fara út í búskap. Segir að þeir bræður stefni að því að taka við búskapnum í Skollagróf. „Ég vil hvergi annars staðar vera.“ Gat ekki komið heim án Skeifu - Helgi er þriðji úr sinni fjölskyldu sem vinnur Morgunblaðsskeifuna Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þátttakendur Glaður hópur með verðlaun sín við lok keppni á Skeifudegi hestamannafélagsins Grana á Hvanneyri. Skeifuhafi Helgi Valdimar Sigurðsson ásamt tamningatrippi sínu með verðlaunagripinn sem kom í hans hlut eftir Skeifukeppni vetrarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.