Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 11

Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 VIÐ erum RÆKTENDUR FRAMTÍÐARINNAR Kraftar sólargeislanna gefa ljóma sem endist Immortelle blómin í Reset seruminu okkar nærast á kraftmiklu sólarljósinu sem gefa þau áfram til húðarinnar þinnar svo hún verði endurnærð, úthvíld og full af unglegum ljóma. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Lesendur sunnlenska.is kusu Magnús Hlyn Hreiðarsson, frétta- mann á Selfossi, Sunnlending árs- ins 2021. Kosningin fór fram í jan- úar síðastliðnum en vegna covid-ástandsins í þjóðfélaginu í vetur og vor tókst ekki að heiðra Magnús fyrr en nú, á sumardaginn fyrsta. „Er þetta ekki svona sumardags- ins fyrsta aprílgabb?“ hefur sunn- lenska.is eftir Magnúsi þegar hon- um voru færðar fréttirnar í gær. Á vef Sunnlenska segir að þrátt fyrir rigningasumar sunnanlands á síð- asta ári, og kórónuveirufaraldur, hafi Magnús verið fundvís á góðar fréttir. Fékk hann góða kosningu í kjörinu og í rökstuðningi margra sagði að jákvæðni hans væri mik- ilvæg á því erfiða ári sem 2021 reyndist mörgum. Góð þátttaka var í kosningunni um Sunnlending ársins. Háði Magnús harða keppni við Ómar Inga Magnússon, landsliðsmann í handbolta og íþróttamann ársins, sem varð annar í kjörinu og í þriðja sæti var Guðríður Aadnegard, námsráðgjafi og umsjónarkennari í Hveragerði, fyrir baráttu sína í ein- eltismálum, segir á sunnlenska.is. Sunnlend- ingur árs- ins 2021 - Valinn af lesend- um sunnlenska.is Ljósmynd/Sunnlenska.is Fréttamaður Magnús Hlynur Hreiðarsson, Sunnlendingur ársins. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fjölmenni var að Leirá í Hvalfjarð- arsveit í gær þegar Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra afhjúpaði þar skilti um sögu staðarins, sem er merk og löng. Leirá hefur til dæmis verið kirkjustaður síðan um árið 1200 og guðshúsið sem þar stendur nú er frá árinu 1914. Á Leirár- görðum var um 1800 starfrækt eina prentsmiðja landsins og þaðan kom margt margt merkra rita. Á Leirá var fæddur Magnús Stephensen (1769-1833) aðsópsmikill á sinni tíð meðal annars sem bókaútgefandi og stiftamtmaður. Hátt ber í sögu Leirár að þar sat á árunum 1863-1868 Jón Thoroddsen (1816-1868), síðasti sýslumaður Borgfirðinga. Þekktastur er Jón þó sennilega fyrir ritstörf sín, það er Piltur og stúlka og Maður og kona sem sagðar eru hafa verið fyrstu ís- lensku skáldsögurnar. Einnig er hann höfundur ljóðanna Litfríð og ljóshærð og Hlíðin mín fríða, kvæða sem margir kunna. Því verður svo líka að halda til haga að stór ættbogi er frá Jóni kominn, fólk sem margt hvert hefur sett sterkan svip á ís- lenskt samfélag og samtíma sinn. Í þeim hópi er langalangafabarnið, Katrín Jakobsdóttir. Í Leirá í gær sagðist Katrín þangað komin vissu- lega sem forsætisráðherra en þó ekkert síður sem afkomandi Jóns, en ritverkum hans gerði hún góð skil í yfirgripsmikilli ræðu. Sagði að tón- inn í sveitasögunum sem voru alls- ráðandi í íslenskum bókmenntun í kringum 1900 hafi verið sleginn með fyrrgreindum skáldsögum Jóns. Söguþráðurinn þeirra sé sömuleiðis kunnuglegt minni; að reynt sé að stía elskendum í sundur og hindra að ástin nái fram að ganga. Söguskiltið að Leirá er hið þriðja sem sett er upp í Hvalfjarðarsveit, en fleiri koma á næstunni í sveitarfé- laginu sem spannar Hvalfjarðar- svæðið frá Skipaskaga að Hafnar- fjalli. Ýmis fróðleikur um líf og sögu á Leirá var sömuleiðis kynntur við athöfnina í gær, í sólarblíðu á fyrsta degi sumars. Afhjúpaði söguskilti á Leirá Morgunblaðið/Sigurður Bogi Leirá Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við söguskiltið góða, en alls tíu slík verða sett upp í Hvalfjarðarsveit. - Katrín í Hvalfjarðarsveit - Fróðleikur og saga - Jón Thoroddsen sýslumað- ur og skáld langalangafi forsætisráðherra - Piltur og stúlka og Hlíðin mín fríða Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir utanríkisráðherra er nú stödd í Bandaríkjunum, þar sem hún fundaði í gær og fyrradag með háttsettum embættismönnum í bandaríska stjórnkerfinu. Hitti Þórdís Kolbrún m.a. Victoríu Nul- and, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í fyrradag. „Bandaríkin eru náin og mik- ilvæg vinaþjóð okkar Íslendinga og milli okkar ríkir gagnkvæm virð- ing. Það finn ég vel á fundum með háttsettum embættismönnum hér í Washington,“ sagði Þórdís Kolbrún í tilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. Segir hún þar einnig að ákaflega mikilvægt sé að rækta samskiptin við þær þjóðir, sem hafi skuldbund- ið sig til þess að standa vörð um fullveldi okkar, landamæri og lög- sögu ef þeim er ógnað og að Íslend- ingar leggi sitt af mörkum til að styðja við vinaþjóðir. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Styrkt tengsl Victoria Nuland og Þórdís Kolbrún hittust í fyrradag. Utanríkisráðherra fundaði með Nuland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.