Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar á sanngjörnu verði og að auki förum við með bílinn þinn í endurskoðun, þér að kostnaðarlausu. ekki hægt að klára framleiðsluna á meðan,“ útskýrir Jóhannes og bendir á að Úkraína er einn stærsti framleiðandi neongass sem notað er við smíði örgjörva. „Er þetta gas aðallega framleitt og flutt úr landi í gegnum hafnarborgina Maríupol sem fregnir herma að sé í dag rústir einar og ósennilegt að framleiðsla komist aftur af stað í bráð. Úkraína hefur líka leikið mikilvægt hlutverk í framleiðslu rafkerfa fyrir bifreiðar og ljóst að stríðsátökin hafa gert fyrirtækin sem framleiða þessi raf- kerfi óstarfhæf.“ Þá virðist sem íslensk bílaumboð séu búin að klára hjá sér lagerinn af sumum gerðum bíla enda tók sala nýrra bíla kipp á fyrsta ársfjórð- ungi. „Var mikið að gera í sölu ten- giltvinnbíla fyrir áramót en þá var reglum breytt þannig að afsláttur af innflutningsgjöldum lækkaði um 480.000 kr. og hækkaði verð tengil- tvinnbílanna sem nam þeirri upp- hæð. Þeir sem voru í endurnýjunar- hugleiðingum voru því í kapphlaupi við tímann. Þá hafa bílaleigurnar verið mjög duglegar að panta bíla að undanförnu og sjá þær fram á mjög mikla eftirspurn í sumar, í takt við fjölgun ferðamanna. Hefur eftirspurnin eftir nýjum bílum verið slík að salan hefur aukist um 60% það sem af er ári, miðað við sama tímabil í fyrra, og hafa bílaleigurnar aukið sín innkaup um 290%,“ segir Jóhannes. „Almennt er lagerstaða lág en sum bílaumboð eiga bíla til afgreiðslu strax, og það koma nýir bílar til landsins í hverri viku. Allir eru að keppast við að bæta við pant- anir sínar.“ Framleiðendur hafa ekki setið með hendur í skauti undanfarin misseri heldur leitað allra leiða til að halda verksmiðjum sínum gang- andi. Segir Jóhannes að mikil vinna hafi farið í að breyta og bæta að- fangakeðjur og reyna að búa þannig um hnútana að röskun á framleiðslu tiltekinna íhluta hafi ekki alvarleg keðjuverkandi áhrif um alla grein- ina. „Af fréttum má ráða að bíla- framleiðendur reiknuðu með að allt yrði komið í eðlilegt horf og fram- leiðslan á fullan hraða á þriðja fjórðungi þessa árs en mig grunar að viðsnúningurinn muni taka lengri tíma, einmitt vegna stríðsins í Úkraínu og ástandsins í Kína.“ Lítið svigrúm fyrir prútt þegar bíla skortir Ástandið á markaðinum veldur bílaumboðunum tjóni enda verða þau af sölutekjum. „Hljóðið er þannig í öllum þeim bílainnflytjend- um sem ég hef rætt við að þeir gætu selt miklu fleiri bíla ef ekki væri fyrir flöskuhálsana hjá fram- leiðendum,“ segir Jóhannes. „Hins vegar þýða þessar markaðsaðstæð- ur að það dugar lítið fyrir kaup- endur að reyna að prútta og þeir sem vilja leggja inn pöntun fyrir nýjum bíl þurfa að greiða uppsett verð.“ Skortur á nýjum bílum hefur síð- an smitandi áhrif á markaðinn fyrir notaða bíla. Segir Jóhannes að bíl- greinasambandið vakti ekki þróun á verði notaðra bíla en það blasi við að notaðir bílar seljast á hærra verði ef nýja bíla vantar á mark- aðinn. „Hér á landi hefur ekki orðið nein brjálæðisleg hækkun á notuð- um bílum en þeir virðast halda verði sínu betur en oft áður. Í Þýskalandi voru áhrif vandræða bílaframleiðenda mæld og þar kom í ljós að í kórónuveirufaraldrinum hækkaði verð notaðra bíla um á bilinu 10 til 15% miðað við það sem vænta mátti í eðlilegu árferði.“ Sprengi sig ekki þegar framboðið batnar Bendir Jóhannes á að bílaumboð- in þurfi að fara varlega þegar fram- boð af nýjum bílum skánar. „Það gæti komið mönnum í bobba ef þeir taka of mikla áhættu og ofmeta eft- irspurnina eftir bílum. Er greinilegt að vöntunin er töluverð, og freist- andi að leggja inn fleiri pantanir en færri hjá framleiðendum, og er þá vissara að spár innkaupastjóranna gangi upp. Þarf líklega ekki að hafa miklar áhyggjur enda fólkið sem stjórnar innkaupum bílaumboðanna yfirleitt með áratuga reynslu og veit upp á hár hvað það er að gera, en ljóst er að það verður vandasamt að finna rétta meðalveginn.“ Sumir þurfa að bíða fram á haust Morgunblaðið/RAX Skortur Mynd úr safni af bílum sem bíða tollafgreiðslu. Eftirspurnin eftir nýjum bílum hefur tekið kipp en framleið- endur glíma við flöskuhálsa sem mynduðust í kórónuveirufaraldrinum. Salan hefur aukist um 60% á milli ára. - Raskanir hjá framleiðendum valda því að margra mánaða bið er eftir sumum gerðum bifreiða hjá bílaumboðunum - Harkalegar sóttvarnir í Kína og stríðið í Úkraínu mun framlengja vandann 22. apríl 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.53 Sterlingspund 167.78 Kanadadalur 102.51 Dönsk króna 18.708 Norsk króna 14.585 Sænsk króna 13.607 Svissn. franki 135.75 Japanskt jen 1.0048 SDR 175.47 Evra 139.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.0264 Samstæðuársreikningur Ríkisút- varpsins ohf. sýnir að afkoma félags- ins fyrir tekjuskatt var jákvæð um rösklega 45 milljónir króna á árinu 2021. Varð töluverð breyting á rekstrinum á milli ára en 2020 var rösklega 248 milljóna króna tap af starfseminni. Rekstrargjöld breyttust lítið á milli ára en rekstrartekjur hækkuðu um nærri 198 milljónir, eða úr 6.861 milljón í 7.059 milljónir. Fastafjármunir félagsins jukust á milli ára úr 6.194 milljónum í 6.777 milljónir og munar þar mest um að virði sýningarrétta hækkaði úr lið- lega 443 milljónum í tæpan 1,1 millj- arð. Veltufjármunir lækkuðu úr 2.146 milljónum í 1.989 milljónir. Jukust eignir félagsins samtals um 426 milljónir króna. Eigið fé nam 1.968 milljónum króna og eiginfjár- hlutfall var 22,5% í lok árs 2021. Athygli vekur að tekjur af auglýs- ingasölu hækkuðu um rösklega 400 milljónir eða úr 1.624 milljónum í 2.026 milljónir. Tekjur félagsins af almannaþjónustu lækkuðu hins veg- ar um u.þ.b. 275 milljónir eða úr 4.930 milljónum í 4.655 milljónir. Má leiða líkum að því að vöxtur auglýsingatekna á mili ára stafi m.a. af minnkuðum áhrifum kórónuveiru- faraldursins á íslenskt atvinnulíf og eins að í ársbyrjun 2021 var sú breyt- ing gerð hjá Stöð 2 að fréttatími stöðvarinnar var lokaður öðrum en áskrifendum. Er þess að vænta að tekjur RÚV af almannaþjónustu breytist á þessu ári en í síðustu fjár- lögum var kveðið á um hækkað fram- lag ríkissjóðs vegna þjónustunnar. Stöðugildum fækkaði á milli ára, úr 266 í 252. Heildarlaun og lífeyris- sjóðsgreiðslur útvarpsstjóra hækk- uðu úr 25,9 milljónum króna í 30 milljónir en stjórnarlaun tveggja stjórna samstæðunnar héldust óbreytt og voru 17,3 milljónir króna. ai@mbl.is Rekstur RÚV batnar á milli ára - Tekjur af auglýsingasölu úr 1.624 milljónum í 2.026 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveifla Stefán Eiríksson hefur verið útvarpsstjóri frá 2020. Ekki er enn búið að taka ákvörðun um hvaða umgjörð verður á niðurfell- ingu gjalda vegna innflutnings vistvænna bifreiða. Á sínum tíma voru samþykkt lög sem felldu niður hluta gjalda á nýjum rafmagns-, tengil- tvinn- og vetnisbílum og var um leið ákveðið að setja kvóta á hversu margir bílar í hverjum flokki gætu notið ívilnunarinnar. Er kvótinn fyrir tengiltvinnbíla nær fullnýttur og gengur hratt á kvótann fyrir rafmagns- bíla en sárafáir vetnisbílar hafa verið fluttir inn frá því reglurnar tóku gildi. „Frumvarp liggur fyrir Alþingi um breytingar á lögum um virð- isaukaskatt og er þar lagt til að auka kvótann fyrir rafmagnsbíla úr 15.000 í 20.000 ökutæki en ég held að þar mætti gera mun betur og miðað við hversu vel rafmagnsbílar seljast á kvótinn eftir að klárast hratt. Hafa ívilnanirnar gefið góða raun og flýtt fyrir orkuskiptum bíla- flotans en ef þær falla niður blasir við að rafmagnsbílar verða ekki jafn samkeppnishæfir í verði og von á bakslagi í sölu þeirra, sem gæti hægt á orkuskiptum og sett markmið stjórnvalda í loftslagsmálum í uppnám.“ Án ívilnana er von á bakslagi í orkuskiptum NIÐURFELLING GJALDA HEFUR GEFIÐ GÓÐA RAUN VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sú staða er komin upp hjá sumum íslenskum bílaumboðum að erfið- lega gengur að mæta eftirspurn og löng bið eftir sumum gerðum bif- reiða. Jóhannes Jóhannesson, stað- gengill framkvæmdastjóra Bíl- greinasambandsins, segir að í ákveðnum tilvikum geti kaupendur vænst þess að þurfa að bíða í allt að fjóra til sex mánuði eftir afhend- ingu. „Í verstu tilfellunum geta umboðin ekki lof- að afhendingu fyrr en með haustinu,“ segir hann. Ástæðurnar fyrir bílaskortin- um eru marg- þættar. Bendir Jóhannes á að kórónuveirufar- aldurinn raskaði aðfangakeðju bíla- framleiðenda um allan heim og er greinin enn að vinna úr þeirri upp- söfnuðu þörf sem myndaðist á bíla- markaði í faraldrinum. „Núna bæt- ist við stríðið í Úkraínu og ný bylgja smita í Kína sem stjórnvöld þar í landi hafa brugðist við með út- göngubanni. Mun það hafa hafa áhrif á getu framleiðenda til að af- henda nýja bíla á komandi mánuð- um.“ Maríupol mikilvægur hlekkur í keðjunni Á hápunkti kórónuveirufarald- ursins var það einkum skortur á tölvukubbum sem plagaði bílaiðn- aðinn. „Ef það t.d. vantar bara hálf- leiðara í útvarpið á bílnum þá er Jóhannes Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.