Morgunblaðið - 22.04.2022, Side 14

Morgunblaðið - 22.04.2022, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Á sunnudag ganga franskir kjósendur að kjör- borðinu í annað sinn á hálfum mánuði. Nú er það seinni umferð forseta- kosninganna og slagurinn stendur á milli Emm- anuel Macron forseta og Marine Le Pen, frambjóðandans sem lenti í öðru sæti í fyrri atrenn- unni. Þetta er kunnuglegt stef og verða franskir kjósendur seint sakaðir um nýjungagirni enda var nákvæmlega sama staða uppi fyrir fimm árum. En töl- urnar eru að vísu aðrar nú og þó að fáir spái Le Pen sigri þá er munurinn á þeim óþægilega lítill fyrir forsetann að þessu sinni. Fyrst eftir fyrri umferðina mældist munurinn innan við tíu prósentustig en hefur síðustu daga skriðið upp í tveggja stafa tölu. Munurinn á þeim tveimur var sáralítill í fyrri umferðinni. Mac- ron fékk 27,8% atkvæðanna en Le Pen 23,2% og stutt var í vinstri manninn Jean-Luc Me- lenchon, sem gjarnan er lýst sem frönskum Sanders eða Corbyn, eftir því hvort horft er til Banda- ríkjanna eða Bretlands. Melenc- hon hefur lýst því yfir að allt sé betra en Le Pen, sem almennt er talin utarlega á hinum enda stjórnmálanna þó að fátt í stefn- unni réttlæti það í raun, en hann gengur þó ekki svo langt að lýsa yfir stuðningi við Macron enda á hann ekki upp á pallborðið hjá sönnum sósíalistum þó að hann sé flokkaður vinstra megin við Le Pen, almennt talinn miðju- maður. En ætli Macron verði ekki helst lýst sem praktískum stjórnmálamanni með litla sann- færingu fyrir öðru en að sitja áfram í Élysée-höll. Og hann er líka sleipur í kappræðum og get- ur verið harður í horn að taka eins og kom á daginn á miðviku- dagskvöld þegar hann atti kappi við Le Pen í þrjá tíma og könnun að kappræðum loknum sýndi að fólk taldi að hann hefði staðið sig betur. Hann þykir þó líka hafa gengið langt í árásum á keppi- nautinn og sýnt af sér yfirlæti sem ekki er endilega til þess fall- ið að styrkja stöðu hans, nema ef til vill hjá þeim sem þegar hafa þá sannfæringu að Le Pen sé ótækt forsetaefni. Niðurstaðan á sunnudag gæti einmitt ráðist af því og þá kann að skipta mestu máli hversu margir mæta á kjörstað, en áhugi á kosningunum er ekki mjög mikill og átökin í Úkraínu hafa til að mynda að því er virð- ist ekki haft þau áhrif sem ætlað var. Macron hefur tæpast fengið nokkuð út úr símtölum sínum við Pútín eða setunni við langa borð- ið og hæpið er að gagnrýni hans á velvild Le Pen í garð Rússa og forseta Rússlands sérstaklega hafi mikið að segja. Macron hefur sjálf- ur á síðustu árum lagt töluvert upp úr góðum tengslum við Pútín, sem þurfti ekki að vera gagn- rýnivert á þeim tíma þó að ein- hverjir fyndu að því, en hann gekk að vísu ekki jafn langt og Le Pen sem lýsti yfir stuðningi við töku Rússa á Krímskaga og vildi draga úr þátttöku Frakk- lands í NATO. Í því sambandi má þó nefna að Macron hefur ekki verið alveg gagnrýnislaus í garð NATO, því að hann sagði bandalagið „heiladautt“ fyrir þremur árum og þótti ýmsum vel í lagt. Þá er munur á afstöðu Le Pen og Macrons til Evrópusam- bandsins og tengslanna við Þýskaland, en þessi tvö ríki eru ráðandi innan þess sambands. Macron vill ganga sem lengst í þessu samstarfi en Le Pen vill ekki að gengið sé of langt og tal- ar ekki eins hlýlega um sam- skiptin við Þýskaland og Macron þó að hún segist nú styðja áfram- haldandi aðild Frakka að ESB. Innflytjendamál eru einnig meðal þess sem deilt er um á milli frambjóðendanna og telur Macron að stefna Le Pen mundi setja allt í uppnám innanlands, einkum þau sjónarmið hennar að slæður múslima eigi ekki rétt á sér í Frakklandi. Hann er þó ekki endilega jafn fjarri Le Pen í skoðunum um þetta og ætla mætti, hann hélt því að minnsta kosti fram í kosningabaráttunni fyrir fimm árum að hann mundi berjast gegn „íslamskri aðskiln- aðarstefnu“ en efast má um að í þeim efnum hafi hann náð mikl- um árangri. Ekki er víst að þessi atriði sem hér hafa verið nefnd, þó að mikilvæg séu, verði í raun ráð- andi um afstöðu kjósenda. Þeir eru taldir fremur áhugalausir al- mennt, en horfi þó helst til grunnþátta efnahagslífsins, svo sem verðbólgunnar. Í þeim um- ræðum gæti Macron talist á heimavelli, en árangurinn er þó umdeilanlegur. Niðurstaðan á sunnudag ræðst þó ekki endilega af mál- efnunum, heldur frekar af því hvort þeir sem studdu frambjóð- endurna lengst til vinstri sitja heima eða láta sig hafa það að velja illskárri kostinn að þeirra mati. Sennilega er helsta von Le Pen að þessir kjósendur sitji heima, en hvernig sem fer er af- ar ólíklegt að munurinn á þess- um tveimur frambjóðendum verði svipaður og hann var fyrir fimm árum, en þá munaði 32 pró- sentustigum í seinni umferðinni og staða Macrons var sterk á eft- ir. Verði munurinn svipaður því sem nú er spáð verður staða hans allt önnur og veikari og seinna kjörtímabilið gæti orðið honum enn erfiðara en það sem nú er að ljúka. Kosningarnar í Frakklandi eru endurtekið efni en munurinn er mun mjórri en síðast} Le Pen gegn Macron Í upphafi maí hefst strandveiðitímabil þessa árs. Veiðarnar eru stundaðar frá maí til ágúst ár hvert. Verður það fjórtánda sumarið síðan strandveið- um var komið á í stjórnartíð rík- isstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfing- arinnar – græns framboðs. Strandveiðar voru hugsaðar til þess að fólki yrði gert kleift að stunda veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Var þannig opnað fyrir það að þau sem ekki hefðu yfir að ráða aflamarki gætu reynt fyrir sér í sjávarútvegi. Þetta fyr- irkomulag hefur gefist ágætlega, líf færðist yfir hafnir sem höfðu verið dauflegar áður. Í dag hefur fjöldi fjölskyldna hluta af sínum heimilistekjum af strandveiðum. Sá afli sem til ráðstöfunar er hverju sinni er breytilegur eins og aðrar veiðar og miðast við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ákvörðun ráðherra um leyfi- legan heildarafla. Aldrei hærra hlutfall þorsks í strandveiðar Frá því að strandveiðunum var komið á hefur á bilinu 2,5-4,4% af leyfilegum heildarafla í þorski verið ráð- stafað til strandveiða. Í ljósi niðurstöðu skiptimarkaða núna á útmánuðum er svigrúm til þess að auka við þá ráðstöfun sem áður hafði verið ákvörðuð. Ég mun sjá til þess að 10.000 tonn af þorski verði í strandveiðipottinum á þessu tímabili. Með 1.500 tonna viðbót, mun aldrei hafa verið ráðstafað stærri hluta af leyfilegum heildarafla í þorski til strandveiða. Er það í takti við stefnu VG að festa strandveiðar enn betur í sessi. Lærum af reynslunni Nú þegar strandveiðar eru komnar á ferm- ingaraldur er tilefni til þess að fara yfir hvernig til hefur tekist með fyrirkomulag strandveiða. Undirbúningur fyrir þá vinnu er farinn af stað. Við þurfum að leggja niður fyr- ir okkur hver staða strandbyggða er og afla gagna um hverju strandveiðar skila fyrir byggðirnar. Við þurfum líka að horfa fram á veginn. Það þarf að horfa til þess að innleiða hvata við fiskveiðar til þess að hvetja til orku- skipta. Þegar eru komin af stað verkefni á Ís- landi sem miða að orkuskiptum í smábátum og lofa góðu. Orkuskipti í sjávarútvegi, í stóru og smáu eru ekki bara mikilvægt lofts- lags- og efnahagsmál heldur einnig mikilvægt fæðuöryggismál. Því er til alls að vinna að hvatar séu í þeim kerfum sem við nýtum við stjórn fisk- veiða sem hraði orkuskiptum eins og kostur er. Með þeim hætti gætu strandveiðar, sem nú þegar eru með létt kolefnisspor, verið enn loftslagsvænni. Fleiri atriði þarfnast skoðunar og hef ég fengið erindi frá strand- veiðimönnum hringinn í kringum landið. Þar ég hef verið hvött til þess taka til skoðunar hvernig bæta megi kerfið þannig að verðmætasköpun verði sem mest og jafnræði landsvæða sem best. Mikilvægt er að strandveiðar verði áfram tryggðar í þágu byggða, sjálfbærni og fæðu- öryggis. svandis.svavarsdottir@mar.is Svandís Svavarsdóttir Pistill Styrkjum strandveiðar Höfundur er matvælaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is M ikil endurnýjun er fyrir höndum á verslunar- og veitingarýmum í Leifs- stöð á næstunni. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá að und- anförnu stendur nú yfir útboð á rekstri tveggja veitingastaða á besta stað í norðurbyggingu Leifsstöðvar og getur rekstur þriðja staðarins, sem verður á öðrum stað í flugstöðinni, bæst við. Þá verður brátt boðinn út pakki með rekstri þriggja veitinga- staða sem selja kaffi og brauð og ann- ar pakki með rekstri tveggja matar- markaða í líkingu við þann sem kallast Mathús í dag. Samningar um rekstur Nord, Mathúss, Loksins bar og Joe and the Juice renna brátt út. Að auki verður á næstunni boðinn út rekstur gleraugnaverslunar í Leifsstöð, rekst- ur verslunar fyrir gjafavöru og útivist og gjaldeyrisþjónustu. Útboðið sem nú stendur yfir og þau sem brátt verður ráðist í eru áhugaverð í því ljósi að Isavia hefur nýverið fengið miklar ákúrur frá Sam- keppniseftirlitinu fyrir framkvæmd slíkra útboða. Í byrjun árs birti Sam- keppniseftirlitið álit um starfsum- hverfi Isavia ohf. og samkeppnisað- stæður tengdar Keflavíkurflugvelli. Álit þetta var unnið og birt eftir að eft- irlitið hafði um nokkurra ára skeið haft til skoðunar allmargar ábending- ar og kvartanir er varða samkeppnis- aðstæður á eða við Keflavíkurflugvöll. Þar á meðal voru samningar um veit- ingasölu í Leifsstöð. Samningur veitti yfirburði Í álitinu er rakið að í mars 2014 hafi Isavia efnt til samkeppni um leigu á verslunar- og veitingarými innan flugvallarins þar sem óskað var eftir tilboðum í leigu húsnæðis í flugstöð- inni. Um var að ræða nokkra flokka fyrir verslanir og veitingastarfsemi. Þar á meðal voru fimm einingar í boði sem ætlaðar voru fyrir sölu á veit- ingum í norðurhluta flugstöðvarinnar. Í aðdraganda samkeppninnar hafði Isavia kynnt tilhögun hennar fyrir Samkeppniseftirlitinu. Fram kom í kynningunni að félagið stefndi að því að koma á samkeppni m.a. í veit- ingasölu á flugvellinum. Fimm fyrir- tæki tóku þátt í samkeppninni. Þar á meðal var Kaffitár, sem síðar beindi kvörtun til eftirlitsins, og fyrirtækin Lagardére og Joe and and the Juice. Í stuttu máli lyktaði samkeppninni þannig að Lagardére fékk fjórar ein- ingar og Joe eina. „Í ljós kom að Lagardére hafði sóst eftir því að fá allar einingarnar í norðurhlutanum en lyktaði viðræðum þó þannig að fyrirtækið fékk fjórar en í stað þeirrar fimmtu fékk Lag- ardére samning um veitingasölu í suðurhluta flugvallarins, sem ekki hafði verið boðin fram í samkeppn- inni. Til viðbótar framangreindu gerði Isavia hliðarsamning (e. „side letter“) við Lagardére, sem ekki var kynntur öðrum samningshöfum, þótt ljóst væri að litið væri á hann sem hluta aðalsamningsins og ákvæði í honum vörðuðu samningshafa að hluta og mögulega keppinauta,“ segir í álitinu. Í hliðarsamningnum fólust skuldbindingar Isavia um að ekki yrðu gerðir samningar um veit- ingasölu við fleiri en Joe and the Juice, að Lagardére fengi eitt að sinna veitingasölu í suðurhluta flug- stöðvarinnar og að framboð Pennans á mat- og drykkjarvöru og rými fyrir slíkar vörur yrði takmarkað. Jafn- framt voru ákvæði um endurskoðun samningsins ef til aukinnar sam- keppni komi á samningstímabilinu. „Með framangreindum samn- ingum voru Lagardére veittir miklir yfirburðir í veitingasölu innan flug- stöðvarinnar. Þá liggur fyrir að um- ræddur hliðarsamningur felur í sér verulega takmörkun á samkeppni, en slíkir samningar voru ekki gerðir við aðra en Lagardére. Upphafleg áform um að koma á samkeppni í veit- ingasölu á flugvellinum, sem kynnt höfðu verið Samkeppniseftirlitinu, gengu því ekki eftir,“ segir í áliti Samkeppniseftirlitsins. Samningar bitni á neytendum Í áliti Samkeppniseftirlitsins er vísað til skýrslu OECD frá nóvember 2020 en þar er meðal annars fjallað um sérleyfisssamninga Isavia. Í skýrslu OECD kemur fram það mat að þáverandi fyrirkomulag sérleyf- issamninga á Keflavíkurflugvelli geti verið samkeppnishamlandi á sviði veitingarekstrar, smásölu og rekst- urs á hópferðabílum sem sinni akstri til og frá flugvellinum. Gagnrýnt er að þeim skilyrðum sem Isavia setji rekstraraðilum til að fá sérleyfi sé ætlað að tryggja Isavia hámarks- tekjur sem hindri að rekstraraðilar geti veitt þjónustu á samkeppnishæfu verði. „Þó útboð séu haldin fyrir veit- ingu sérleyfa sem eigi að tryggja samkeppni á markaðnum þá snúist sú samkeppni í raun aðallega um það hverjar tekjur eða hlutur Isavia komi til með að verða í stað þess að sam- keppnin snúist um hagstætt verð til handa neytendum eða gæði veittrar þjónustu. Aðili vinni því útboðið með því að greiða sem hæst þjónustugjald til Isavia sem leiði til hærra verðs sem bitni á neytendum,“ segir í áliti Samkeppnisstofnunar um skýrslu OECD. „Hliðarsamningur“ skerti samkeppnina Morgunblaðið/Eggert Leifsstöð Miklar breytingar verða á verslunar- og veitingarýmum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.