Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Gleðilegt sumar Þessir hressu hestar í Húnavatnssýslu voru því eflaust fegnir um daginn að geta kíkt út á hagana í hinu mesta blíðviðri, enda sumarið í nánd og sumardagurinn fyrsti í gær. Eggert Ein daprasta birt- ingarmynd styrjalda eru árásir á íbúða- hverfi. Þegar horft er á myndir úr þjóð- armorðinu í Úkraínu blasa við sundur- sprengd fjölbýlishús, þar sem saklaust fólk bjó sér friðsæl heimili. Hvað hefur fólkið í fjölbýlishúsunum gert þessum glæpabrjálaða forseta í Rússlandi? Það er mér óskilj- anlegt. Hvenær koma fjölbýlishús? Fjölbýlishús á Ís- landi eiga sér ekki langa sögu. Verkalýðs- barátta hefur ekki að- eins snúist um kaup og kjör ís- lenskrar alþýðu, einnig um húsnæðismál. Það er í raun ótrúlegt hve mikið og vel er byggt á þeim tíma sem talað er um sem kreppuárin. Hús við Laufásveg, Bergstaðastræti og Fjölnisveg eru byggð á þeim tíma sem nefnd eru kreppuár. Borgara- stéttin byggði vel. Skipstjórahallir við Bárugötu, Ránargötu og Öldugötu eru byggð- ar aðeins fyrr. Margir sem þar byggðu voru á togurum og höfðu það nokkuð gott. Hús við Egilsgötu, Leifsgötu og Eiríksgötu eru einnig byggð á ár- unum fyrir síðari heimsstyrjöld. Það eru fjölbýlishús byggð af ein- staklingum. Bygging verkamannabústaða hófst á kreppuárunum. Fyrstu verkamannabústaðirnir voru byggð- ir við Hringbraut, Ásvallagötu og Sólvallagötu í Reykjavík. Síðar voru byggðir verkamannabústaðir í Holt- unum í Reykjavík, Stórholti og Stangarholti. Í Stórholti sést félagslegur aðskilnaður með því að húsin sunn- an megin við götuna, fjórbýlishús með tveimur inngöngum, fengu eitt húsnúmer, það eru verkamannabú- staðir, en fjölbýlishús norðan við götu, „fyrir almenning“, svipuð að flestu leyti, fengu tvö húsnúmer. Lönguhlíðarblokkin Á stríðsárunum hafði Reykjavíkurbær forgöngu um að byggja fjölbýlishús sem fóru í almenna sölu. Sá er þetta ritar telur að tvö fjölbýlis- hús við Hringbraut séu byggð snemma á stríðsárunum. Svipað hús, teiknað af Einari Sveinssyni, var byggt við Lönguhlíð árið 1948 og flutt inn í það árið 1949. Þar fengu foreldrar mínir sína fyrstu íbúð. Móðir mín hafði á orði að það hefði verið sinn stærsti sigur að fá íbúð með sérbaði. Þetta hús hefur ver- ið mér umhugsunar- efni alla mína ævi. Þangað flutti ég fyrir sléttum 70 árum og þar átti ég fimm fyrstu ár ævi minnar. „Flokksgæðingar“ Eitt sinn ræddi ég um þessa „blokk“ við mann fróðan um bygg- ingasögu og þá var það rifjað upp að það hafði mikið verið rætt um „blokkina“ og þá með þeim orðum að þarna væri Reykjavíkurbær að byggja fyrir „flokksgæðinga“ Sjálf- stæðisflokksins. Það væri svo mikill „lúxus“ í þessu húsi, sem allir máttu sjá, að það voru svalir við allar íbúðirnar. Húsið var byggt til að mæta húsnæðisskorti vegna að- flutnings úr sveit til borgar. Næst fór Reykjavíkurbær í fram- kvæmdir í Hólmgarði og Hæð- argarði. Þar eru engar svalir. Minni þess er þetta ritar er nokk- uð gott. Hann man nokkurn veginn hverjir bjuggu í húsinu, þó ekki alla. Það voru 32 íbúðir í húsinu. Allar íbúðirnar höfðu svalir, sem sneru í suður og vestur. Íbúarnir voru venjulegt fólk. Það voru senni- lega um 90 börn í húsinu. Þá eru taldir með þeir sem fæddir voru um 1930 og fluttu snemma að heiman. Samkvæmt niðurstöðum í kosn- ingum til sveitarstjórna er sennilegt að í húsinu hafi verið 14 heimili sem fylgdu Sjálfstæðisflokknum að mál- um. Við einfalda upprifjun get ég tengt þrjú við Sjálfstæðisflokkinn, þó þannig að ein þessara fjöl- skyldna var mjög andsnúin her- stöðvarsamningum og aðild að NATO. Foreldrar mínir fylgdu Alþýðu- flokknum að málum, þannig að ekki voru þau flokksgæðingar Sjálfstæð- isflokksins. Og drengurinn hefur aldrei orðið flokksgæðingur! Félagsfræði Það er vert að rifja upp byggingu þessa húss og þær aðstæður sem ríktu þegar íbúum bæjarins fjölg- aði, bærinn varð borg. Sennilega hafði ein fjölskylda bíl til umráða. Börnin stunduðu nám handan Klambratúns, í Austurbæjarskóla og Gagnfræðaskóla Austurbæjar og síðar í Menntaskólanum í Reykjavík eða Iðnskólanum. Ég minnist þriggja prófessora við Háskóla Íslands meðal barnanna og nokkrir eru prentarar. Heimilisfeður fóru til sinnar vinnu snemma á morgnana og hús- mæður voru heima og sáu um heim- ili. Á mínu heimili vann faðir minn við kennslu. Jafnframt vann hann að fræðastörfum í 70 fermetra íbúð með fjórum börnum. Stundum komu nemendur til hans í einka- kennslu. Svo komu til okkar ætt- ingjar utan af landi og gistu. Vinir mínir Það voru fimm börn í mínum ár- gangi í húsinu, ein stúlka og fjórir drengir. Öll hófum við nám í Ísaks- skóla haustið 1958 en þá var ég fluttur í aðra götu í Hlíðunum. Við vorum þrjú í mínum bekk í Ísaksskóla, stúlkan og Grímur. Í fyrsta skipti á ævi minni upplifði ég dauðann þegar Grímur vinur minn dó í bílslysi á horni Lönguhlíðar og Miklubrautar. En lífið hélt áfram. Það voru góðir tímar og gott fólk í Lönguhlíðinni fyrir 70 árum. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það væri svo mikill „lúx- us“ í þessu húsi, sem allir máttu sjá, að það voru svalir við allar íbúðirnar. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Félagsfræði fjölbýlishúss Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Í garðinum Grímur Ólafsson, bróðir Gríms vinar míns sem dó, Axel E. Sigurðsson (látinn) Halldóra Ragnarsdóttir, Vilhjálmur Bjarnason og Stefán Páll Þórarinsson. Vegavinna Vinna við Miklubraut 1957, séð frá mér. Hlíðarnar Lönguhlíðarblokkin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.