Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 22.04.2022, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 ✝ Hafþór Har- aldsson fædd- ist 6. júlí 1944. Hann lést á líknar- deild Landspítala 8. apríl 2022. Hafþór var son- ur hjónanna Har- aldar Snælands Sigurðssonar og Ingu Ólafar Arn- grímsdóttur. Haf- þór var næstelstur fjögurra bræðra; elstur er Gunnar Örn, síðan Dagþór og yngstur er Birgir Ómar. Hafþór ólst upp í Vesturbæ Reykjavík, nánar tiltekið á Grandavegi 39. Fjölskyldan flutti svo í Gnoð- arvog 16 árið 1959. Sambýlismaður Hafþórs alla tíð var Ívar Kolbeins- son. Fyrir nokkr- um árum létu þeir pússa sig saman. Ívar lést 28. apríl 2021. Útför Hafþórs fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 22. apríl 2022, klukkan 13. Streymt er frá útförinni www.hljodx.is/index.php/ streymi Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Ég er elstur okkar bræðra, fæddur 1942, en Hafþór bróðir fæddist tveimur árum síðar, árið 1944. Lengra leið áður en bræður okkar Dagþór Sigmar og Birgir Ómar fæddust. Við Hafþór vorum því lengi tveir bræðurnir. Við bjuggum í lítilli kjallaraíbúð á Grandavegi 39, sem Sigurður afi okkar og föðurbræður höfðu reist af miklum myndarskap. Í íbúðinni voru einungis tvö svefnherbergi. Foreldrar okkar sváfu í öðru her- berginu og við Hafþór í hinu. Rúmin okkar Hafþórs lágu saman og mörg kvöldin spjölluðum við saman um framtíðina og hvað okkur dreymdi um að verða. Þau voru ófá skiptin sem pabbi kallaði úr hinu herberginu: „Strákar, far- ið þið nú að sofa!“ Ég held að margt af því sem við Hafþór ræddum um hafi ræst. Báðum hefur farnast vel í lífinu, þótt lífs- hlaup okkar hafi verið um margt ólíkt. Báðir lukum við skyldunámi, fórum snemma að vinna og höfð- um keypt okkur íbúð um átján ára aldur. Pabbi okkar hafði mikinn áhuga á tónlist. Samt var ekkert hljóðfæri til á heimilinu nema einn falskur gítar. En pabbi átti góðan plötuspilara, sem vegna þrengsla var inni í herbergi hjá okkur bræðrum. Hann spilaði mest óp- erur. Við Hafþór komumst því ekki hjá því að heyra þegar tón- listin ómaði. Þarna held ég að tón- listaráhugi Hafþórs hafi mótast. Hafþór og Ívar voru í mörg ár áskrifendur að tónleikum Sinfón- íuhljómsveitarinnar. Þeir sóttu einnig saman marga tónlistarvið- burði utanlands sem og innan. Eftir að við flytjum í Gnoðar- voginn, ég þá nýlega fermdur, skildi leiðir. Ég var langdvölum að heiman en fylgdist alltaf með Haf- þóri. Eins og ég sagði áður þá var ekki annað í boði en að byrja snemma að vinna. Hafþór byrjaði fyrst hjá heildversluninni Blöndal, þá til húsa í Vonarstræti. Síðan starfaði hann hjá Ólafi í Festi sem sölumaður. Þaðan fór Hafþór að vinna í versluninni Ljósi og orku og varð þar snemma verslunar- stjóri. En lengstan sinn starfsferil vann Hafþór hjá Landsbanka Ís- lands sem yfirgjaldkeri í Lang- holtsútibúi. Þar var hann mjög vel liðinn, bæði af samstarfsfólki sem og viðskiptavinum. Tilviljun réð því að eftir að Hafþór veiktist dvaldi hann oft í þessu sama húsi, en Ljósið er með starfsemi sína einmitt í þessu húsi núna. En farinn er drengur góður og verður hans sárt saknað. Við bræðurnir þökkum Margréti og Sólveigu fyrir að hugsa mjög vel um Hafþór í veikindum hans. Gunnar bróðir. Þá er Hafþór bróðir búinn að fá hvíldina. Seinustu árin hafa verið honum mjög erfið. Hann greindist með blöðruhálskirtilskrabbamein fyrir allnokkrum árum. Þrátt fyrir aðgerð og síðar geisla- og lyfja- meðferð, tókst ekki að hemja krabbann, þannig að krabbinn fór í beinin og þá er ekki sökum að spyrja. Mér hefur oft orðið hugsað til þess að Hafþór hefur átt erfiða ævi. Hann komst sennilega að því í kringum tvítugsaldurinn að hann var samkynhneigður. Það var ekki auðvelt á þeim tíma. En þrátt fyrir þetta að þá átti Hafþór gríð- armarga vini og var mjög vinsæll maður. Hann var sá okkar bræðra, sem var límið í stórfjöl- skyldunni. Við eigum kæra ætt- ingja í Danmörku og það er ég viss um að þau tengsl væri löngu gleymd, ef ekki væri fyrir Hafþór. Hafþór kláraði skyldunámið, sem var þá tvö ár eftir barnaskól- ann. Hann byrjaði strax að vinna, fyrst hjá „Blöndal“, síðar hjá Heildversluninni Festi, þar eftir hjá Ljósum og orku og gerðist síð- an starfsmaður Landsbankans, þar sem hann naut mikilla vin- sælda viðskiptavina. Mér er sérstaklega minnis- stætt hvað Hafþór var einstaklega góður og ræktarsamur við móður okkar. Hann ásamt Ívar Kolbeins- syni sambýlismanni hans tóku mömmu með sér í allmargar utan- landsferðir, sem hún hefði aldrei farið í annars. Móðir okkar hvatti okkur til að kaupa okkur íbúð snemma og láta svo leiguna borga afborganir fyrstu árin. Hafþór eignaðist sína fyrstu íbúð að mig minnir 18 ára. Hann kynntist sambýlismanni sínum honum Ívari í kringum tví- tugsaldurinn og þeir bjuggu sam- an alla tíð. Framan af var einhver feluleikur í gangi en að því kom að feluleiknum lauk og þeir létu pússa sig saman fyrir nokkrum árum. Ég sá mynd af Hafþóri eftir athöfnina og svipurinn var eins og að öllum áhyggjum heimsins væri lokið. Ívar lést 28. apríl 2021 og hann hafði verið mikið veikur áður en hann flutti á annað tilverusvið. Hafþór var líka orðinn talsvert veikur þá, en hann annaðist Ívar af fremstu getu. Þeir voru svo lánsamir að eiga góðar vinkonur sem bjuggu einnig að Sólheimum 23. Sólveig Hall- dórsdóttir og Margrét Alexand- erdóttir. Þær hjálpuðu Hafþóri mikið í veikindum Ívars og stóðu þétt við hlið Hafþórs í veikindum hans. Þær eiga miklar þakkir skil- ið. Hafþórs verður sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Dagþór Haraldsson. Hafþór er laus undan kvölum sem fylgja erfiðum sjúkdómi. Haf- þór tókst á við sjúkdóminn eins og annað á sínum lífsferli, þ.e. með ótrúlegum léttleika, áræðni, hug- rekki og æðruleysi að vopni. Hann lét lítið fyrir sér fara og var líklega einn af þeim sjúklingum sem ekki þurfti mikið að hafa fyrir. Alveg sama hvað á gekk, alltaf var sama svarið „mér líður bara vel“. Án efa hefur kærleiksríkt uppeldi haft einhver áhrif. Við höfum fylgst að í lífinu í um 67 ár og var Hafþór alltaf dyggur stuðningsaðili „litla“ bróður. Ég væri ekki þar sem ég er í lífinu án stuðnings Hafþórs bróður og er þakklátur fyrir hans innlegg í okkar líf. Félagarnir Hafþór og Ívar bjuggu sér fallegt heimili. Heim- ilið var skreytt fallegum hlutum og einkum málverkum. Ástríða fyrir fallega hluti smitaðist í okkur fjölskylduna og gerði líf okkar lit- ríkara. Þannig hafði Hafþór góð áhrif á okkur og sitt umhverfi. Hafþór sýndi yngri frændum og frænkum mikla alúð. Hann sýndi þeim áhuga og þau hændust að honum. Hann varð afar ánægð- ur þegar elsti sonur okkar Eggert Oddur og eiginkona hans Erin nefndu frumburð sinn í höfuðið á Hafþóri, en snáðinn heitir Alex- ander Hafþór. Hafþór vann ýmis störf, m.a. hjá Verslunarfélaginu Festi, Ljós- um og orku en lengst af í útibúi Landsbankans við Langholtsveg. Hans leiðarljós var að veita ein- staka þjónustu. Í gegnum þessi störf þekkti Hafþór fjöldann allan af fólki sem bar mikinn hlýhug til hans. Hef oft velt fyrir mér af hverju svo margt fólk bar svona hlýjar tilfinningar til Hafþórs. Held að margar ástæður séu til staðar en ekki síst jákvæðni, hlý- leiki, traust og framúrskarandi þjónustulund sem flestir meta mikils. Stundum kynnist maður fólki betur við ævilok en öll fyrri ár og ekki síst þegar maður er með við- komandi í fríi frá daglegu amstri. Slíkt er hluti af lífinu þar sem flestir eru uppteknir af að vaxa úr grasi, giftast og koma sér fyrir o.s.frv. Hafþór fór með okkur hjónunum utan fyrir nokkrum ár- um. Í þeim rólegheitum sem ger- ast oft þegar fólk er í fríi þá var mikið spjallað, m.a. um lífið og til- veruna. Hafþór sagði frá sinni ævi og kom þar fram margt sem var áhugavert. Einkum áhuga hans að verða kennari á sínum yngri ár- um. Við erum þess fullviss að hann hefði orðið góður kennari vegna sinna mannlegu eiginleika. Hann var glaðvær, áhugasamur, en gat verið fastur fyrir eins og góður kennari. Það eru ekki margir sem takast á við að undirbúa sinn síðasta dag eins og Hafþór. Slíkt krefst hug- rekkis sem hann hafði. Allt var rætt og undirbúið og allt átti að vera eins og útför Ívars sem var aðeins fyrir nokkrum mánuðum síðan. Hafþór er nú laus undan þján- ingum og tiltekið atvik á síðasta degi bendir til að hans hafi beðið hópur fólks þar sem fremstur í flokki úrvals einstaklinga, var lífs- förunautur hans, Ívar. Við þökkum Hafþóri fyrir allt það sem hann hefur gefið okkur og gert líf okkar og okkar fjöl- skyldu ríkulegra en ella. Birgir Ómar, Hrafnhildur og fjölskylda. Ég var að vinna í tískuvöru- verslun á Laugaveginum þegar ungur ljóshærður maður snarað- ist þar inn. Hann var áberandi myndarlegur og ljúfur í fasi. Ég vissi ekki þá að þessi sölumaður ætti eftir að verða einn minn besti vinur og samstarfsmaður í líknar- og vinafélaginu Bergmáli. Þessi drengur var engum öðrum líkur. Jákvæður, góðviljaður, ham- hleypa til verka og sölumennska var honum í blóð borin; þar vorum við heppin, alltaf í fjáröflun, enda hvorki styrkt af ríki né opinberum aðilum. Hafþór vildi öllum gott gera og eignaðist vini hvar sem hann fór. Við Bergmálsfélagar söknum hans sárt. Biðjum Guð að blessa minningu hans og alla sem syrgja hann. Ég þakka áralanga vináttu sem aldrei bar skugga á og allt okkar nána samstarf. Góð- ur drengur er genginn sem ég mun minnast alla tíð með gleði og virðingu. Bergmálskveðjur, Kolbrún Karlsdóttir. Sá síðasti úr yndislega Sól- heimagenginu okkar hefur kvatt okkur. Það var okkar gæfa að kaupa okkar fyrstu íbúð í Sól- heimum 23 en þar kynntumst við Hafþóri og Ívari. Einn daginn birtist Hafþór og spurði hvort hann mætti koma með gest til okkar til að skoða íbúðina sem hann vissi að við vorum búin að taka í yfirhalningu og hann lang- aði til að sýna vinkonu sinni hvað hægt væri að gera. Það var sjálf- sagt mál og þarna urðum við vinir. Hafþór hafði svo fallega útgeislun, sjarmör fram í fingurgóma, alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd og að gleðja aðra, alltaf með bros á vör. Það var ósjaldan að við kom- um heim að einhver glaðningur beið við dyrnar fyrir dætur okkar. Einna minnisstæðast er þegar hann hringdi í okkur til Hollands til að segja okkur frá því að þeir væru búnir að kaupa sumarbú- stað. Hann var svo ánægður enda var sumarbústaðurinn þeirra sælureitur og dásamlegt að koma þangað. Elsku Hafþór okkar, takk fyrir alla vináttuna þessi ár. Það er huggun að þið Ívar eruð núna sameinaðir aftur, þú saknaðir hans sárt enda voruð þið mjög nánir. Við munum halda í hefðina með aðventukaffið okkar, bara öðruvísi en áður. Við vottum bræðrum Hafþórs, fjölskyldum þeirra og öllum vin- um hans samúð okkar. Hanna og Kári. Þá er elsku vinur minn Hafþór Haraldsson farinn. Ég vissi um veikindi hans síðustu árin og hafði ekki heyrt frá honum um tíma, en ég vonaði auðvitað að hann væri frekar í fríi í sólarlöndum en að hann væri á spítala. En það leit ekki út fyrir það. Við höfðum skrifast á á milli Ástralíu og Ís- lands í ótal ár. Við hittumst og unnum saman í Langholtsútibúi Landsbankans í átta ár frá 1979 til 1987. Það varð strax huglæg tenging á milli okk- ar, enda bæði í krabbamerkinu. Þau kynni sem vinátta náðu svo yfir hnöttinn þegar örlögin sendu mig til Ástralíu. Sumar sálir koma til jarðar til að vera þjónar. Það var svo sann- arlega hlutverk Hafþórs. Brosið sem allir fengu og viðmót hans til að gera það besta fyrir hvern og einn sem kom að afgreiðsluborð- inu í Langholtinu. Útibúi sem því miður er búið að leggja niður. Hann fékk flotta veislu þegar hann lauk þjónustu sinni í Lands- Hafþór Haraldsson ✝ Hólmfríður Þóra Guðjóns- dóttir var fædd í Saurbæ á Vatnsnesi 11. apríl 1922. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hrafnistu við Brúnaveg 27. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðjón Guðmundsson, f. 27.5. 1893, d. 27.7. 1975, og Ragn- heiður Björnsdóttir, f. 14.5. 1890, d. 8.4. 1947. Systkini Hólmfríðar voru Jónas Þorbergur, f. 4.11. 1916, d. 4.12. 2004, Björn, f. 17.5. 1919, d. 27.3. 1989, Þorgrímur Guðmundur, f. 18.11. 1920, d. 14.4. 1985, og tví- burasystir hennar Ásdís Margrét, f. 11.4. 1922, d. 5.1. 2002, Gunnar, daga, f. 23.1. 1966, dótturina Sól- veigu Erlu, f. 29.4. 1967. Sólveig var í sambúð með Gunnari Lundal Friðrikssyni, f. 6.4. 1958. Fyrir átti Gunnar dótturina Sigrúnu Ósk, f. 31.7. 1978. Með Gunnari eignaðist hún tvö börn, Söru Björk, f. 17.5. 1985. Sara eignaðist dótturina Önju Björk, f. 7.12. 2006, með Hrannari Jónssyni, f. 5.4. 1985. Jafnframt á hún soninn Alexander Darra Söruson, f. 10.3. 2022. Ann- að barn Sólveigar Erlu er Róbert, f. 14.5. 1988. Hann er í sambúð með Katrínu Líndal Stefáns- dóttur, f. 29.4. 1989. Þau eiga son- inn Frosta, f. 2.8. 2021. Núverandi eiginmaður Sólveigar er Jón Steinar Jónsson, f. 14.10. 1963, og eiga þau dótturina Thelmu Rut, f. 20.8. 1995. Fyrir átti Jón Steinar dótturina Elsu Lind, f. 30.10. 1986. Thelma er í sambúð með Alexand- er Irving Guridy Peralta. Þriðja barn Ragnars er Hlynur Ívar, f. 16.6. 1971. Eiginkona Hlyns er Vigdís Braga Gísladóttir. Þau eiga börnin Hilmar Bjarka, f. 2.3. 2007 og Emelíu Björk, f. 4.1. 2009. Fyr- ir átti Hlynur soninn Kristófer Anton, f. 14.1. 1995 með Elínu Maríu Sveinbjörnsdóttur, f 13.2. 1975. Kristófer er í sambúð með Hrafntinnu Grettisdóttur, f. 7.1. 1992. Þau eiga soninn Úlf Myrkva, f. 16.3. 2021. Fyrir átti Vigdís son- inn Arnar Snæland, f. 6.7. 1996. Núverandi eiginkona Ragnars er Þórhalla Snæþórsdóttir, f. 24.11. 1946. Annar sonur Hólmfríðar var Guðjón Þór, f. 30.11. 1953, d. 12.1. 1973. Andlát Guðjóns Þórs var þeim hjónum þungt áfall sem seint fennti yfir og skömmu seinna missti Friðrik heilsuna. Hún hjúkraði honum heima af þar til yfir lauk. Hún var nefnd „Góða konan á horninu“. Hún bjó á horni Sogavegar og Réttarholtsvegar og stoppistöð Strætó var fyrir framan húsið. Hún vildi öllum gefa hvort heldur voru börnin úr braggahverfinu, dæmdir saka- menn eða allar konurnar sem komu við og supu úr kaffibolla, sem kannski var svo hvolft og les- ið úr honum á eftir. Útförin fer fram í dag, 22. apríl 2022, klukkan 10 frá Bústaða- kirkju. f. 7.8. 1925, d. 12.2. 1995, Ólafur, f. 1.6. 1928, d. 12.2. 1975, og hálfsystir Hólm- fríðar, Rósa Guðjóns- dóttir, f. 25.4. 1933, d. 3.5. 2006. Hólmfríður var fædd og uppalin í Saurbæ á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatns- sýslu. Eiginmaður hennar var Friðrik Jónsson, f. 21.7. 1908, d. 6.11. 1986, húnvetnskrar ættar, og fluttu þau til Reykjavíkur og hófu þar búskap. Þau byggðu hús- ið sitt á Sogavegi 106 og fluttu í það árið 1952 og bjó hún þar til ársins 2004. Eignuðust þau tvo syni: Ragnar Friðriksson, f. 21.9. 1942. Hann kvæntist Nínu Victors- dóttur og eignuðust þau þrjú börn, son sem andaðist nokkurra Kæra tengdamamma, nú ertu farin yfir í sólarlandið þar sem fjölskyldan þín, sem á undan er farin, beið þín. Þú varst búin að bíða þessarar stundar. Enda árin á þessu tilverustigi orðin mörg, vantaði aðeins hálfan mánuð í hundrað ára afmælið. Þú varst sterk kona á þinn hægláta hátt sem öllum vildir gott. Enda var það ekki að ástæðulausu sem þú varst kölluð góða konan á horninu. Þú bjóst á horni Sogavegar og Réttarholts- vegar í rúm fimmtíu ár. Dyr þín- ar stóðu ávallt opnar hvort held- ur var fyrir háum eða lágum. Ég hitti þig fyrst aldamótaárið. Það ár reis mín hamingjusól þegar ég kynntist Ragnari, syni þínum. Við urðum strax vinkonur sem spjölluðum saman um gamla og nýja tíma. Þú sagðir mér gjarnan ágrip úr ævisögu þinni, t.d. þegar þú lentir í árekstri. Þetta var árið 1953 og þú varst þá ófrísk af yngri syninum. Við áreksturinn hentist þú út úr bílnum og fleyttir kerlingar á rassinum langar leið- ir, en þegar þú stoppaðir var ann- ar lærleggurinn illa brotinn. Það sem eftir var meðgöngunnar varstu í gifsi og ýmist heima eða á sjúkrahúsi. Við áttum margar ánægju- stundir saman á ferðalögum, þvers og kruss um landið. Þá endurlifðir þú þær stundir sem þið Friðrik höfðuð átt. Þegar þið fóruð með Ragnar, sem lítinn snáða, í bílnum ykkar eftir hol- óttum moldarvegum landsins. Þú last á landakortið og Friðrik keyrði. Það voru ánægjustundir, sagðir þú mér. Þú varst eins og kletturinn í hafinu sem allt stóð af sér, stoð og stytta fjölskyldunnar. Amma á Sogavegi var alltaf til staðar fyrir alla, alltaf heima og alltaf tilbúin að hlusta. Þú varst búin að dvelja á Hjúkrunarheimili DAS við Brúnaveg síðustu sautján árin. Það var góður tími. Starfs- fólkið þar var allt vinir þínir. Við aðstandendur Hólmfríðar viljum nota tækifærið og senda okkar innilegustu þakkir til starfs- fólksins, fyrir alla umhyggjuna og ástúðina sem henni var sýnd. Þó ég sé látinn, syrgið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þó látin sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf.ók.) Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir, Þórhalla Snæþórsdóttir. Gengin er gömul vinkona mín til áratuga, Hólmfríður Þóra Guð- jónsdóttir. Hún var góð vinkona móður minnar og í mínum upp- vexti kölluðum við hana alltaf Fríðu. Hún var sérlega glaðlynd kona og oft sátum við þrjár saman í eldhúsinu hjá mömmu og hlógum að lífinu og tilverunni. Ég átti líka oft erindi þarna um hverfið, stund- um til að heimsækja hjón nokkur sem áttu son sem lést af slysförum sem ungur maður og ég var skírð í höfuðið á. Þá heimsótti ég oft Fríðu líka í leiðinni og átti góða stund með henni því hún var svo yndisleg manneskja og gegnum- góð. Ég hélt málverkasýningu ár- ið 1985 og þar var málverk sem ég gaf Fríðu. Þegar ég löngu síð- ar hitti hana á Hrafnistu sá ég málverkið uppi á vegg hjá henni og hún vildi endilega skila því aft- ur til mín. Ég verð að viðurkenna að núna þegar hún er fallin frá, næstum hundrað ára gömul, er ég glöð að eiga málverkið því það minnir mig á elsku Fríðu. Ég ætla að senda Fríðu ljóð sem ég orti til hennar með kærri kveðju. Ég vona að henni líði vel í næstu tilveru en við trúðum báðar á lífið eftir dauðann. Ég votta aðstand- endum Fríðu mína innilegustu samúð. Fallin flogin hjarta rós í friðarfaðm látna bráin. Himna hlífin engils ljós hyggð, bljúg rósin dáin. Sést í sólrof himins ljós Sorgagrát í tryggðatárin. Harmtregi á kvalavegi hryggðin farin að reika. Hjartahlýja bæn á degi í helgs engils veruleika. Sést sólblik í Jesús ljós sorg í söknuð, sáratárin. Ert laus frá lífs þrautum og liðin jarðvistin langa. Líf leiðarléttis á brautum lokið bljúgt, góða ganga. Á leið í frelsi yfir lautum ljós englasól í eilífðatárin. (Jóna Rúna Kvaran) Jóna Rúna Kvaran. Hólmfríður Þóra Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.