Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2022 Mjólkurbikar karla 2. umferð: Höttur/Huginn – Einherji ....................... 3:2 Kórdrengir – Álftanes.............................. 5:0 Fylkir – Úlfarnir....................................... 5:0 Ægir – KFS .............................................. 1:0 Uppsveitir – Reynir S .............................. 0:4 KF – Magni ...................................... (frl.) 0:2 Reynir He. – ÍR ...................................... 0:16 England Burnley – Southampton.......................... 2:0 - Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Staðan: Manch. City 32 24 5 3 75:20 77 Liverpool 32 23 7 2 83:22 76 Chelsea 31 18 8 5 66:27 62 Tottenham 32 18 3 11 56:38 57 Arsenal 32 18 3 11 49:39 57 Manch. Utd 33 15 9 9 52:48 54 West Ham 33 15 7 11 52:43 52 Wolves 32 15 4 13 33:28 49 Leicester 31 11 8 12 47:51 41 Brighton 33 9 13 11 29:40 40 Newcastle 33 10 10 13 37:55 40 Brentford 33 11 6 16 41:49 39 Southampton 33 9 12 12 38:54 39 Crystal Palace 32 8 13 11 43:41 37 Aston Villa 31 11 3 17 42:46 36 Leeds 32 8 9 15 38:68 33 Everton 31 8 5 18 34:53 29 Burnley 32 5 13 14 28:45 28 Watford 32 6 4 22 30:62 22 Norwich City 32 5 6 21 22:66 21 Spánn Osasuna – Real Madrid............................ 1:3 Espanyol – Rayo Vallecano..................... 0:1 Levante – Sevilla ...................................... 2:3 Cádiz – Athletic Bilbao ............................ 2:3 Real Sociedad – Barcelona ...................... 0:1 Staða efstu liða: Real Madrid 33 24 6 3 69:29 78 Barcelona 32 18 9 5 61:32 63 Sevilla 33 17 12 4 49:27 63 Atlético Madrid 33 18 7 8 59:39 61 Real Betis 33 17 6 10 56:38 57 Real Sociedad 33 15 10 8 32:31 55 Grikkland Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikur: PAOK – Olympiacos................................ 0:0 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. - Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Svíþjóð Helsingborg – Elfsborg .......................... 1:0 - Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á hjá Elfsborg á 67. mínútu en Hákon Rafn Valdimarsson var varamarkvörður liðsins. Noregur Bikarkeppnin, undanúrslit: Bodö/Glimt – Viking............................... 2:1 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt sem mætir Molde í úrslitum. - Patrik S. Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson lék í 85 mín- útur með liðinu. 4.$--3795.$ Olísdeild karla 8-liða úrslit, fyrsti leikur: ÍBV – Stjarnan ..................................... 36:27 Valur – Fram ........................................ 34:24 Grill 66-deild karla Umspil, undanúrslit, fyrsti leikur: Fjölnir – Þór ......................................... 28:24 ÍR – Kórdrengir........................... (frl.) 37:34 Undankeppni EM kvenna 3. riðill: Grikkland – Þýskaland ........................ 11:40 Hvíta-Rússland – Holland ..................... 0:10 _ Holland 10, Þýskaland 7, Grikkland 4, Hvíta-Rússland 1. 5. riðill: Portúgal – Ungverjaland..................... 18:30 _ Ungverjaland 8, Spánn 8, Portúgal 4, Slóvakía 0. Evrópubikar EHF kvenna Norður-Makedónía – Noregur .......... 18:24 - Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Slóvenía – Svartfjallaland.................... 28:33 _ Noregur 10, Svartfjallaland 6, Slóvenía 4, Norður-Makedónía 0. Þýskaland RN Löwen – Stuttgart ........................ 28:23 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. - Viggó Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir Stuttgart en Andri Már Rúnarsson ekkert. Balingen – N-Lübbecke ...................... 26:21 - Daníel Þór Ingason skoraði ekki fyrir Balingen og Oddur Gretarsson er meiddur. Frakkland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Nantes – Aix......................................... 32:27 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir Aix. París SG – Montpellier ....................... 41:24 - Ólafur Andrés Guðmundsson lék ekki með Montpellier vegna meiðsla. %$.62)0-# HANDBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valur og ÍBV voru ekki í teljandi vandræðum með andstæðinga sína, Fram og Stjörnuna, í fyrstu leikjum átta liða úrslita Íslandsmóts karla í handknattleik í gær. Miðað við þann mun sem var í báðum leikjum kæmi á óvart ef grípa þyrfti til oddaleikja í öðru hvoru þessara einvígja. Lið Stjörnunnar er þó líklegra en Safa- mýrarliðið til að eiga möguleika á að jafna einvígið á sínum heimavelli. Vendipunkturinn hjá Val og Fram á Hlíðarenda kom eftir 20 mínútna leik en þá var staðan 11:9, Vals- mönnum í hag. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, einn lykilmanna Safa- mýrarliðsins, fékk þá rauða spjaldið og kom því ekki meira við sögu. Valsmenn skoruðu í kjölfarið fimm mörk í röð, komust í 16:9, og öll spenna var horfin úr leiknum eft- ir það. Staðan í hálfleik var 18:11 og lokatölur síðan 34:24. Magnús Óli Magnússon var markahæstur Valsara með sjö mörk en næstur var Finnur Ingi Stef- ánsson með fimm mörk, þar af eitt úr vítakasti. Þá varði Björgvin Páll Gústavsson 16 skot, þar af þrjú víti, og var valinn maður leiksins. Reynir Þór Stefánsson var markahæstur Framara með sjö mörk, og næstur var Kjartan Þór Júlíusson með sex. Skjóta í hausinn á mér Björgvin Páll lýsti eftir leikinn yf- ir óánægju með skotval leikmanna Fram. „Það eru skýr skilaboð að skjóta yfir hausinn á mér eða í haus- inn á mér. Annaðhvort gera þeir þetta viljandi eða eru svona lélegir. Ég veit að þeir eru góðir hand- boltamenn svo það hlýtur að vera það fyrra,“ sagði Björgvin Páll við Jóhann Inga Hafþórsson á hand- boltavef mbl.is en þar er fjallað nán- ar um leikinn. Sæt hefnd Eyjamanna ÍBV náði undirtökunum gegn Stjörnunni á sannfærandi hátt með því að vinna leik liðanna með níu mörkum, 36:27, í Eyjum í gær. Þar hefndu Eyjamenn rækilega fyrir ell- efu marka skell á heimavelli gegn Garðabæjarliðinu fyrr í vetur. ÍBV komst mest átta mörkum yfir í fyrri hálfleik en staðan var 18:12 að honum loknum. Stjarnan náði að minnka muninn í þrjú mörk um tíma en síðan stakk ÍBV af á lokakafl- anum og komst mest tíu mörkum yf- ir. Arnór Viðarsson var markahæst- ur í liði ÍBV með 7 mörk en Kári Kristján Kristjánsson, Sigtryggur Daði Rúnarsson og Rúnar Kárason skoruðu fimm mörk hver. Marka- hæstu leikmenn Stjörnunnar voru Björgvin Þór Hólmgeirsson og Brynjar Hólm Grétarsson, hvor með 5 mörk. _ Leikir númer tvö í báðum ein- vígjum fara fram á sunnudag en ef til oddaleikja kemur fara þeir fram næsta miðvikudagskvöld. Stórsigrar Vals og Eyjamanna - Rautt spjald var rothögg fyrir Fram Morgunblaðið/Óttar Geirsson Hálstak Valsmaðurinn Arnór Snær Óskarsson fær óblíðar móttökur hjá vörn Fram í grannaslag liðanna á Hlíðarenda í gærkvöld. FH sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að óskað hafi verið eftir því við knattspyrnu- manninn Eggert Gunnþór Jónsson að hann myndi stíga tímabundið til hliðar sem leikmaður og þjálfari hjá félaginu. Eggert hafi verið ósáttur við þessa ósk en sýnt að- stæðum skilning og samþykkt hana. Mál Eggerts og Arons Einars Gunnarssonar vegna meintrar nauðgunar í landsliðsferð árið 2010 er í rannsókn en FH var gagnrýnt fyrir að tefla Eggerti fram gegn Víkingi fyrr í þessari viku. Eggert stígur til hliðar hjá FH Morgunblaðið/Unnur Karen FH Eggert Gunnþór Jónsson leikur ekki með liðinu á næstunni. Hollendingurinn Erik ten Hag verður næsti knattspyrnustjóri Manchester United og tekur við lið- inu af Ralf Rangnick í sumar en þetta staðfesti enska félagið í gær- morgun. Ten Hag er 52 ára gamall og lék sjálfur 336 deildaleiki í Hollandi. Hann stýrði varaliði Bayern Münc- hen í tvö ár, síðan hollenska liðinu Utrecht í tvö ár en hefur stýrt Ajax frá 2017. Ajax er á góðri leið með að verða hollenskur meistari í þriðja sinn á fimm árum undir hans stjórn. Ten Hag tekur við United í sumar AFP Ajax Erik ten Hag hefur verið sig- ursæll með hollensku meistarana. KÖRFUBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Tvö efstu lið úrvalsdeildar karla í vetur standa höllum fæti eftir fyrstu tvo leiki undanúrslita Íslandsmóts karla. Valsmenn lögðu Þór í fram- lengdum leik í Þorlákshöfn í fyrra- kvöld og Tindastólsmenn fylgdu því eftir með því að knýja fram sigur í stórskemmtilegum leik gegn Njarð- víkingum í Ljónagryfjunni í gær- kvöld, 84:79. Tindastóll og Valur fá því kjörin tækifæri til að komast í 2:0 á eigin heimavelli þegar liðin mætast öðru sinni annað kvöld og á sunnudags- kvöldið, á Hlíðarenda og á Sauð- árkróki. Leikurinn í Njarðvík var galopinn og spennandi frá fyrstu mínútu til síðustu og liðin skiptust á um að taka rispur og ná forystunni nánast leik- inn á enda. Þá síðustu áttu Skagfirð- ingar sem voru undir, 74:73, en skor- uðu þá sjö stig í röð sem var of mikið fyrir Njarðvíkinga á lokakaflanum. Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 20 stig fyrir Tindastól, Taiwo Badmus 17 og Pétur Rúnar Birgisson 16. Hjá Njarðvíkingum voru langbestir þeir Fotios Lampro- poulos með 30 stig og 12 fráköst og Dedrick Deon Basile sem átti 19 stig, 10 stoðsendingar og 7 fráköst. Greinilegt er að Tindastólsmenn koma afar vel stilltir inn í úr- slitakeppnina. Þeir hafa unnið fjóra af sex leikjum sínum þar gegn Suð- urnesjaliðunum og þar á undan unnu þeir síðustu sjö leiki sína í deild- arkeppninni. Þessi fjögur lið sem nú heyja rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn eru annars ákaflega jöfn að styrk- leika og virðast geta unnið hvert annað hvar sem er og hvenær sem er. Það þyrfti því ekkert að koma á óvart þó bæði einvígin myndu enda með oddaleikjum. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Ljónagryfjan Skagfirðingurinn Zoran Vrkic hefur gætur á Njarðvík- ingnum Hauki Helga Pálssyni í fyrsta undanúrslitaleik liðanna í gærkvöld. Topplið deild- arinnar eru í erfiðri stöðu - Tindastólsmenn sigruðu í Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.