Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýr sigmaður á þyrlum Landhelgisgæslunnar fékk eldskírn
og æfingu á laugardag þegar hann renndi sér úr TF-EIR nið-
ur að Óðni sem var á siglingu í Garðsjó, út af Stafnesi. Varð-
skipið gamla, sem nú hefur fengið haffærnisskírteini sem
safnskip, var á leið til Grindavíkur og var þar til sýnis í tilefni
af sjómannadeginum. Skipinu hefur á ýmsa lund verið gert til
góða á síðustu árum og reyndist vel í túrnum, þeim fyrsta eft-
ir áralangt stopp. Í bæjum við strönd landsins var margt gert
til gamans og yndisauka á degi sjómanna. Hátíðin sú á sér
langa sögu og hefur sömuleiðis sterka vitund í huga þjóðar
sem byggir afkomu sína að stórum hluta á því að vel veiðist og
aflinn skili sem mestum verðmætum. »6 og 11
Sigið úr þyrlu í safnskipið Óðin sem sigldi í Garðsjó
Hátíðahöld um sjómannadagshelgina fjölbreytt og margt gert til yndisauka
M Á N U D A G U R 1 3. J Ú N Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 136. tölublað . 110. árgangur .
EFTIRMINNILEG
SIGLING MEÐ
VARÐSKIPINU
KRISTÍN FÓR
HEIM MEÐ
ÞRJÚ SILFUR
BJARTMAR
GUÐLAUGS
SJÖTUGUR
LYFTINGAR 26 LISTAMAÐUR 24GUÐNI TH. MEÐ Í FÖR 11
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og
menningarmálaráðherra, harmar
banaslys sem varð í Reynisfjöru á
föstudag og telur slysin of mörg.
Lögreglu er heimilt að loka hættu-
legum svæðum en upp á vantar að
ákveða hvernig heimildinni er beitt.
Vilt þú að það sé hægt að loka
ferðamannastöðum á borð við Reyn-
isfjöru, ef svo ber undir?
„Já. Það er mín skoðun. Ég sem
ráðherra málaflokksins horfi auðvit-
að á heildarhagsmuni hans. Það er
ekki gott fyrir heildina þegar það eru
orðnir einhverjir stórhættulegir
staðir og við gerum ekkert í því,“
segir hún. Vissu-
lega hafi verið
gripið til ráðstaf-
ana á borð við
merkingar en
ferðamenn virða
þær gjarnan að
vettugi. „Það
fyrsta sem ég
gerði þegar ég
varð ráðherra [yf-
ir þessum mála-
flokki] var að skipa starfshóp um
Reynisfjöru og hvort það ætti að
loka henni hreinlega,“ segir Lilja en
hún varð ráðherra ferðamála í jan-
úar.
„Það er orðsporsáhætta í þessu
sem ég þarf að hugsa um. Því þetta
er ákveðið svæði og þetta er síend-
urtekið,“ segir hún, auk þess sem
landeigendum og þeim sem hafa af-
not af svæðinu hafi ekki tekist að ná
utan um málið. „Við auðvitað köllum
eftir öllu því samstarfi þar sem við
viljum vinna með landeigendum,“
segir hún.
Úrbætur runnu út í sandinn
Tillögur að úrbótum á svæðinu,
sem höfðu þegar verið fjármagnað-
ar, runnu út í sandinn vegna mót-
mæla nokkurra landeigenda svæðis-
ins. Aftur á móti hafa aðrir
landeigendur beitt sér fyrir auknu
öryggi í fjörunni.
Vill nýta heimildir til
lokana í Reynisfjöru
- Lilja telur banaslysin of mörg - Orðsporsáhætta fyrir landið
MFlestir landeigendur vilji … »4
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
„Hlutirnir hafa breyst mikið eftir
að ég varð móðir,“ sagði knatt-
spyrnu- og landsliðskonan Dagný
Brynjarsdóttir í Dætrum Íslands,
vefþætti mbl.is sem framleiddur er
af Studio M, en hún eignaðist sitt
fyrsta barn, soninn Brynjar Atla, í
júní 2018.
Dagný, sem er þrítug, gekk til
liðs við West Ham á Englandi í
janúar á síðasta ári en hún skrifaði
á dögunum undir nýjan tveggja ára
samning við félagið.
Miðjumaðurinn á að baki 101 A-
landsleik fyrir Ísland þar sem hún
hefur skorað 34 mörk en hún lék
sinn fyrsta A-landsleik gegn
Bandaríkjunum í febrúar 2010, þá
18 ára gömul.
„Áður en ég varð mamma þá var
ég bara sjálfselskur íþróttamaður,“
sagði Dagný.
„Maður fær aðra sýn á lífið eftir
að hafa eignast barn og þó að það
sé ógeðslega gaman í fótbolta þá er
miklu skemmtilegra að vera
mamma.
Ég er ótrúlega þakklát fyrir
þetta hlutverk“ sagði Dagný meðal
annars. bjarnih@mbl.is »10
Ótrúlega þakklát
fyrir þetta hlutverk
Morgunblaðið/Hallur Már
West Ham Dagný er samnings-
bundin West Ham á Englandi.