Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 4
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reynisfjara Ráðherra bíður eftir skýrslu starfshóps um lokanir á fjölsóttum ferðamannastöðum á borð við Reynis- fjöru. Þar lést erlendur ferðamaður á föstudag þegar alda hreif hann með sér. Ráðherra telur öryggi ábótavant. - Ráðherra skoðar hvort hægt sé að loka ferðamannastöðum Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, einn landeigenda að Reynisfjöru, hefur beitt sér fyrir því að Ferðamála- stofa haldi áfram samráði við land- eigendur að Reynisfjöru og að ör- yggismál á svæðinu verði bætt enda séu slysin of algeng. Hins vegar hægði nokkuð á þeim viðræðum eft- ir að andstöðu gætti á meðal nokk- urra landeigenda sem hafa hags- muna að gæta vegna veitinga- reksturs á svæðinu. „Við erum langflest sammála um að það ætti að loka fjörunni ef ástæða er til, eða hefta aðgengi að einhverju leyti,“ segir Ragnhildur. Hún telur mikil- vægt að gripið verði til öryggisráð- stafana á svæðinu og að landeig- endur séu mun opnari nú en áður fyrir viðræðum um síkt en frum- kvæði af hálfu stjórnvalda virðist hafa skort. Ferðamálastjóri telur ekki einfalt að loka stöðum Tillögur að öryggisúrbótum á svæðinu lágu fyrir fyrir rúmum tveimur árum. Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir að tryggt hafi verið fjármagn fyrir þeim en liggja þurfti fyrir samþykki allra landeigenda. Það fékkst ekki. Vinnuhópur á vegum þáverandi ferðamálaráðherra, Þórdísar Kol- brúnar R. Gylfadóttir, hafði lagt til að setja upp viðvörunarfána og blikkljós sem gefa ljósmerki þegar mest brimar í fjörunni. Skarphéðinn segir að þó séu laga- heimildir til staðar til þess að loka hættulegum stöðum og þarf þá ekki samþykki landeigenda. „Við höfum verið að skoða við hvaða aðstæður á að loka en þá vakna ýmsar spurn- ingar. Miðast lokunin við tiltekið gildi í mælingu? Hvenær á að loka, ef það á ekki alltaf að vera lokað? Á þá alltaf að loka fjörunni þegar hún er hættuleg og hver tekur þá ákvörðun um að loka? Síðan er þetta ekki eini áfangastaður ferðamanna sem er hættulegur við einhverjar kringumstæður, þeir eru margir og út um allt land,“ segir Skarphéðinn. Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarmálaráðherra, er tilbúin í að nota þær lagaheimildir sem eru til staðar til þess að loka ferða- mannastöðum á borð við Reynis- fjöru. Hún harmar dauðsfall sem þar varð á föstudag þegar alda hreif með sér ferðamann og segir Lilja slysin of mörg. Jafnframt segir Lilja það hafa verið eitt af sínum fyrstu verkum að skipa starfshóp sem kannar nú hve- nær hægt er að beita þeim heim- ildum sem eru til staðar til að loka hættulegum ferðamannastöðum. „Þetta er ekki gott. Öryggismálin eiga ávallt að vera í forgangi,“ segir hún. Spurð hvort réttlætanlegt sé að lokunum sé beitt á sumum stöð- um frekar en öðrum segir hún: „Við sjáum hvar þessi banaslys eru að eiga sér stað og það er í Reynis- fjöru.“ Tók starfshópurinn til starfa í byrjun árs og var þá ráðgert að hann myndi skila af sér skýrslu inn- an þriggja mánaða. „Ég á von á því að starfshópurinn skili af sér rétt fyrir sumarleyfi eða eftir sumar- leyfi,“ segir hún. Sem ráðherra málaflokksins horf- ir Lilja til heildarhagsmuna ferða- þjónustunnar og telur hún mikil- vægt að horfa til orðsporsáhættu, sem fylgir slysunum. „Við eigum að hámarka ánægju fólk sem heimsæk- ir landið okkar og tryggja að fólk upplifi sig öruggt.“ Mun starfshóp- urinn hafa samráð við hagaðila, skil- greina eftir því sem kostur er hvaða staðir geti ógnað öryggi fólks um- fram aðra og hvernig slíkum heim- ildum sé beitt. Í hópnum sitja fulltrúar frá dómsmálaráðuneytinu, Ferðamálastofu, ríkislögreglustjóra, Samtökum ferðaþjónustunnar, Um- hverfisstofnun og Landsbjörg, auk fulltrúa úr viðskipta- og menningar- málaráðuneyti. Flestir landeigendur vilja bætt öryggi í Reynisfjöru 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á lík A h ð ð b án fy rir va ra . a á sl ík u. . ys t 18. júní í 11 nætur 595 1000 www.heimsferdir.is án fy rir va ra . ey stTenerife Los Olivos Beach Resort 124.400 Flug & hótel frá Frábært verð! á mann 141.900 Flug & hótel frá Fyrir 2 á mann BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN VEL STAÐSETT HÓTEL aaa NÝUPPGERT Gunnhildur Sif Oddsdóttir Karlotta Líf Sumarliðadóttir Meirihluti umhverfis- og samgöngu- nefndar hefur lagt fram nefndarálit um áætlun um vernd og orkunýt- ingu landsvæða. Meðal annars verða Héraðsvötn og Kjalölduveita, sem eru í verndarflokki, færð í bið- flokk, nái áætlunin fram að ganga. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og nefndarmaður umhverfis- og samgöngunefndar, hefur áhyggj- ur af því að svæðin tvö séu færð í bið á forsendum sem hann segir mjög hæpnar. „Þetta eru hvort tveggja svæði sem eru flokkuð í verndarflokk af verkefnastjórninni vegna þess að það er ótvírætt verndargildi á báðum stöðum en rökin sem meirihlutinn notar til að færa þau niður í bið eru ekki góð,“ segir hann og bætir við að rökin beri þess keim að þetta sé pólitísk málamiðlun frekar en að ákvörð- unin sé byggð á faglegum sjón- armiðum. Andrés játar því að hann hafi áhyggjur af að svæðin fari næst í nýtingarflokk. „Þarna er verið að bregðast við umsögnum frá virkj- unaraðilunum á báðum stöðum og þá er sá þrýstingur áfram að reyna að koma þessum virkjunarkostum í nýtingu og þetta er bara fyrsta skrefið í þá átt.“ Þá reiknar hann með að áætlunin verði samþykkt, eini stjórnar- þingmaðurinn sem hafi gefið annað upp sé Bjarni Jónsson, þingmaður VG. „Út á það eitt þá erum við með meirihluta fyrir þessu nema það séu fleiri þingmenn sem rifji upp grænu taugina og fari aðeins að standa með náttúrunni frekar en að hlusta á hagsmunaöflin.“ Orri Páll Jóhannsson, þingflokks- formaður VG og einn nefndar- manna, sagði í samtali við mbl.is í gær að markmiðið með tilfærslunni væri ekki að koma svæðunum í nýt- ingarflokk. Biðflokkurinn þýddi að- eins að ákveðnar virkjunarhug- myndir þyrftu að fara í endurmat. Héraðsvötn og Kjalöldu- veita úr verndarflokki í bið - Skiptar skoðanir í umhverfis- og samgöngunefnd Orri Páll Jóhannsson Andrés Ingi Jónsson Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Guðrún Svanborg Hauksdóttir, yfir- læknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, segir í samtali við Morgunblaðið að niðurstöðu úr greiningu tveggja manna sem taldir eru hafa smitast af apabólu megi vænta í vikunni frá útlöndum en greiningartæki hér á landi hafi sagt til um ættkvíslina, þ.e. að um ortho- pox-veiru sé að ræða, sem og að PCR-próf hafi bent eindregið til þess að mennirnir hafi smitast af apabólu- veiru. Vilja vera fullviss um smit „Við teljum þetta vera apabólu en af því að þetta er allt svo nýtt þá vilj- um við vera fullviss og þá er nátt- úrulega eina vitið að vera öruggur til að byrja með. Ef þetta reynist vera rétt þá er maður aðeins öruggari næst. Við erum með greiningartæki sem segir ættkvíslina og svo erum við með PCR sem benti eindregið til að þetta væri apabóla,“ segir hún. Guðrún segir að um 90% líkur séu á að mennirnir hafi smitast af apabólu. Aðspurð segist hún ekki búast við að veiran smitist innanlands á milli fólks. „Það er mjög ólíklegt að menn- irnir hafi smitað út frá sér því að nú passa sig allir. Það er miklu líklegra ef það greinast fleiri smit að það hafi verið einhver sem hafi verið í útlönd- um og smitast þar. Það er ólíklegt að þetta fari að smitast eitthvað innan- lands á milli fólks. Það er líklegt að þetta deyi út hægt og rólega,“ segir hún. Apabóluveira er orthopox-veira og er náskyld bólusóttarveiru. Að sögn Guðrúnar er meðgöngutími veirunn- ar um 2 vikur, þ.e. frá því að fólk smitast af henni og þar til einkenna verður vart, og fyrstu einkennin geta verið hiti, slappleiki og eitlastækkan- ir. 2-3 dögum eftir að einkenna verð- ur vart koma fram útbrot sem eru fyrst flöt en síðan myndast bólur og loks blöðrur sem eru vökvafylltar. Snertismit og dropasmit Smitleiðir eru snertismit við náið samneyti og dropasmit, en Guðrún segir líkurnar á að smitast með síðar- nefndu smitleiðinni vera litlar. „Í svona einn til tvo daga er fræðilegur möguleiki á að hægt sé að smitast af öndunarfærum viðkomandi, en þá eru þetta dropasmit. Þá ertu með stórar agnir sem detta fljótt til jarð- ar, þannig að maður þarf að vera mjög nálægt viðkomandi og lengi til að geta smitast. En það er mjög ólík- legt að smitast af dropasmiti,“ segir hún. Hins vegar eru snertismit mjög smitandi. „Miklu líklegra er að smit- ast af bólunum, sérstaklega þegar það er kominn vessi í þær, en þessi vessi er svakalega smitandi. Hann kemst ekki í gegnum heila húð en það geta verið litlar rifur í húðinni sem vessinn getur komist í gegnum. Fyrst og fremst smitast maður af snertingu við húð,“ segir hún og bæt- ir við að veiran getur auk þess borist með fatnaði, rúmfötum og handklæð- um yfir í fólk. Aðspurð segir hún að veiran smit- ist aðallega við náið samneyti þar sem viðkomandi kemst í snertingu við smitaða húð. Líkurnar á að smit- ast við kynmök eru miklar en smit eru ekki einvörðungu einskorðuð við slíkar athafnir. Viðræður um bóluefni og veirulyf í gangi Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir í sam- tali við Morgunblaðið að viðræður um hvenær bóluefni og veirulyf komi til landsins séu í gangi. „Þetta er hluti af sama samningi og Covid-bóluefnin voru keypt í gegnum. Þetta er náttúrulega bara í farvegi og allir eru að flýta sér hratt í þessu. Það er mikil eftirspurn eftir þessu bóluefni, en það er líka mikil- vægt að fá veirulyf til landsins,“ segir hún og bætir við að staðan muni skýrast í vikunni. Embætti landlæknis tilkynnti ní- unda maí sl. að tveir karlmenn hefðu greinst með apabólu. Yfirgnæfandi líkur eru á að greiningin sé rétt en smitin má rekja til ferðalags í Evr- ópu og kom fram í tilkynningunni að hvorugur mannanna væri alvarlega veikur. Jafnframt er tekið fram að á meðan einstaklingur er smitandi þá þurfi viðkomandi að vera í einangrun. 90% viss um apa- bóluveirusmit - Innanlandssmit á milli fólks ólíklegt Morgunblaðið/Árni Sæberg Veirufræðideild Tæki hér á landi greindu ættkvísl veirunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.