Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Sjómannadagurinn var haldinn hátíð- legur um allt land í gær og í fyrradag. Síðustu tvö ár hefur ekki verið mögu- legt að halda hann með pompi og prakt vegna þeirra samkomu- takmarkana sem kórónuveiru- faraldrinum fylgdu. Gestir sjó- mannadagsins voru greinilega þyrstir í góða skemmtun því fjörið var í hámarki í hverju sjávarplássi. „Það er greinilegt að meðbyrinn sem var með sjómönnum og sjávar- útvegi árið 1938, þegar þetta var haldið í fyrsta sinn, er engu minni í dag,“ sagði Aríel Pétursson, stjórnar- formaður Sjómannadagsráðs. „Við- tökur við sjómannadeginum eru von- um framar hjá okkur,“ segir hann og bætir við að allir viðburðir dagsins hafi verið gríðarlega vel sóttir. Morgunblaðið/Kristvin Lagt í hann Skrúðganga fór frá Hörpu um hádegisbil en henni lauk á Granda þar sem tók við fjölbreytt dagskrá. Landsmenn fögnuðu með sjómönnum Morgunblaðið/Kristvin Bara fyrir þau sem þora Í borginni var nóg um að vera, til að mynda var hægt að klifra við síldarbryggjuna. Morgunblaðið/Kristvin Heiður Finnbogi Aðalsteinsson, Guðjón Hafsteinn Guðmundsson, Helgi Vignir Kristinsson, Ingvar Friðriksson, Kristinn Daníel Hafliðason, Sig- urður Ólafsson, Ægir Kristmann Franzson og Valdimar H. Sigþórsson voru heiðaraðir í Hörpu fyrir farsæl störf til sjós og björgunarafrek. Morgunblaðið/Karítas Raufarhöfn Þær Dagný Ríkharðsdóttir (t.v.) og Þórdís Sigtryggsdóttir (t.h.) fóru í sjómann á Raufarhöfn enda fátt jafn viðeigandi á degi sjómanna. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Siglt Kátir sjómenn tóku á móti mannskapnum á Drangey SK 2. Deginum var fagnað víðsvegar um land. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Á sjó Frá siglingu á Borgarfirði eystri í tilefni sjómannadagsins. Siglt var frá höfninni við Hafnarhólma undir vökulum augum lundans sem þar býr. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Margt um manninn Frá sjómannadagssiglingu Drangeyjar SK 2 frá Sauð- árkróki. Alls voru um 550 manns um borð í skipinu og var glatt á hjalla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.