Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 ÞAR SEM VÍSINDI OG NÁTTÚRA KOMA SAMAN Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Efnahagur Venesúela er í molum. Í óstjórnartíð sósíalistanna Ces- ars Chavezar og Nicolasar Maduros hefur átt sér stað hrun. Á undan- förnum átta árum hefur landsfram- leiðsla dregist saman um 80 af hundraði. Verðbólga fór upp í 300.000%. Maduro hefur stjórnað landinu harðri hendi og af- numið lýðræði í land- inu. Það leiddi til efnahagslegra refsiaðgerða Banda- ríkjamanna, en frekar en að gefa eft- ir forhertist Maduro, kúgunin jókst og fangelsin fylltust af andófs- mönnum. - - - Efnahagslífið hefur aðeins tekið við sér eftir að einkafyrirtæki fengu leyfi til innflutnings og verð- lagsreglur voru rýmkaðar. Það hefur hins vegar orðið til þess að dollarinn hefur þrengt að þjóðarmyntinni, bó- livarnum, sem er orðinn verðlaus. Venesúela er ekki lengur eitt ódýr- asta landið í Suður-Ameríku, heldur eitt það dýrasta. Þeir sem eru í doll- arahagkerfinu dafna, en þeir sem fá borgað í bólivarnum lepja dauðann úr skel. - - - Ástandið er sérstaklega erfitt fyr- ir menntastéttina í landinu. Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun meðal háskólakennara kváðust 60% hafa lést á undanförnum 12 mán- uðum um 8,7 kg. Þeir voru ekki í megrun. - - - Í tíð Chavezar og Maduros hafa há- skólarnir verið miðstöð gagnrýni á stjórnarfarið í landinu. Í grein í Der Spiegel er því lýst hvernig mennta- menn í Venesúela sem áður lifðu góðu lífi eiga ekki til hnífs og skeið- ar, svelta jafnvel dögum saman, hafa misst heimili sín og lifa á ölmusu. Er það furða að því sé haldið fram að Maduro sé að reyna að svelta sína helstu gagnrýnendur í hel? Nicolas Maduro Sultur og seyra í Venesúela STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Lúsmýið er farið að fljúga, segir í skriflegu svari Náttúrufræðistofn- unar Íslands við fyrirspurn Morg- unblaðsins. Eintök og tilkynningar um bit eru farin að berast stofnuninni og að sögn hennar kemur það í sjálfu sér ekki á óvart þar sem flugtím- inn er samkvæmt gögnum Nátt- úrufræðistofnunar Íslands frá byrjun júní og fram í lok ágúst. Hér á landi hefur lúsmý fundist mjög víða en nokkur svæði hafa sloppið hingað til. Það verður því fróðlegt að sjá hvort lúsmýið nem- ur ný svæði í sumar. Náttúrufræðistofnun Íslands birti grein um lúsmý árið 2019 og þá var aðalútbreiðslusvæði þess Suðvesturland upp í Borgarfjörð og austur í Fljótshlíð. Einnig fannst það í Eyjafirði. Í fyrra varð þess einnig vart m.a. í Stykkis- hólmi, Húnavatnssýslu og í Fnjóskadal. Náttúrufræðistofnun Íslands býður upp á fría þjónustu við að tegundagreina smádýr. Fólk er því hvatt til að senda stofnuninni ein- tök ef það telur sig hafa verið bitið af lúsmýi til staðfestingar á því. Tilkynningar um bit farnar að berast - Hefur fundist mjög víða - Flugtími er frá byrjun júní og fram í lok ágúst Morgunblaðið/Eggert Bit Tilkynningar um bit lúsmýs hafa borist Náttúrufræðistofnun Íslands. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Lögregla lokaði í fyrradag Hótel Geo, sem var opnað 1. júní, vegna þess að rekstraraðilar höfðu ekki til- skilin leyfi. Þetta staðfestir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suður- nesjum. Gestir dvöldu á hótelinu þegar lögreglu bar að garði og var unnið að því að finna þeim nýja gistingu, að sögn Grétars Hannessonar, eiganda og framkvæmdastjóra fjárfestinga- félagsins Lundar sem á húsið. Volcano Hotel og Festi Bistró voru opnuð í húsnæði sem hýsir Festi síðasta sumar. Þeim rekstri var þó hætt síðastliðið haust þar sem raki og mygla komu upp í húsnæð- inu. Grétar segir að það hafi verið búið að ráða bót á því áður en hótel var opnað í húsnæðinu á ný. Heilsu manna hætta búin Verkfræðistofan Efla vann skýrslu vegna myglunnar, sem var skilað 17. mars. Þar kemur fram að fjarlægja þurfi allt rakaskemmt efni til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Þurfi m.a. að endurnýja glugga og yfirfara frágang á þakdúk. Mygla sé í parketi og ílögn svo þörf er á endurnýjun fyrir allt gólfefni. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja gaf í kjölfarið út eftirlitsskýrslu þar sem fram kom að raka- og mygluvanda- mál væru það útbreidd og umfangs- mikil að heilsu manna væri hætta búin við að dvelja í húsinu. Að sögn Grétars voru þær við- gerðir sem ráðast þurfti í áður en hótelið yrði opnað aftur leystar af hendi á einum mánuði án vand- kvæða. Lokuðu Hótel Geo og gestum vísað út - Rekstri hætt í húsinu síðasta haust vegna myglu og raka Hótel Geo Gestir voru á hótelinu þegar lögreglan mætti á svæðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.