Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
Nýmalað, engin hylki.
Suðurlandsbraut 20 · 108 Reykjavík
Sími: +354 5880200 · www.eirvik.is
Z10 fyrir heita og kalda kaffidrykki.
Ný kvörn, Product Recognising Grinder (P.R.G.), breytir sjálfkrafa
grófleika mölunar á milli mismunandi kaffidrykkja. Þetta gerir það
að verkum að í fyrsta skipti er hægt að hella upp á bæði heita og
kalda drykki með espresso aðferð. Upplifðu algerlega nýja leið til
þess að njóta kaffidrykkja. JURA – If you love coffee.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fjölmenni var á bryggjunni í
Grindavík á laugardaginn þegar
gamla varðskipið Óðinn kom þangað
inn eftir siglingu frá Reykjavík. Frá
2006 hefur skipið legið við bryggju
og mörg undanfarin ár verið hluti af
sýningu Sjóminjasafnsins við
Grandagarð. Jafnhliða því hafa holl-
vinir Óðins, sem flestir hverjir voru
fyrr á tíð í áhöfn skipsins, unnið að
margvíslegum endurbótum á skip-
inu og gert því til góða í því skyni að
því mætti sigla á ný. Þar þurfti
margt að gera til að uppfylla ítarleg-
ar kröfur Samgöngustofu svo gefa
mætti út haffærnisskírteini fyrir Óð-
in sem safnskip. Sá stimpill fékkst
nýlega og þá mátti sigla skipinu, en
nokkuð er síðan Grindvíkingar ósk-
uðu heimsóknar þess um sjómanna-
dagshelgina.
Frá Sjöbaujunni
stefnt að Garðskaga
Í áhöfn Óðins var valinn maður á
hverjum pósti þegar Óðinn lét úr
höfn og sigldi út Sundin eldsnemma
á laugardagsmorgun. Sól sindraði á
sjó og bárur kysstu skipið, blítt og
létt. Gangur véla skipsins var þýður,
hvar það sigldi á um 13 mílna hraða
við Sjöbaujuna við Akurey, en þar
nokkru utar var stefnan sett á Garð-
skaga. Í brú stóðu nokkrir af þeim
aukamönnum sem fengu að fljóta
með, þeirra á meðal Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands.
„Skipið virkar vel og er í fínu
lagi,“ sagði Vilbergur Magni Ósk-
arsson skipherra í ferðinni. Hann er
kennari við Skipstjórnarskólann en
var áður á varðskipunum og þá
stundum skipherra á Óðini í afleys-
ingum. Skipið, sem var smíðað árið
1960, þekkir hann því vel. „Á síðustu
árum hefur verið sett afar mikil
vinna í að koma Óðni aftur í gang og
í siglingarhæft stand. Þar hefur tek-
ist vel til; skipið er í eðli sínu kvikt
og lifandi og skilar mér alveg sömu
tilfinningu nú og ég hafði fyrir því
fyrr á árum.“
Á síðustu mánuðum hefur starfað
svonefnd haffærnisnefnd, en fulltrú-
ar í henni hafa skipulagt þær end-
urbætur og viðgerðir á Óðni sem
þurfti, svo kröfur nýrrar reglugerð-
ar um safnskip væru uppfylltar. Þær
miðast meðal annars við að skipinu
sé aðeins siglt yfir sumartímann og
með takmarkaðan fjölda fólks um
borð í hverri ferð. Í þessari nefnd
eru Magni, Ingólfur Kristmundsson,
yfirvélstjóri skipsins, og svo formað-
urinn Egill Þórðarson, fyrrverandi
loftskeytamaður og varðstjóri í
stjórnstöð Landhelgisgæslu.
Sigldi inn
Járngerðarstaðasundið
„Með viðgerðum og nýju haffærn-
isskírteini er Óðinn fær í flestan
sjó,“ segir Egill Þórðarson. „Héðan í
frá vænti ég að við getum á sumrin
heimsótt hafnir landsins, eftir því
sem óskað verður hverju sinni. Ég
sé fyrir mér að þetta gæti verið
kannski ein ferð árlega; skipið verð-
ur áfram svona að mestu leyti við
bryggju á Grandagarði og hluti af
Sjóminjasafninu. Að geta farið í sigl-
ingar nú er hins vegar frábær bónus.
Mannskapurinn sem unnið hefur að
þessum endurbótum hefur nú öðlast
hlutverk sem áhöfn á skipi. Slíkt er
mjög skemmtilegt.“
Sigling Óðins til Grindavíkur tók
um sex klukkustundir, að meðtöldu
stoppi úti fyrir Stafnesi þegar þyrla
frá Landhelgisgæslunni kom á
svæðið. Mönnum úr áhöfn þyrlunnar
sem og sjúkrabörum var rennt niður
á þilfarið og nokkrar slíkar æfingar
teknar. Svo var haldið áfram að
Grindavík, þar sem Páll Jónsson GK
7 og Sighvatur GK 57, línubátar Vís-
is hf., með fólk í skemmtisiglingu
komu til móts við fánum prýddan
Óðin. Safnskipið sigldi svo inn Járn-
gerðarstaðasund og að bryggju. Þar
var efnt til móttöku þar sem nýju
ljósmastri á framstefni Óðins var
veitt viðtaka.
Margir um borð í Grindavík
Mastrið, sem áður hefur verið
sagt frá í Morgunblaðinu, var gjöf
forsvarsmanna Mirai-skipasmíða-
stöðvarinnar í Kesennuma í Japan
til Hollvinasamtaka Óðins. Egill
Þórðarson hefur tengsl við stjórn-
endur Mirai sem vildu þakka Íslend-
ingum liðsinni í kjölfar jarðskjálfta
og flóða í NA-hluta Japans í mars
2011. Skipinu var svo siglt aftur til
Reykjavíkur á laugardagskvöld, þá
eftir nokkurra klukkustunda stopp í
Grindavík þar sem margir komu til
að skoða skipið – og safn.
Lifandi skip og fært í flestan sjó
- Safnskipið Óðinn til Grindavíkur - Blítt og létt og þýður gangur - Hollvinir og haffærnisskírteinið
fengið - Fánum prýtt skip sigldi inn Járngerðarstaðasundið - Fleiri hafnir landsins verða heimsóttar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áhöfn Karlarnir á brúnni í siglingunni til Grindavíkur. Frá vinstri talið eru Vilbergur Magni Óskarsson skipherra,
Sigurður Ásgrímsson, Alfreð Halldórsson, Kristinn Halldórsson, Egill Þórðarson og Sigurður Jónsson.
Fley Glæsiskipið Óðinn fánum prýtt við Norðurbakkann í Grindavíkurhöfn.
Margir komu um borð í nokkurra klukkustunda stoppi skipsins þar.
Yfirvélstjóri Ingólfur Kristmunds-
son sá um að aflvélarnar snerust.
„Þessi sigling verður eftirminnileg,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands. Sem sagnfræðingur gaf hann sig gjarnan að rannsóknum og
skrifum um fiskveiðilögsögu Íslendinga. Hefur jafnhliða störfum forseta
áfram sinnt því og 1. september nk. er væntanleg bók eftir Guðna um
sögu landhelgismálsins á árunum 1961-1971. Þá þurfti að eltast við land-
helgisbrjóta og kom Óðinn þá gjarnan við sögu. Umræddan dag er liðin
slétt hálf öld frá því að fiskveiðilögsaga Íslendinga var færð út í 50 sjó-
mílur. Því fylgdu hörð átök – þorskastríð – þar sem Óðinn stóð í ströngu.
„Óðinn var og er happafley. Ég dáist að þrautseigju þeirra dugnaðar-
forka í Hollvinasamtökum Óðins sem unnið hafa að viðgerðum og við-
haldi á skipinu og varið hafa þúsundum vinnustunda í verkefnið. Atbeini
þeirra er ómetanlegur. Saga Óðins og landhelgismálsins er í raun þjóð-
arinnar allrar. Henni megum við halda á lofti, með stolti en án alls
drambs og heimóttarskapar. Þó Óðinn hafi klofið ölduna til Grindavíkur
er hann núna safnskip, fleyta í nausti við Sjóminjasafnið góða í Reykja-
vík. Þegar ég kenndi sögu við Háskóla Íslands fór ég gjarnan með nem-
endur þangað, sem gátu þá fræðst um þessa sögu og hlustað á frásagnir
fyrrverandi starfsmanna Gæslunnar. Ár hvert fer fjöldi gesta um borð og
nýtur þess. Óðinn gegnir því áfram mikilvægu hlutverki.“
Happafley sem hefur hlutverk
SAGA ÓÐINS OG LANDHELGISMÁLA ÞJÓÐARINNAR ALLRAR
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sigling Guðni Th. Jóhannesson hér í forsetaíbúðinni svonefndu sem er í Óðni.