Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 13

Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 E60 Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960 Mikið úrval lita bæði á áklæði og grind. Sérsmíðum allt eftir pöntunum. Stóll E60 orginal kr. 44.100 Retro borð 90 cm kr. 156.200 (eins og á mynd) Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, sækist eftir því að vinna hrein- an meirihluta á þingi í kosningum sem nú fara fram þar í landi. Í gær fór fram fyrri af tveimur um- ferðum þingkosninganna, en kosið er um 577 sæti í neðri deild franska þingsins. Niðurstöðu þessarar fyrri umferðar má vænta í dag en síðari umferðin fer fram eftir um það bil viku, það er að segja 19. júní næst- komandi. Vill hreinan meirihluta Macron, sem hefur nýlega verið endurkjörinn í embætti forseta, stendur frammi fyrir sameinaðri vinstriblokk sem skoðanakannanir hafa sýnt fram á að gæti svipt Mac- ron hreinum meirihluta á þingi. Frönsku vinstri flokkarnir þrír mynda umrædda vinstriblokk sem gengur undir heitinu NUPES og fer Jean-Lucs Melenchon með forystu bandalagsins. Mikið er undir fyrir Macron að fá hreinan meirihluta á þingi en hann ætlar sér að ráðast í ýmsar umbætur, þ. á m. umbætur í lífeyrismálum sem hann segir nauðsynlegar til að koma ríkisfjármálum Frakklands í lag. Andstæðingar hans til vinstri vilja hins vegar lækka lífeyrisaldurinn og ráðast í umfangsmikil útgjöld. Lítil kjörsókn í fyrri umferð Kjörsókn á meginlandi Frakk- lands í gær mældist 39,4% um þrjú- leytið og var hún sú minnsta sem mælst hefur síðastliðin tuttugu ár í fyrri umferð þingkosninga. Búist er við að kjörsókn verði betri í annarri umferð sem fer fram næst- komandi sunnudag. Fyrstu spár eftir nýafstaðnar for- setakosningar sýndu að Macron væri á góðri leið að ná meirihluta á þingi. En forsetinn hefur komið lítið fram eftir forsetakosningarnar. Vinstri- manninum Jean-Luc Melenchon hef- ur aftur á móti tekist að mynda kosn- ingabandalag. Nýjustu spár sýna nú fram á að væntingar forsetans um hreinan meirihluta gætu mögulega ekki gengið eftir þar sem kannanir sýna að Macron myndi vanta 40 sæti á þingi. Til þess að ná hreinum meirihluta þyrfti Macron að ná 289 mönnum inn. Síðast kosið árið 2017 Frakkar gengu síðast til þingkosn- inga árið 2017 en þá vann Macron stórsigur þar sem kosningabandalag hans hlaut 60% þingsæta. Fyrri umferð þingkosninga lokið - Emmanuel Macron sækist eftir hreinum meirihluta - Sameinuð vinstriblokk gerir Macron erfitt fyrir - Kjörsókn sú minnsta sem mælst hefur síðastliðin tuttugu ár - Macron vann síðast stórsigur árið 2017 AFP/Ludovic Marin Kosningar Emmanuel Macron, forseti Frakklands, yfirgefur kjörklefann til að greiða atkvæði sitt í þingkosningum. Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Ekki er víst að hægt verði að fá sam- þykki Tyrkja fyrir inngöngu Svía og Finna í Atlantshafsbandalagið fyrir leiðtogafund bandalagsins sem hefst 28. júní nk., að sögn Jens Stolten- bergs, framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins. Hann segir bandalagið vinna hörðum höndum að því að komast að samkomulagi við Tyrki en Tyrkir hafa hafnað inn- göngu Svía og Finna og sakað þá um að styðja hryðjuverkamenn. Tyrkland mikilvægur bandamaður „Þetta snýst um hryðjuverka- starfsemi og vopnaútflutning. Við verðum að skilja og muna að ekkert annað aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins hefur orðið fyrir fleiri hryðjuverkaárásum en Tyrkland. Auk þess er Tyrkland mikilvægt að- ildarríki sem er hernaðarlega mikil- vægt landfræðilega séð,“ sagði Stoltenberg á blaðamannafundi í Helsinki í gær en hann er staddur í Finnlandi í þeim tilgangi að vera við- staddur öryggisráðstefnu. Aðild Finna og Svía að Atlantshafs- bandalaginu og staðan í Úkraínu verður meðal umræðuefna á ráð- stefnunni. Ganga hönd í hönd Sauli Niinistö, forseti Finnlands, var viðstaddur áðurnefndan blaða- mannafund. Að hans sögn munu Finnar ekki ganga í Atlantshafs- bandalagið ef aðild Svía verður ekki samþykkt og undirstrikaði Niinistö samstöðu Finnlands með Svíþjóð; „Við göngum hönd í hönd.“ Niinistö segir einnig mikilvægt að koma í veg fyrir að Tyrkir neiti ríkj- unum um inngöngu í bandalagið. Tyrklandsforseti segist hins vegar hafa áhyggjur af því að Svíar og Finnar séu einfaldlega ekki á sömu blaðsíðu og Atlantshafsbandalagið hvað öryggismál varðar. Óvíst hvort afstaða Tyrkja breytist - Finnar og Svíar saman eða ekki AFP NATO Stoltenberg, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins. Volodimír Selenskí, forseti Úkra- ínu, og aðrir háttsettir embætt- ismenn í Úkraínu segja hersveitir sínar eiga í erfiðum átökum, m.a. í austurhluta Donbas-héraðs sem Rússar hafa einbeitt sér að. Rússneski herinn hefur eyði- lagt aðra brú í Severodonetsk og hefur herinn hafist handa við að eyðileggja síðustu brúna að sögn ríkisstjóra borgarinnar. Að sögn Selenskís munu „úkraínskir her- menn gera allt til að stöðva sókn Rússa“. Úkraínuforseti segir að Úkra- ína megi ekki leyfa heiminum að beina athygli sinni frá því sem er að gerast á vígvellinum. AFP Erfið átök Rússa og Úkraínu Yfirvöld í Danmörku og Kanada hafa samið um skiptingu eignar- halds á klettaeyju milli Kanada og Grænlands. Yfirráð yfir eyjunni verða færð í hendur Grænlendinga og frum- byggja í Nunavut. Hans-eyja, öðru nafni Tartupa- luk, er óbyggður klettur á miðju Kennedysundi, milli Ellesmere- eyju og Norður-Grænlands. Dan- mörk og Kanada hafi undanfarna áratugi staðið í svokölluðu fána- stríði á eyjunni þar sem ríkin skiptust á um að draga fána sína þar að húni. Ríkin sömdu svo loks um „vopnahlé“ árið 2005 og hófust viðræður milli ríkjanna sama ár. Samningurinn um þetta verður kynntur opinberlega í dag. DEILUR Danir og Kanada- menn sömdu um eyju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.