Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.06.2022, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Angela Merkel, fyrrverandi Þýskalands- kanslari, steig fram í fyrsta sinn í síðustu viku eftir að sextán ára valdatíð hennar lauk. Þar var Merkel vitanlega spurð hvort hún sæi eftir einhverju í kanslaratíð sinni, en hún einkenndist af til- raunum Merkel til þess að beisla Vladimír Pútín Rússlandsforseta með því að auka viðskipti Þýska- lands og Rússlands. Merkel sagðist nú ekki sjá eftir neinu, og sagði að þó að „diplómatí- an“ hefði klúðrast, væri það ekki merki um að það hefði verið röng stefna á þeim tíma að leita sátta. Merkel fordæmdi innrásina í Úkra- ínu en sagðist á sama tíma ekki hafa verið „naíf“ í samskiptum sínum við Pútín. En þó að Merkel væri enn vígreif varðandi eigin frammistöðu í emb- ætti gerðu svör hennar lítið til að draga úr þeirri gagnrýni sem fram- ganga hennar hefur fengið í kjölfar innrásarinnar. Það skrifast til dæm- is að miklu leyti á hana og hennar ákvarðanir að Þjóðverjar urðu háðir rússneskri olíu og jarðgasi til orku- framleiðslu, sem aftur hefur leitt til þess að erfiðara er nú að beita refsi- aðgerðum á Rússa fyrir innrásina en ella. Merkel lýsti yfir stuðningi við að- gerðir eftirmanns síns, Olafs Scholz, um enduruppbyggingu þýska hers- ins í kjölfar innrásarinnar, sem Scholz kallaði á sínum tíma „vendi- punkt“. Merkel sagðist þó heldur ekki þurfa að sjá eftir neinu varð- andi það hvernig herinn hefði verið uppbyggður í kanslaratíð hennar, en bandalagsþjóðir Þjóðverja máttu margoft benda á það að þýski herinn væri of veikur til að nýtast ef til kastanna kæmi. Ljóst er að orðspor Merkel og Þjóðverja beið mikinn hnekki við innrásina í Úkraínu, þar sem hún sprengdi í raun upp ævistarf margra þeirra sem hafa verið helstu bógar í þýskum utanríkis- málum undanfarna áratugi. Og þó að spjótin hafi einkum beinst að sósíaldemókrötum og Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslara þeirra, er ljóst að kristilegu flokk- arnir eru síður en svo stikkfrí frá þeirri gagnrýni. Það vekur engu að síður ennþá furðu, hvað þýsk stjórnvöld virðast vilja draga lappirnar þegar kemur að því að styðja við bakið á Úkraínu. Þannig vildi Scholz helst ekki segja það beint út í upphafi mánaðarins að hann vildi að Úkraínumenn ynnu stríðið, og símtöl hans og Macrons Frakklandsforseta við Pútín hafa vakið bæði grunsemdir og reiði meðal bandamanna þeirra að þar á bæ séu menn þegar farnir að horfa aftur til þess tíma að hægt verði að stunda viðskipti við húsbóndann í Kreml. Þá eru Úkraínumenn sjálfir orðn- ir langeygðir eftir efndum þeirra loforða sem Scholz hefur gefið þeim um stuðning í formi vígtóla og þungavopna. Á meðan Bandaríkja- menn, Bretar, Pólverjar og fleiri virðast ekki skirrast við að senda slík vopn til Úkraínu, þá hleypur alltaf einhver snurða á þráðinn þeg- ar kemur að framlagi Þjóðverja. Kanslarinn er nú farinn að bregð- ast pirraður við, þegar hann er spurður út í hvað valdi þessum seinagangi, en staðreyndin er ein- faldlega sú að Þjóðverjar, sem eitt af lykilríkjum Evrópu, þurfa að sýna forystu. Þá gerir seinagangurinn lít- ið til að laga það laskaða orðspor sem Þjóðverjar hafa nú fengið á sig með samskiptum sínum við Pútín síðustu ár. Þjóðverjar þurfa að spýta í lófana gagn- vart Úkraínu} Laskað orðspor Greint var frá því í síðustu viku að sérfræðingateymi á vegum Alþjóðaheil- brigðisstofnunar- innar, WHO, hefði skilað frumniðurstöðum sínum um uppruna kórónuveirunnar og heims- faraldursins. Það sem þótti athyglis- verðast við þær var að hópurinn lýsti því yfir að hann þyrfti meiri gögn áður en hægt væri að útiloka þá tilgátu að heimsfaraldurinn hefði átt uppruna sinn á tilraunastofu. Áður hafði sérstakur samstarfs- hópur WHO og kínverskra stjórn- valda skilað þeim niðurstöðum að langlíklegast væri að veiran hefði borist úr leðurblökum yfir í menn, og um leið sagt að engin sönn- unargögn bentu til þess að tilrauna- stofukenningin væri rétt. Hin nýja niðurstaða er hins vegar merki um að þar hafi menn farið of bratt í að draga ályktanir, en Tedros Adhanom Ghebreyesus, fram- kvæmdastjóri WHO, viðurkenndi fljótlega eftir að fyrri skýrslan kom út í fyrra að það þyrfti meiri gögn frá kínverskum stjórnvöldum um fyrstu sjúklingana í Wuhan, þar sem far- aldurinn átti upptök sín. Mikilvægt er að taka fram að frumnið- urstöðurnar segja ekki að smit á rannsóknarstofu hafi verið leið veir- unnar til að hleypa af stað heimsfar- aldri, heldur einungis að sá mögu- leiki verði ekki útilokaður án frekari gagna. Í ljósi þess er hins vegar vert að rifja upp að viðbrögð kínverskra stjórnvalda, jafnvel frá fyrstu vikum faraldursins, hafa verið þau að reyna að varpa leyndarhjúpi yfir upprun- ann. Kínverjar hafa brugðist hart við öllum yfirlýsingum um að veiru- rannsóknarstofan í Wuhan gæti tengst uppruna heimsfaraldursins og sagt það fáránlega samsæris- kenningu. Tregða þeirra við að leggja öll spilin á borðið um uppruna kórónuveirunnar hefur hins vegar ekki gert neitt annað en að halda lífi í þeim kenningum. Hafi þeir gögn sem geti afsannað það tal er brýnt að fá þau fram á borðið sem allra fyrst. Enn ríkir vafi um upphaf heimsfarald- ursins} Spilin á borðið A ð ferðast um fallega landið sitt, fylla lungun af hreinu tæru sjávarlofti og geta hlaupið út um allar koppagrundir óhindr- uð og frjáls er ekki sjálfsagt og ekki öllum gefið. Þúsundir og aftur þús- undir samlanda okkar búa við skerta heilsu, vanlíðan og fátækt. Sjálf hef ég glímt við heilsubrest, fötlun og fátækt og á því auðvelt með að setja mig í spor þeirra sem þannig er ástatt um, m.ö.o. ég veit um hvað ég er að tala. Það er vegna þessa sem Flokkur fólksins varð til og hefur, svo ekki verður á móti mælt, barist af öllum mætti fyrir auknu réttlæti og útrýmingu fátækt- ar. Þegar vanmátturinn og vonleysið tekur mann kverkataki er ekkert dýrmætara en að fá hjálp. En hver á að hjálpa? Liggur það ekki í augum uppi að við gerum þær kröfur til okkar sið- menntaða samfélags að það taki utan um alla þá sem eiga bágt og þurfa á hjálp að halda? Hvaða guðlegi máttur ætli stjórni því að fátækt barna á Íslandi hef- ur vaxið stig af stigi, að gjáin milli þeirra ríku og fá- tæku gliðnar stöðugt? Nei, það er rétt hjá þér. Það er enginn guðlegur máttur þar að baki, einungis van- hæf ríkisstjórn sem hugsar ekki um neitt nema eigið skinn, ráðherrastólana undir boruna á sér og hags- munagæslu vildarvina. Þetta er mannanna verk! Hæstvirtur forsætisráðherra segir kinn- roðalaust að það að láta fátækt fólk bíða eftir réttlætinu sé það sama og að neita því um réttlæti. Er furða þótt okkar minnstu bræður og systur spyrji sig að því hvernig það sé mögulegt að þessi sami ein- staklingur, s.s hæstvirtur forsætisráð- herra, sé æðstur allra ráðherra en á sama tíma skuli hún samþykkja að fátækir ekki einungis bíði eftir réttlætinu heldur séu skattlagðir í sárri fátækt og allt að 130% af framfærslu þeirra fari í að greiða húsa- leigu! Það er m.a. vegna þess hvernig græðgisvædd leigufélög hafa fengið heim- ild til þess að níðast á þeim sem ekki eru taldir bærir til að fara í greiðslumat og kaupa sína eigin íbúð. Því miður hefur komið á daginn að það er holur hljómur í fagurgala hæstvirts ráðherra þeg- ar á reynir um efndir. Hvers vegna beitir hún sér ekki fyrir réttlætinu nú þegar hún á þess kost? Hvers vegna er haldið áfram að níðast á þeim sem síst skyldi? Ég á engin svör, því miður. Ég sakna þess að hafa ekki haft heilsu til að sinna þingstörfum mínum nú um sinn en ég heiti því að koma margefld til baka í haust. Rödd Flokks fólksins mun hljóma sem aldrei fyrr! Inga Sæland Pistill Fagurgali bjargar ekki bágstöddum Höfundur er þingmaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is F jármálafræðingur sem hef- ur rannsakað stöðu ungs fólks á fasteignamarkaði segir algengt að ungt fólk þurfi að neita sér um ýmis lífsgæði, jafnvel árum saman, til þess að eiga möguleika á því að eiga fyrir útborg- un í fasteign. Ljóst er að markaður- inn hefur breyst mikið til hins verra fyrir kaupendur á stuttum tíma. „Ég hef haldið áfram að fylgjast með markaðnum og ég sé ekki að staðan hafi batnað,“ segir fjármála- fræðingurinn Auður Elísabet Guðrúnardóttir. Hún varði meistararitgerð sem fjallaði um það hvernig úr- ræði stjórnvalda hafi nýst ungu fólki við fyrstu fasteignakaup fyrr á þessu ári. „Þetta er orðið alveg of- boðslega erfitt, þó að fólk sé að leggja fyrir 80.000 krón- ur á mánuði þá er það samt í um 10 ár að safna sér fyrir útborgun í tveggja herbergja íbúð sem kostar 50 milljónir í dag,“ segir Auður El- ísabet. „Staðan er orðin svo slæm að fólk gerir oft ekki kröfur um að ástandsskoða eignina vegna þess að þá fær það ekki kauptilboð sam- þykkt ef það eru einhverjir fyrir- varar umfram fjármögnun. Það kaupir kannski eign þar sem er verið að leyna einhverjum göllum en hefur ekki tækifæri til að skoða það nánar því þetta þarf allt að gerast svo hratt.“ Telur að hlutdeildarlán hafi verið sett fram of snemma Auður Elísabet ákvað að rann- saka stöðuna m.a. þegar hún tók eft- ir því að fólk í kringum hana væri farið að neita sér um ýmislegt til þess að geta lagt sem allra mest fyr- ir. „Þetta eiga að vera bestu ár lífs þíns. Þegar fólk byrjar að safna eru margir að neita sér um viðburði, utanlandsferðir, að fara út að borða eða annað því þeir vilja forðast leigu- markaðinn eða komast fyrr út úr for- eldrahúsum,“ segir Auður Elísabet. Hún tók viðtöl við nokkra ein- staklinga sem höfðu keypt sér fast- eignir á síðustu tveimur árum. Við- mælendurnir voru flestir ánægðir með úrræði stjórnvalda sem lýtur að nýtingu séreignarsparnaðar til greiðslu skattfrjálst inn á afborganir eða höfuðstól láns. Aftur á móti voru viðmælendur Auðar ekki jafn hrifnir af svokölluðum hlutdeildarlánum sem kynnt voru í heimsfaraldri kór- ónuveiru. Eru ástæðurnar t.a.m. þær að ströng skilyrði eru fyrir slík- um lánum, m.a. þak á verð fast- eignar, þak á tekjur, skilyrði um ástand og aldur fasteigna og endur- greiðslufyrirkomulag lánanna. „Það sem situr mest í mér eftir að hafa skrifað ritgerðina er að úr- ræði hlutdeildarlána kom fram of snemma. Skorturinn á íbúðum er enn þá svo mikill. Mér hefði fundist að það hefði þurft að bæta fyrir upp- safnaðan byggingaskort áður en þetta úrræði kom til af því að þetta eru allt góð og gild úrræði, bæði sér- eignarsparnaðurinn og hlutdeildar- lánin, en það þurfa að vera eignir til staðar ef það á að gera fleirum kleift að kaupa fasteign,“ segir Auður El- ísabet. Þó að hennar viðmælendur hafi verið hrifnir af úrræðum séreignar- sparnaðar nýttu fáir sér þann mögu- leika að geta notað uppsafnaðan séreignarsparnað í útborgun við kaupin. „Fólk vildi frekar nýta úrræðin til að greiða inn á höfuðstólinn eða afborganir til að létta á greiðslubyrði fyrstu árin í stað þess að fara kannski fimm ár aftur í tímann og eiga þá bara möguleika á að greiða aukalega inn á lánið í fimm ár,“ segir Auður Elísabet og á þá við að ef fólk nýtir uppsafnaðan séreignarsparnað styttist tíminn sem því nemur til að greiða inn á höfuðstól eða afborganir því úrræðin er hægt að nýta yfir 10 ára samfellt tímabil. „Þetta er fólk sem er nýkomið úr námi og var með litlar tekjur. Það tímdi ekki að fara aftur í tímann þeg- ar það var að fá minni tekjur og vildi heldur fullnýta heimildina sem hægt er að greiða árlega inn á höfuðstólinn eða afborganirnar,“ segir Auður. Hvað þarf að gera til þess að bæta stöðuna? „Það sem þarf fyrst og fremst að huga að er framboðið á fast- eignamarkaði. Þetta eru fín og flott úrræði en það þarf vissulega að upp- færa hámarksverð fasteigna á hlut- deildarlánunum í takt við þá hröðu verðþróun sem hefur átt sér stað síð- an úrræðið var kynnt.“ segir Auður og bætir við: „Það er nokkuð ljóst að úrræði stjórnvalda hafa hjálpað stórum hópi ungs fólks við að kaupa sína fyrstu fasteign en þú getur ekki aukið eftirspurnina þegar framboðið er lítið sem ekkert og orðið svo hissa á því að fasteignaverð rjúki upp.“ Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Hús Fasteignaverð hefur hækkað verulega að undanförnu og virðist stað- an sífellt versna fyrir fyrstu kaupendur. Verðið er hátt og allt gerist hratt. Neita sér jafnvel ár- um saman um lífsgæði Auður Elísabet Guðrúnardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.