Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 13.06.2022, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Á þessu ári á Hand- ís, Handleiðslufélag Íslands, 22 ára afmæli. Félagið var stofnað árið 2000 en að því standa einstaklingar sem veita faghand- leiðslu. Félagsmenn Handís hafa lokið námi í faghandleiðslu og handleiðslutækni og koma þeir úr ýms- um starfsstéttum, meðal annars menntakerfinu, heilbrigðis-og fé- lagsþjónustu. Handís er ætlað há- skólamenntuðu fólki sem býr yfir menntun, reynslu og þjálfun í að veita öðrum handleiðslu. Heimasíða Handís er www.handleidsla.is. Handleiðslufræði eiga rætur sín- ar að rekja til Bandaríkjanna. Fyrsta bókin um handleiðslu, bók Mary Ricmond, Social Diagnosis, kom út árið 1917 en þá voru önnur hugtök notuð yfir handleiðslu. Á Norðurlöndum var þróunin ör í handleiðslufræðum og þar er í dag víða skipulegt hand- leiðslukerfi innbyggt í stjórnun viðurkenndra meðferðarstofnana. Handleiðsla hefur verið skilgreind sem aðferð til að þess að efla fagmennsku, vernda fagmanninn og tryggja gæði þjónust- unnar. Handleiðsla nýtist því vel í tengslum við dagleg störf fagfólks, þar sem miklar kröfur eru gerðar til sérfræðiþekkingar og starfsleikni, þar sem viðfangsefni og skjólstæðingar eru krefjandi og úrræði takmörkuð. Hvers vegna sækir fólk handleiðslu? Handleiðsla er yfir 100 ára gam- alt fyrirbæri en hvaða erindi á hún til okkar í dag? Í nútímasamfélagi er mikið rætt um streitu og kulnun í starfi og lífi. Hægt er að skilgreina vinnustreitu sem skaðleg líkamleg og tilfinn- ingaleg viðbrögð starfsmanns við miklu vinnuálagi, sem getur leitt til andlegs og líkamlegs heilsubrests ef hún er langvarandi. Kulnun er afleiðing langvarandi vinnustreitu og einkennist af m.a. algerri ör- mögnun, áhugaleysi og minnkaðri starfsgetu. Handleiðsla er leið til að sporna við streitu og kulnun en í leiðinni tækifæri til að efla fagvit- und fagmannsins og eigin áhrifa- mátt. Handleiðslu er hægt að nota til að byggja upp góð starfsskilyrði og jákvæða vinnustaðamenningu og í því samhengi er handleiðsla for- vörn gegn kulnun í stað þess að vera viðbragð við starfsþreytu og leiða. Oft er rætt um að starfsfólk í umönnunarstörfum sé útsett fyrir vinnustreitu og annars stigs áföll- um. Ástæðurnar geta verið tengslin við skjólstæðingana, miklar kröfur til starfsfólks, fáliðaður starfs- hópur, óljósar væntingar um starfs- hlutverk og takmarkað fjármagn til þjónustu. Fundist hafa tengsl á milli stuðn- ings á vinnustað og starfsánægju ásamt því að stuðningur á vinnu- stað dregur úr líkum á streitu. Handleiðsla byggist á ákveðnum samningi milli tveggja aðila um að samþætta fræðilega þekkingu, fag- legt vinnulag og persónulega eig- inleika. Áherslan er á lærdóms- og þroskaferli fagmannsins og að að- greina fagsjálf og einkasjálf. Kostir þess að veita handleiðslu eru að hún getur verið stjórntæki til þró- unar í starfi, aukið upplýsingaflæði og dregið úr streitu í starfi. Mark- mið handleiðslunnar er að hæfi- leikar hins handleidda njóti sín til fulls í starfi. Fagímynd allra hjálp- arstétta byggist m.a. á hæfni til að ná sambandi við skjólstæðinginn og gerir kröfur til persónulegs hug- rekkis auk faglegrar færni. Hand- leiðsla er þannig aðferð til þess að efla fagmennsku, vernda fagmann- inn og tryggja gæði þjónustunnar. Því er óhætt að segja að vel skipulögð handleiðsla, sem bæði er fagstuðningur og tilfinningalegur stuðningur tengdur starfinu, stuðli að betri líðan starfsfólks, betri þjónustu og hagstæðari útkomu fyrir bæði starfsfólk og þjón- ustuþega. Þann 23. júní 2022, á sjálfan af- mælisdaginn, mun Handleiðslufélag Íslands halda afmælisráðstefnu sem frestað hefur verið ítrekað vegna heimsfaraldurs. Aðalfyrirles- arar eru Ingibjörg Jónsdóttir, for- stöðumaður Streiturannsóknar- stofnunar í Gautaborg og Miriam Ullrich, frá stjórn Evrópusamtaka handleiðara. Þá verður Gerian Dijkhuizen, fulltrúi landssamtaka handleiðara og markþjálfa í Hol- landi (LVSC), með vinnustofu. Skráning og frekari upplýsingar eru á heimasíðu félagsins www.handleidsla.is og á facebook- síðunni Handís. Síðbúin afmælisráðstefna Handleiðslufélags Íslands – Handís Eftir Ellu Kristínu Karlsdóttur »Handleiðsla er leið til að sporna við streitu og kulnun en jafnframt tækifæri til að efla fagvitund fag- mannsins og eigin áhrifamátt. Ella Kristín Karlsdóttir Höfundur er formaður Handís. Þeir sem þekkja til á svæðinu umhverfis Þingvallavatn vita hversu snjóþungt get- ur verið þar og tíðar frostnætur langt fram á vor og gróður því lengur að ná sér á strik við slíkar aðstæður en neðar á vatnasvæðinu. Samkvæmt annálum var Þingvallavatn ísi- lagt 1752-53 frá jólaföstu og fram á 5. viku sumars, en algengt var fyrr- um að vatnið legði um áramótin og væri ísilagt fram í maí. Þetta hefur breyst í seinni tíð, ef vatnið leggur í dag þá er það yf- irleitt ísskæni víða um vatnið sem engu heldur og því ætti enginn að fara um ísinn á vatninu þótt frosta- kafla geri á veturna. Aftur á móti getur veðurblíða ver- ið mikil á svæðinu á góðum vor- og sumardögum og gróður og heyfeng- ur þá góður og voru bændur þá gjarnan aflögufærir til þeirra sem minna höfðu t.d. vegna kalskemmda í túnum. Eftir köld vor gat aftur á móti verið minna um heyfeng og því þurfti stundum að bregðast við því með aðstoð á milli bæja ef voraði seint vorið eftir með heyflutningum á sleðum eða með öðrum hætti. Við nefndar aðstæður í maí vorið 1949, þegar snjór lá yfir öllu Þing- vallasvæðinu og vatnið ísilagt, nýttu leikkonurnar, þá eigendur Nesja, Gunnþórunn og Guðrún, sem og Jónas Jónasson, kaupmaður og síð- an einnig bóndi á Nesjum, sér tæknina og létu fljúga með hey aust- ur hinn 5. maí. Vél frá Loftleiðum, Helgafellið, flaug þá að Nesjum með hey frá Reykjavíkurflugvelli og kom vélin svífandi með miklum vélagný yfir Hátind með sveig yfir Krumma og renndi sér síðan í lágflugi yfir Nesjahraunið og út Nesjavíkina og varpaði áhöfnin samsíða úttroðnum heybölum úr vélinni sem í voru jafn- framt mjölpokar og fleira og náðu heybalarnir allt út fyrir Klumbu ut- an Nesjavíkur. Jóhann Jónsson, nú bóndi í Mjóa- nesi, þá vinnumaður á Nesjum, tíndi síðan saman heybalana með hestas- leða og var heyfarm- urinn vel þeginn sem viðbótarhey til gjafa. Hinn 28. maí sama vor fór Jóhann ásamt föður sínum með tvo hesta að sækja send- ingu/vistir sem komið höfðu með snjóbíl að Nesjavöllum. Í bakaleiðinni skall á norðanbylur og áttu þeir fullt í fangi með að rata heim að Nesjum, urðu að þræða sig áfram í kófinu með Skógarhlíðinni. Svo mikill var veðurhamurinn að heiðlóa fauk á Jóhann, hún réð ekk- ert við flugið í veðurofsanum. Hann minnist þess jafnframt að hafa verið að slóðadraga túnin á Nesjum 17. júní þá um vorið/ sumarið og þá voru skaflar enn í lægðum á túnunum og frost á næt- urnar svo vorfuglinn hnipraði sig saman með angurvæli í kuldanum og styggir refir sóttu í lömb á túnum við bæi. Viku seinna gerði góða tíð og í framhaldi af því ágætt sumar. Ég minnist þess að hafa farið fyr- ir Jónas á Nesjum ásamt félaga mínum gangandi á ís út í Nesey í byrjun maí eitt frostavorið til að kanna með aðstæður í eynni. Þá var reyndar komin vök í ísinn milli lands og eyja sem við reyndum að fara fjarri, því grængolandi djúp- ið við sprungur og vakir í ís á Þing- vallavatni er ekki árennilegt til nær- veru, það hafa margir fengið að reyna gegnum aldirnar. Refaskytturnar og óðalsbænd- urnir Jón á Nesjavöllum og Þorvald- ur á Bíldsfelli sögðu að það hefði verið mikil bylting þegar Álafoss- úlpurnar komu til sögunnar þegar þeir lágu á grenjum snemma á vorin og þá oft í hörkufrosti um nætur, jafnvel fram í júní, og því oft kald- samt að eiga við slóttuga dýrbíta, stundum jafnvel með viku yfirlegu á sama greninu. En víðar voru köld vor og harðir vetur um landið. Sigurður Jónsson afi, þá drengur á Núpi í Berufirði, síðar hreppstjóri, oddviti og fræðimaður á Torfastöð- um í Grafningi til fjölda ára, fékk einnig að kynnast köldum vetrum og vorum eystra, t.d. þegar tveir ís- birnir börðu hrömmum sínum í gafl- inn á baðstofunni á Núpi veturinn 1882, en þá lá ís með öllum Aust- fjörðum. Faðir hans var þá úti við gegn- ingar og hafði lokað féð inni vegna frosthörku. Hann hafði verið með síld í fötu til gjafa og skilið fötuna eftir á milli fjárhúsa og bæjar með smá síld í þegar hann fór til annarra húsa ofar í túninu og vakti fatan áhuga ís- bjarnanna sem gerði það að verkum að hann slapp heim á bæ og þar með undan björnunum. Þegar birnirnir höfðu nært sig á síldinni ráfuðu þeir til fjárhúsanna og síðan að næstu bæjum utar í firð- inum og börðu hrömmum sínum þar á bæi og útihús. Þá hafði boðum verið komið á milli bæja í firðinum með vissum táknum og bændur hraðað sér við að hýsa bústofna og skálka aftur húsin. Daginn eftir voru birnirnir felldir innst í firðinum af ráðsmanni prestsins og munu þeir þá hafa fellt kind og étið. Faðir afa lenti jafnframt í svoköll- uðum Knútsbyl 1883 og varð að haf- ast við í skjóli með fjárhóp í tvo til þrjá sólarhringa vegna veðurofsans. Í svipuðu veðri veturinn 1884 strandaði frönsk skúta á svæðinu og varð mannbjörg þar með aðstoð heimamanna á 18 skipbrots- mönnum. Þeim var síðan komið til skips í nærleggjandi firði nokkru síðar og voru heimamenn því fegnir eftir giftusamlega björgun. Þannig að ýmislegt hefur gerst á köldum vetrum/vorum hér syðra sem víðar. Í lokin, þá hef ég haft áhuga á að koma upp sögusetri með heimildum/ munum af vatnasvæðinu við Þing- vallavatn og Sog, heimildum sem ella er hætt við að falli í gleymsku fyrir komandi kynslóðir. Köld voru vorin stundum við Þingvallavatn Eftir Ómar G. Jónsson » Samkvæmt annálum var Þingvallavatn ísilagt 1752-53 frá jóla- föstu og fram á 5. viku sumars. Ómar G. Jónsson Höfundur er fulltrúi og talsmaður ÞVS söguseturs. Á undanförnum ár- um hefur Ellert Ólafs- son gefið út nokkrar frábærar bækur, bæk- ur sem ekki hafa hlot- ið þá athygli sem þær verðskulda. Í bókum sínum dregur Ellert saman gríðarlegan fróðleik sem öllum er fengur að. Efnið kynnir hann á að- gengilegan hátt með lýsandi myndefni sem auðveldar lesendum að ná yfirsýn yfir grunn- atriði og framþróun tækni og fram- fara og opnar yfirsýn yfir leynd- ardóma lífs á jörðinni, þróun og stöðu í dag. Nýjasta bók Ellerts er Náttúran og framtíð okkar. Ég hef hvergi séð jafn skýrt gerða grein fyrir meg- inatriðum bæði í máli og myndum. Þessar bækur hans Ellerts eru til- valdar fermingargjafir, gagnlegur og nauðsynlegur fróðleikur og að sjálfsögðu upplagt lestrarefni í sum- arleyfum og frítímum. Við lestur þeirra finnst mönnum þeir skilja betur eðli jarðarinnar sem þeir búa á, og þá leyndardóma sem lífið á jörðinni byggist á. Í þessari nýjustu bók hans nefni ég t.d. ljóstillífunina. Við dáumst að rósinni, hún lífgar til- veru okkar með fegurð og ynd- isþokka en flestum er hulinn leynd- ardómurinn að baki; ferlar frá moldinni til blómblaða og fræmynd- unar og margvísleg hlutverk lauf- blaða og blaðgrænu, grænu korn- anna. Ég gríp niður og nefni af handahófi kafla um geisla sólar, lofthjúpinn, bráðnun jökla, haf- strauma, bylting- arkenndar uppgötvanir í jarðvísindum, fólks- fjölda á jörðinni, orkuna, allar tegundir orku frá sjávarföllum yfir í vindorku og kjarnorku, þróun raf- hlaðna. Og eins og máltækið segir: Ein mynd segir oft meira en þúsund orð. Ástæða er til að nefna líka bók Ellerts: Skemmtiferð um heiminn á vængj- um stærðfræðinnar. Foreldrum bendi ég á að þessar bækur vekja áhuga og athygli ungu kynslóðarinnar á óræðum leynd- ardómum lífs og fræða. Framsetning Ellerts er mjög skýr og býr yfir seiðmagni. Í raun væri mikill ávinningur að því að þessar bækur hans væru gerðar að kennsluefni í skólum, gætu kennt mönnum að athuga náttúruna. Þær gætu átt þátt í að rjúfa þennan múr- vegg áhugaleysis og skilningsleysis sem oft ræður ríkjum og opnað mönnum sýn inn í dýpstu rök þess- arar sundurleitu aldar. Bækur Ellerts Ólafssonar Eftir Guðmund G. Þórarinsson Guðmundur G. Þórarinsson » Framsetning Ellerts er mjög skýr og býr yfir seiðmagni. Í raun væri mikill ávinningur að því að þessar bækur hans væru gerðar að kennsluefni í skólum. Höfundur er verkfræðingur. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.