Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 29

Morgunblaðið - 13.06.2022, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Empire Rolling StoneLA Times BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams U S A TO D AY 72% STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com “Top Gun: Maverick is outstanding.” Breathtaking “It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!” “Might be the best movie in 10 years.” “Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time” “What going to the movies is all about” “You must see this one in the theater.” “a must see!” 89% AF LEIKLIST Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Það er ávallt tilhlökkunarefni þegar leikhúslistamaðurinn Kristján Ingimarsson kemur heim til Íslands með sýningar sínar. Kristján býr og starfar í Danmörku, þar sem hann hefur á síðustu áratug- um þróað sinn sérstaka stíl. Þar fær líkamstjáningin að njóta sín í sýn- ingum sem að stærstum hluta eru leiknar án orða. Enginn sem sá Creature í Þjóðleikhúsinu 2009 gleymir lokaatriði þeirrar sýningar, þegar Kristján sigldi á brimbretti yfir áhorfendasalinn með hjálp leik- húsgesta. Engan skal heldur undra að BLAM! hafi slegið í gegn þegar verkið var sýnt í Borgarleikhúsinu 2013. Þar blandaði Kristján saman fá- ránlegum ofbeldisheimi hasarmynda og niðurdrepandi umhverfi skrif- stofumannsins með óborganlegum hætti og storkaði þyngdarlögmálinu í einu flottasta atriði verksins. Nýjasta afurð Kristjáns, sem íslenskum leikhúsgestum gafst nýverið tækifæri á að sjá á Stóra sviði Borgarleikhússins, nefnist Room 4.1 Live. Það verk var frumsýnt í Dan- mörku haustið 2019 og tilnefnt til Reumert-sviðslistaverðlaunanna þar í landi. Uppfærslan hérlendis var samstarfsverkefni Kristján Ingi- marsson Company, Borgarleikhúss- ins og Íslenska dansflokksins, en fjöl- mennur hópur tekur þátt á sviðinu. Óhætt er að lýsa verkinu sem blöndu af myndbandsverki, leik- og dans- verki þar sem tilkomumikil leikmynd úr smiðju Kristjáns, Charlotte Calberg og Kristians Knudsen var svo sannarlega í aðalhlutverki. Leikmyndin samanstendur af sjúkraherbergi sem staðsett er inni í stóru hjóli sem má snúa eftir þörfum. Báðum megin við hjólið eru tveir stórir skjáir, þar sem sjá má það sem fram fer í herberginu, sem skapar skemmtilegar andstæður þegar her- berginu er snúið. Þannig gefur útkoman á skjánum til kynna að verið sé að snúa upp á þyngdarlögmálið, sökum þess að myndavélarnar fylgja hreyfingu herbergisins. Á stundum er þessum búnaði öllum ýtt aftast á sviðið og annað sambærilegt sjúkra- herbergi á litlum hjólum birtist, sem hægt er að hringsnúa en ekki hvolfa. Í viðtali við Morgunblaðið lýsti Kristján því að hann hefði upphaflega ekki hugsað Room 4.1 Live sem leik- sýningu, heldur byggt verkið á örþáttum sem hann gerði fyrir netið og aðgengilegir eru á vefslóðinni room4.one. Það skýrir sennilega að stórum hluta hversu brotakennd sýningin er og laus við rökræna fram- vindu. Sjálfur mun Kristján hafa nefnt að hann sé í verki sínu innblás- inn af súrrealísku kvikmyndinni 8½ eftir Federico Fellini og ljóst má vera að súrrealisminn er allsráðandi. Á sviði Borgarleikhússins virðist ytri rammi verksins vera upptökur undir stjórn Kristjáns, þar sem hann fer með hlutverk manns að nafni Vincent, sem er að drepast í fingr- inum og sökum þess lagður inn á sjúkrahús. Ýmislegt bendir þó til þess að það séu ekki líkamleg veik- indi sem hrjái Vincent, heldur andleg. Þegar kærasta Vincents (Rakel Björk Björnsdóttir) mætir í heim- sókn á spítalann, leiðist honum svo vælið í henni að hann brýtur sér leið gegnum vegg með höfðinu, sem situr í framhaldinu pikkfast í dágóðan tíma. Við það virðist opnast önnur vídd, jafnvel inn í höfuð Vincents. Á þeirri stundu stígur Kristján út úr hlutverki sínu sem Vincent og tekur að sér hlutverk leikstjóra alls þess sem fyrir augu ber. Thomas Bentin leikur Vincent til enda. Áður en yfir lýkur hefur hópi áhorfenda boðist að stíga inn í hlutverk Vincents með því að sveipa höfuð sitt grisju og mæta persónum verksins á sviðinu. Leikstjórinn í túlkun Kristjáns er býsna æstur í stjórnunarstíl sínum með tilheyrandi hrópum og köllum þar sem hann stjórnar öllu með harðri hendi. Kvikmyndaleikstjór- anum gremst þegar staðgengill hans er ekki tilbúinn að taka þátt í miklu áhættuatriði og þarf því sjálfur að út- færa eitt áhrifamesta atriði sýning- arinnar, þegar Vincent hangir lóð- réttur með höfuðið fast í veggnum. Kristján hefur í samstarfi við aðra þátttakendur sýningarinnar hannað nákvæmar dans- og sviðshreyfingar sem vekja sannarlega aðdáun, ekki síst kóreógraferaðar bardagasenur þar sem náttúrulögmálum er storkað. Margt furðulegt ber fyrir augu í þeim undraheimi sem Kristján skap- ar á sviðinu. Ísbjörn ráfar reglulega um sviðið, þar til hann mætir grimm- um örlögum, fáklæddur maður ýmist gengur eða svífur yfir sviðið með allt sitt hafurtask á bakinu í anda lykil- senu kvikmyndarinnar The Laby- rinth (1985), Vincent dansar líkt og Christopher Walken í tónlistar- myndbandinu við „Weapon Of Choice“ í sjúkraherberginu sem hringsnýst. Þar mætir hann öðrum persónum og leikendum sýningar- innar líkt og á færibandi. Særingar koma ekki í veg fyrir að konur takist á loft eða gangi eins og köngulær í loftinu í anda kvikmyndarinnar The Exorcist (1973) og líflausir, naktir líkamar koma skyndilega flæðandi gegnum vegginn og enda í einni kös á gólfi sjúkraherbergisins. Líkam- leikinn er yfir og allt um kring í verk- inu þar sem blóð jafnt sem saur drýp- ur af aðalpersónunni. Óhætt er að segja að Kristján hafi enn einu sinni boðið íslenskum áhorf- endum upp á mikið sjónarspil þar sem unnið er með margvíslegar vísanir, jafnt í dægurmenninguna og biblíuna. Óljósara er hins vegar hvað eigi að lesa í allt það sem fyrir augun ber. Hver eru tengsl sýndar og reyndar í heimi sem virkar eins og sýrutripp? Hvers vegna óttast Vincent læknisklæddu manneskjuna sem virðist í senn vera karl og kona? Hvers vegna eru lykilkonurnar í heimi Vincents jafn klisjukenndar og raun ber vitni þegar þær birtast sem vælandi kærasta (Rakel Björk), geð- veik andsetin hjúkka (Inga Maren Rúnarsdóttir) og fáklædd glyðra (Noora Hannula)? Hvaða ógn stend- ur af villidýrinu sem lætur lífið áður en yfir lýkur? Engin tilraun er gerð til að svara þessum spurningum né öðrum sem vakna við áhorfið, en sennilega var það heldur ekki ætl- unin. Eftir situr að hægt er að dást að þrekvirkinu sem felst í því að koma þessum fjölmenna og flókna heimi á leiksviðið og skemmtilega útpældu samspili sviðs og skjáa. Snúið upp á skynjunina »Eftir situr að hægt er að dást að þrek- virkinu sem felst í því að koma þessum fjölmenna og flókna heimi á leik- sviðið og skemmtilega útpældu samspili sviðs og skjáa. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir Samspil Kristján „þarf því sjálfur að útfæra eitt áhrifamesta atriði sýningarinnar þegar Vincent hangir lóðréttur með höfuðið fast í veggnum,“ segir í rýni á verkinu Room 4.1 Live úr smiðju Kristjáns Ingimarssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.