Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 32

Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Tónleikarnir Persian Path verða haldnir í Gamla bíói 16. júní og eru þeir á dagskrá Listahátíðar í Reykja- vík. Á þeim koma fram fimm íranskir tónlist- armenn og tveir ís- lenskir og er efnisskrá tónleikanna fengin af samnefndri plötu Ás- geirs Ásgeirssonar og Hamid Khansari þar sem íslensk og írönsk þjóðlög mætast í nýjum útsetningum. „Austræn hljóðfæri, tón- mál, taktar og sköpun fléttast saman við ramm- íslenskar laglínur og blæbrigðaríkan söng Sigríðar Thorlacius. Frá Teheran kemur hópur af leiftrandi hæfi- leikaríku tónlistarfólki en auk Hamid Khansari verða á sviðinu þau Sara Rezazadeh, Hooman Roomi, Bahar Modiri og Aryan Rezaee,“ segir á vefnum tix.is þar sem miðasala fer fram. Írönsk og íslensk tónlist tvinnast saman á tónleikum í Gamla bíói MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Strákarnir í íslenska 21-árs landsliðinu í knattspyrnu áttu magnaðan endasprett í undankeppni Evrópumóts- ins þar sem þeir skoruðu sautján mörk gegn einu í þremur síðustu leikjunum. Þeir komust í fyrrakvöld í umspil um sæti í lokakeppni EM með því að vinna stór- sigur á Kýpur, 5:0, og 21. júní fá þeir að vita hverjir verða andstæðingar þeirra í umspilinu í haust. »27 Magnaður endasprettur strákanna ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Myndlistarmaðurinn Sigurður Sæv- ar Magnúsarson verður með opið hús í nýrri vinnustofu sinni og sýn- ingarsal á Barónsstíg 11a&b, þar sem áður var veitingastaðurinn Argentína steikhús, klukkan 17 til 19 á fimmtudag. „Húsnæðið er full- komið fyrir starfsemi sem þessa, enda er þetta einn flottasti sýning- arsalur borgarinnar,“ staðhæfir hann. Systir Sigurðar Sævars gaf hon- um málningu, striga og pensla í 10 ára afmælisgjöf og daginn eftir af- mælið ákvað hann að verða mynd- listarmaður, en hann verður 25 ára í haust. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu 13 ára gamall og hef- ur haldið um 20 sýningar á ferl- inum, síðast 2017. Undanfarin þrjú ár hefur hann verið í námi í Kon- unglegu listaakademíunni í Haag í Hollandi og gerir ráð fyrir að út- skrifast að ári. „Eftir að ég byrjaði í náminu hefur verið biðlisti eftir verkum mínum og ég á því ekki stóran lager en fer að byggja hann upp á ný til að nýta veggina í nýja salnum.“ Möguleikar Til þessa hefur Sigurður Sævar verið með vinnurými á Háaleitis- braut. „Það var kominn tími á stærri vinnustofu fyrir löngu,“ segir hann og bætir við að hann hafi ekki þurft að hugsa sig lengi um, þegar hann sá húsnæðið við Barónsstíg auglýst. „Ég gjörsamlega heillaðist af rýminu í þessu sögufræga húsi. Það heltók hug minn og ég hugsaði með mér að þetta væri kjörinn stað- ur sem framtíðarvinnustofa.“ Á námsárunum hefur Sigurður Sævar komið til Íslands á sumrin og málað. ,,Ég geri ráð fyrir að leigja húsið út í haust, þegar ég held aftur út í heim, og svo kemur í ljós hvenær ég sný heim á ný.“ Hann leggur enda áherslu á að hann hafi keypt húsnæðið með framtíðina fyrst og fremst í huga. „Ég sé mig fyrir mér í vinnustof- unni þegar ég verð aðeins eldri og gráu hárin verða aðeins fleiri. Þá fer vel um mig í þessu stóra rými, sem er í algjörum sérflokki fyrir myndlistarmann.“ Hátt er til lofts og vítt til veggja. Listamaðurinn viðurkennir að rým- ið sé í stærra lagi fyrir einn mann, enda hugsi hann sér að deila því með öðrum. „Ég ætla ekki að vera svo eigingjarn að vera einn í húsinu, heldur hef ég áhuga á því að bjóða öðrum listamönnum að koma og vera með sýningar og jafnvel vinnu- stofur. Þá er ég bæði að hugsa um íslenska listamenn og ekki síður er- lenda listamenn sem ég hef kynnst síðustu ár á meginlandi Evrópu. Ég sé fyrir mér að þetta verði einhvers konar menningarmiðstöð.“ Námið í Hollandi er fjölbreytt og áhrifin sjást í verkum Sigurðar Sævars frá nýliðnum árum. „Þetta eru tilraunir í stílum og stefnum á öllum vígstöðvum. Á opna húsinu verða verk sem ég hef unnið í Hol- landi og hér heima undanfarin tvö ár, fígúratíf verk, þar sem ég leik mér með samhengi hlutanna í arki- tektúr og mannlífinu sjálfu.“ Sér fyrir sér menningar- miðstöð í nýrri stofu og sal - Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar á sér stóra drauma Morgunblaðið/Eggert Stórt rými Vítt er til veggja og hátt til lofts í húsnæðinu á Barónsstíg. Opið hús Sigurður Sævar Magnúsarson er að koma verkum sínum fyrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.