Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 6

Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 Sveitarstjóri Skaftárhrepps Skaftárhreppur óskar eftir að ráða sveitarstjóra. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir framsækni, krafti og metnaði til að stýra starfsemi sveitarfélagsins og leiða áframhaldandi uppbyggingu þess. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí 2022. Umsókn óskast fyllt út áwww.intellecta.is og með henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. • Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og starfsmannamál • Undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitar- stjórnar og nefnda • Hagsmunagæsla og samskipti við íbúa, stofnanir, samtök og fyrirtæki • Leiða uppbyggingu og eflingu atvinnulífs á svæðinu • Vinna að stefnu og framtíðarsýn í málefnum sveitarfélagsins Starfssvið sveitarstjóra: Skaftárhreppur býr yfir fjölbreyttum tækifærum í leik og starfi fyrir fólk á öllum aldri. Í Skaftárhreppi er samfélagið fjölskylduvæntmeð um650 íbúa, þar af 212manns í þéttbýlinu á Kirkjubæjarklaustri. Þarmá finna alla nauðsynlega þjónustu, s.s. verslun, heilsugæslustöð, hjúkrunar- og dvalarheimili, leikskóla, grunnskóla, bókasafn, kaffihús og íþróttamiðstöð með glæsilegu íþróttahúsi, sundlaug og tækjasal. Skaftárhreppur er frábær staður til að njóta útivistar þar sem stutt er í margar þekktustu náttúruperlur á Íslandi. Einkunnarorð Skaftárhrepps eru: virðing, samstaða, jákvæðni og sjálfbærni. Nánari upplýsingar má finna á www.klaustur.is. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg • Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg • Þjónustulund ásamt framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Leiðtogahæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð • Áhugi og reynsla á uppbyggingu og eflingu atvinnulífs • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Menntunar- og hæfniskröfur: hagvangur.is Fasteignafélagið Íþaka leitar að fjármálastjóra sem sýnir frumkvæði, hefur metnað og kraft til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Helstu verkefni eru fjármálastjórnun og miðlun fjárhagsupplýsinga, fjármagnsskipan félagsins, áætlanagerð og kostnaðarstýring, samskipti við viðskiptamenn, fjármálastofnanir og endurskoðendur. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra. Um er ræða spennandi og krefjandi starf hjá vaxandi fasteignafélagi. Meðal verkefna fjármálastjóra • Rekstrar- og fjárfestingaáætlanir • Undirbúningur endurskoðunar og reglubundin uppgjör • Aðstoð við undirbúning stjórnarfunda • Greining á leiguverði fasteigna og þróun á líkönum • Mat á arðsemi nýrra fjárfestingaverkefna • Umsjón með innleiðingu og þróun UT verkefna Hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. í fjármálum og reikningshaldi • Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum • Reynsla af reikningshaldi og uppgjörum • Áhugi á nýtingu tækni til aukinnar skilvirkni • Færni í mannlegum samskiptum Fjármálastjóri Íþaka ehf. er fasteignafélag sem rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja. Íþaka leggur áherslu á skilvirkni og skjóta þjónustu, heilnæmt, sveigjanlegt og umhverfisvottað húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma. Aðalsmerki okkar eru gæði, traust, fágun og sveigjanleiki. Sjá nánar á ithaka.is. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 11.07.2022. Upplýsingar veita Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is, og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is Sótt er um störfin á hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.