Morgunblaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022
að styrkja góðan málstað og kaupa gamla
hluti sem við gerum eitthvað skemmtilegt
úr,“ segir Ásdís og útskýrir að þessi hlutir
séu nú út um allan skóginn í kringum húsið
hennar.
Byrjar að njóta í gróðurhúsinu í apríl
„Ég hef búið til blómapott úr gömlum stíg-
vélum, ég hef fundið fallegar styttur og sett
þær í skóginn og á dögunum fann ég fallegan
stóran járnfugl sem ég þarf nú að finna stað í
gróðrinum hér í kring um húsið,“ segir Ásdís
sem er með marga bolta á lofti allt árið um
kring.
„Í byrjun apríl hefst vinnan í gróðurhúsinu
þar sem ég huga að fjölæru plöntunum mín-
um. Það þarf að skoða hvernig þær eru að
koma undan vetri. Klippa þær og snyrta. Það
er svo yndislegt að dveljast þar í þrjátíu stiga
hita þegar jafnvel er vetrartíð úti. Þannig
rækta ég mig, hugleiði og nýt þess að vera í
kringum gróðurinn.“
Hún segir mismunandi hvaða plöntur tala
til hennar hverju sinni.
„Ég er ekkert voðalega dugleg að rækta
sumarblóm svo ég er fastagestur í Blómabæ
hjá Ástu og Kjartani. Ég nota þá náttúruna í
kringum mig í allskonar skreytingar. Í raun
má segja að ég sé ekki með garð, heldur villt-
an skóg, sem kemur mér sífellt á óvart.“
Þar sem smjörið drýpur af hverju strái
Ásdís gerir vanalega allt sem henni dettur
í hug.
„Mörg verkefnin eru í kringum garðinn og
gróðurinn. Enda er vinna að hafa allt fallegt
á svona stóru svæði. Svo er ég með litla
ferðaþjónustu. Þrjú lítil sumarhús sem við
hjónin byggðum sjálf á landinu árið 2014. Við
búum í algjörri náttúruparadís, þar sem
smjörið drýpur af hverju strái.“
Athyglisvert er hversu margar trjáteg-
undir er að finna í skóginum í kringum húsið
þeirra.
„Fyrri eigendur voru í trjárækt fyrir skóg-
arbændur svo ég uppgötva nýjar trjáteg-
undir reglulega. Í raun held ég að allar ís-
lenskar trjátegundir megi finna á
landareigninni.“
Býr til sápur úr hampi
Forvitnilegt er að vita hvernig er að búa
við eins fallega á og Kaldá.
„Við heimilið rennur áin með nokkrum foss-
um. Það eru eru algjör forréttindi að fá að
vera hér og upplifa kraftinn í Kaldá. Ég tek
því ekki sem sjálfsögðum hlut.
Við eyðum líka miklum tíma í náttúru-
spainu sem við byggðum okkur. Þar erum við
með heitan potti og gufu í litlu rjóðri. Við rölt-
um þangað niður í gegnum skóginn okkar og
hlustum á fuglana syngja a sumrin og njótum
norðurljósanna á veturna þar.“
Ásdís hefur einnig ýmislegt áhugavert fyrir
stafni, þegar kemur að framleiðslu á heim-
ilinu, sem gaman er að skoða.
„Ég er að búa til sápur en ég kaupi massa
frá Þýskalandi og blanda með hampi sem ég
rækta sjálf.
Ég sel ekki sápurnar, heldur eru þær ætl-
aðar til að ylja gestum Kaldár Lyngholt Holi-
day Homes um hjartarætur. Ég nota hampinn
einnig í te enda er allt sem er grænt svo vænt.
Ég er nú bara að leika mér með hampinn og
ekki í mikilli ræktun. En hann vex vel í skóg-
inum og fer yfir tvo metra, sem er svolítið
gaman að sjá.“
Ásdís er dugleg að fara í Rauða krossinn og
finna fallega hluti til að skreyta með í sveitinni.
Guli liturinn er
flottur í sveitinni.
Ásdís býr á fal-
legum stað þar sem
allt er fullt af gróðri.
Hvert sem litið er
má sjá fallega hluti
og dásamlega liti.
Það eru eru algjör forrétt-
indi að fá að vera hér og
upplifa kraftinn í Kaldá.
Það er dásamlegt að sjá dýrin
leika sér í náttúrunni, ham-
ingjusöm, glöð og frjáls.