Morgunblaðið - 27.05.2022, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 31
Gerðu garðinn
frægan í sumar
Það kennir ýmissa grasa í Sjónvarpi Símans Premium.
Ræktum garðinn er þáttur í umsjón Hugrúnar Halldórs,
Hafsteins Hafliða og Vilmundar Hansen sem fjallar um
allt sem við kemur garðrækt og plöntuhaldi á Íslandi.
Öll þáttaröðin er komin í Sjónvarp Símans Premium.
Nældu þér í áskrift á siminn.is.
„Við létum teikna fyrir okkur grunn-
hugmyndir að garðinum áður en við fórum að
byggja til að tryggja að rétt undirefni væri á
hverju svæði strax frá byrjun. Síðan fórum við
í miklar pælingar. Þegar við bjuggum í Hol-
landi var garðurinn svo stór hluti af okkar
heimili, enda leggja Hollendingar mikið upp úr
fallegum görðum. Við elskum að sitja úti, njóta
náttúrunnar, lesa bækur og eiga góðar stundir
með fjölskyldu og vinum. Öll hönnun miðast
við að búa til skjól.
Við hönnuðum útisvæðið með það í huga að
það væri að mestu viðhaldsfrítt. Við létum
stimpla allar stéttir og blönduðum það sam-
an við bambuspallaefni frá Flexi.is sem er
sérstaklega harðgert, gegnheilt og viðhalds-
frítt þar sem við látum það grána með ár-
unum.“
Það sem er áhugavert við bambus-
pallaefnið er hversu umhverfisvænt
það er.
„Bambusefnið myndar ekki
spennu og flísar eru ekki
vandamálið. Festingarnar
koma inn á hlið og eru því
ekki sýnilegar. Við lögðum
áherslu á að hafa allt útlit
einfalt og er garðurinn í
japönskum stíl sem er ef til
vill áhrif af ferðum okkar til
Asíu.“
Lýsingin í garðinum
lágstemmd
Öll lýsing í garð-
inum er hönnuð af
Holger Gíslasyni í
Rafkaupum.
„Lýsingin er lág-
stemmd og ljósin
neðarlega þar sem
áhersla er lögð á að
lýsa upp beðin og niður
á stéttar og palla.“
Lovísa bendir á hversu
mikilvægt
er að bæta
jafnt og þétt
við útisvæð-
ið í stað þess
að ætla sér að
gera allt á einu
bretti.
„Að búa til flottan
garð getur oft tekið tíma.
Við notum heita pottinn
mjög mikið og bættum svo
við gufubað á pallinn fyrir
tveimur árum sem hefur
slegið í gegn á heimilinu.
Síðsta sumar settum við upp
pergólu úr bambusstoðum með
glæru plexigleri á pallinn og
verkefni sumarsins verður að smíða
útieldhús úr bambus sem er að sjálfsögðu við-
haldsfrítt og fær að grána eins og annað á pall-
inum.“
Hannaði tekkhúsgögnin sjálf
Þegar Lovísa bjó í Hollandi fengu þau Valdi-
mar sér tekkborð og -stóla í garðinn.
„Það sett hefur staðið úti í 23 ár og er enn
þá glæsilegt. Fyrir tveimur árum fór ég að
horfa í kringum mig til að finna falleg við-
haldsfrí húsgögn og komst að því að það væri
lítið í boði. Eftir smá undirbúning flaug ég til
Hollands og hitti aðila sem er með verk-
smiðju í Indónesíu sem smíðar háklassa-
húsgögn úr vottuðum skógum. Þetta átti í
fyrstu bara að vera fyrir garðinn okkar en
svo kom hver vinkonan á eftir annarri sem
fór að spyrjast fyrir um þetta og úr varð að
við fórum að flytja inn útihúsgögnin og höfum
fengið frábærar viðtökur við þeim. Það mun-
ar svo miklu að eiga húsgögn sem þarf ekki
að byggja skúr fyrir til að geyma á veturna.
Húsgögnin eru þung svo þau eru ekki fjúk-
andi út um allt. Stór hluti af vörulínunni er
innblásinn af ítölskum stíl. Línan er einföld
og er ekki öskrandi á athygli heldur fellur svo
smart inn í umhverfið.“
Nú skipta litir miklu máli úti. Hvað völduð
þið þessu tengt?
„Við leggjum mikla áherslu á að umhverfið
sé stílhreint. Við erum með hvítt hús með
svörtu þaki, stimplaðar stéttir með svörtum lit
og bambuspallaefni sem við látum grána eins
og tekkgarðhúsgögnin sem við veljum að bera
ekki á heldur láta grána með árunum.“
Vilja njóta á pallinum
Eruð þið að rækta eitthvað í garðinum?
„Við erum með talsvert af fjölærum plöntum
og gráa kvarssteina í beðunum til að losa okk-
ur undan arfaplokki. Við höfum líka leikið okk-
ur aðeins með útlit. Við erum sem dæmi með
stórt grenitré fyrir framan hús sem við skár-
um og klipptum í kúlu.
Við hjónin vinnum bæði mikið og viljum því
nota okkar frítíma til að njóta þess að vera í
garðinum, spila golf og þess háttar. Því fannst
okkur lykilatriði að gera garðinn þannig að
hann væri að mestu viðhaldsfrír með mikið
notagildi.“
Lovísa var búin að leita að pottum í mörg ár
undir plönturnar í garðinum.
„Ég vildi potta sem gætu verið úti allt árið
um kring og fann ekkert sem mér fannst
nógu spennandi. Ég fór aftur af stað og hitti
belgískt fyrirtæki. Þetta fyrirtæki sérhæfir
sig í því að kaupa fornvörur í Asíu sem eiga
sína sögu og ég kolféll fyrir þessu. Flutti
pottana inn og er að selja þá í gegn um
Flexi.is og facebooksíðuna Tekk Garð-
húsgögn. Pottarnir eru allir nytjapottar frá
árinu 1850-1900. Engir tveir pottar eru eins
og allir með sinn karakter og sögu,“ segir
Lovísa.
Lovísa kynntist því í Hollandi
hversu miklu máli skiptir að hafa
útisvæðið huggulegt og gott.
Blómin setja svip
sinn á garðinn.