Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 17
19.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 REYKJAVÍK Lúðrasveitir léku undir með glæsibrag af svölum Alþingis á morgunathöfninni við Austurvöll þar sem flutt voru áhrifarík ávörp. Morgunblaðið/Óttar 17. júní Þjóðhátíðardagur Íslendinga var haldinn hátíðlegur um allt land. Í gær voru liðin 78 ár frá stofnun íslenska lýðveldisins. Nú eru engar takmarkanir í gildi og því í fyrsta skipti í tvö ár sem hátíðarhöldurum voru engar hömlur settar og bar dagskráin þess merki. Ýmsar skemmtanir og glæsilegar sýningar stóðu til boða. Á sunnanverðu landinu náði sólin að skína í gegn og baða skrúðgöngur og þjóðbúninga geislum sínum. Vætusamara var á norðanverðu landinu en íbúar þar létu það þó ekki stöðva sig í að halda upp á þennan merkisdag. REYKJAVÍK Forsetahjónin létu sig ekki vanta á morgunathöfnina. Morgunblaðið/Óttar VESTMANNAEYJAR Hljómsveit skemmti Eyjamönnum þar sem þeir röltu um og nutu hátíðardagskrárinnar. Morgunblaðið/Óskar FJARÐARBYGGÐ Andlit skreytt. Morgunblaðið/Albert Kemp AKUREYRI Bíladagar fara fram á Akureyri um þessar mundir og var því boðið upp á bílasýningu. Morgunblaðið/Þorgeir Morgunblaðið/Óttar AKUREYRI Hugrakkir krakkar tóku þátt í kassaklifri. Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.