Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
Þ
að var nokkur spenna í þjóð-
félaginu þessa vikuna, í að-
draganda þjóðhátíðarinnar
undir lok vikunnar. Almenningur
uggði um verðbólguna, ekki síst
hvernig hún birtist við bensíndæl-
una, en við Austurvöll höfðu menn
áhyggjur af því hvort þinglok hefð-
ust fyrir 17. júní, en þar voru aðrar
dælur látnar ganga og annars konar
verðbólga í gangi.
Sjómannadagurinn var haldinn há-
tíðlegur liðinn sunnudag, tveimur
árum seinna en ella vegna plág-
unnar. Um leið var gamla nafnið tek-
ið upp á ný (og Hátíð hafsins kastað
út í hafsauga) og tók almenningur
virkan þátt í hátíðahöldunum.
Erlendur ferðamaður lést í Reyn-
isfjöru, sem vakti talsverða umræðu
um varúðarráðstafanir þar og
hvernig koma megi fólki í skilning
um hættuna.
Tilkynningar um lúsmýbit eru farn-
ar að berast Náttúrufræðistofnun.
Mótmælt var við rússneska sendi-
ráðið á 12. júní sjálfstæðisdegi Rúss-
lands, en þar á meðal voru Rússar
búsettir á Íslandi.
Varðskipið Óðinn, sem nú er orðið
safnskip, var siglt nýuppgerðu og
fánum prýtt til Grindavíkur, en til
stendur að heimsækja fleiri hafnir.
Bjartmar Guðlaugsson trúbador
varð sjötugur.
. . .
Landsliðið í fótbolta karla gerði
jafntefli við Ísraelsmenn á Laug-
ardalsvelli, en það hefur ekki sýnt
nein sérstök tilþrif í Þjóðadeildinni.
Á Alþingi var fundað bæði í þingsöl-
um og tiltækum skúmaskotum um
hvernig unnt væri að ná þinglokum
í vikunni sem var að líða. Stjórn-
arflokkarnir sömdu við stjórnarand-
stöðuna um að leyfa tilteknum mál-
um að koma til afgreiðslu eða láta
önnur daga uppi.
Þingmannafrumvarp sjálfstæð-
ismanna um netverslun með áfengi
var látið detta upp fyrir í nafni ein-
ingar ríkisstjórnarinnar við lítinn
fögnuð flutningsmanna. Vart hefur
orðið aukinnar kergju milli stjórn-
arflokkanna að undanförnu og þetta
mál einn angi af því.
Hins vegar var rammaáætlunin af-
greidd úr nefnd og nokkrir kostir
færðir á milli flokka, átta úr vernd-
arflokki í biðflokk, en þrír úr nýting-
arflokki í bið. Búrfellslundur var
fluttur í nýtingarflokk, en þar stend-
ur til að koma upp vindorkuveri.
Ýmsir urðu til þess að mótmæla
breytingunum en fremur máttleys-
islega. Forstjóri Landsvirkjunar
taldi þetta skynsamlega málamiðlun.
Landsvirkjun hóf umhverfismat
vegna aflaukningar Sigöldu, en þar
er fyrirhugað að bæta við fjórðu vél-
inni og aukaorkubeislun hennar um
65 Mw í 215.
Á sama tíma var mikið verðfall í
kauphöllum heimsins, þar á meðal
við Laugaveg. Dökkar efnahags-
horfur, verðbólga, rofnar aðflutn-
ingskeðjur og fyrirsjáanlegur mat-
vælaskortur ýtir undir áhyggjur
markaðsaðila, en þegar þeir verða
smeykir er öðrum ráðlegt að grípa
fastar um budduna.
Samdægur birtust niðurstöður líf-
heilsuvísi landlæknis, sem leiddu í
ljós að Íslendingar eru óhamingju-
samari en áður.
Eftir stutta viðkomu við Ísland hélt
fastafloti Atlantshafsbandalagsins á
haf út til æfinga á Atlantshafi, þar
sem einkum er æfð kafbátaleit. Við-
sjár í alþjóðamálum hafa kallað á
aukinn viðbúnað á hafsvæðinu milli
Grænlands og Evrópu.
Vikulangt Reykjavíkurmeist-
aramót hestamannafélagsins Fáks
hófst á mánudag. 920 voru skráðir til
keppni, svo keppt er frá morgni og
fram á kvöld.
Blóðbankinn lét boð út ganga um að
meira blóð vantaði í hirslur hans og
bretti Willum Þór Þórsson heil-
brigðisráðherra þegar upp ermina.
. . .
Móðir lýsti því hvernig fárveik 26
ára dóttir hennar hefði mætt algeru
sinnuleysi á bráðamóttöku Land-
spítalans, þrátt fyrir að hún léti í ljós
áhyggjur af heilahimnubólgu.
Veikindin hófust 26. maí, en farið var
á bráðamóttöku hinn 30. Það var
ekki fyrr en í þriðju heimsókninni 9.
júní, sem heilahimnubólga var
greind að þrábeiðni móðurinnar.
Flugumferð færist óðum til fyrra
horfs, bæði um íslenska flugstjórn-
arsvæðið á Atlantshafi og til og frá
Íslandi. Er stutt í að umferðin kom-
ist í sama horf og var 2019, skömmu
áður en plágan kviknaði í Kína.
Sláturfélag Suðurlands (SS) boðaði
methækkun á afurðaverði til
bænda, sem ætlað er að koma til
móts við gríðarlegar verðhækkanir á
rekstrarvöru til bænda. Mestur hluti
hækkunarinnar ratar til neytenda.
Samtök fyrirtækja í landbúnaði
gagnrýndu hins vegar niðurfellingu
tolla á vöru frá Úkraínu og telja
hana koma niður á íslenskum bænd-
um. Málsvarar bænda telja slíka nið-
urfellingu aðeins eiga að ná til vöru
sem nú þegar er flutt frá Úkraínu til
Íslands. Með öðrum orðum enga.
Hins vegar lagði „spretthópur“
matvælaráðherra það til að beita 2,5
milljörðum króna úr ríkissjóði til
þess að styrkja þá bændur, sem orð-
ið hafa fyrir mestum kostnaðar-
hækkunum upp á síðkastið.
Ákveðið var í Skagafirði að Skaga-
fjörður skyldi framvegis bera nafnið
Skagafjörður. Nauðsynlegt var að
árétta þetta eftir að Akrahreppur
sameinaðist Skagafirði nú í maí.
Ólafur Haukur Símonarson fékk
heiðursverðlaun Sviðslista-
sambandsins í ár.
. . .
Seðlabankinn ákvað að lækka há-
mark veðsetningarhlutfalls fast-
eignalána fyrstu kaupenda úr 90% í
85%. Fasteignasalar töldu það mikið
óráð og „móðgun“ við ungt fólk.
Hafa þó sárafáir fengið slík lán og
hinir ekkert voða móðgaðir.
Þinglokin gengu betur en á horftðist
um hríð, þannig séð, þó einnig hafi
verið fundið að vinnubrögðunum
undir lokin, þegar stjórnarand-
staðan komst óvænt að þeirri nið-
urstöðu að óþarfi væri að liggja of
lengi yfir málum, fá sérfræðiálitin öll
og hlusta á möppudýrin.
Viðnám gegn verðbólgu kom úr
óvæntri átt þegar netverslunin
Sante Wines fékk til sín gám, stút-
fullan af bjór, sem seldur er á mun
lægra verði en sama vara í Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins. Forsvars-
menn fyrirtækisins telja að áfeng-
isverð í Ríkinu sé um 20% of hátt.
Sauðfjárbændur vonast til þess að
íslenskt lambaket fái evrópska upp-
runatilvísun, líkt og parmaskinka,
feta-ostur, kampavín og fleira stað-
bundið góðgæti.
Reykjavíkurborg lét gera útipalla
við Frakkastíg til þess að fækka þar
bílastæðum, sem mæltist misvel
fyrir. Sumir bíleigendur tautuðu,
öðrum þóttu þeir ljótir, en ekki síst
var að því fundið að ekki virðist mið-
að við að fatlaðir eigi erindi á þá.
Ómar Garðarsson blaðamaður hef-
ur gerst ritstjóri Eyjafrétta í þriðja
sinn um ævina, en hann er 72 ára
gamall og er auk þess fréttaritari
Morgunblaðsins.
. . .
Hafrannsóknarstofnun gaf út ráð-
gjöf fyrir næsta fiskveiðiár, þar sem
gert er ráð fyrir að aflamark í
þorski verði skert um 6%. Það er
talsvert högg, ekki síst þar sem
þorskstofninn er sterkur. Fyr-
irsjáanlegt er að útflutnings-
verðmæti minnki og atvinnuleysi
aukist.
Sagðar voru af því fréttir að aðstoð-
arforsjóri HBO fagnaði auknum
stuðningi íslenskra stjórnvalda við
kvikmyndaiðnað á Íslandi, sem birt-
ist í auknum skattendurgreiðslum
til erlendra framleiðenda sem hing-
að koma. Hver myndi ekki fagna
peningagjöfum erlendra ríkja?
Líkneski af Agli Gr. Thorarensen,
fyrsta kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Árnesinga, var afhjúpað í miðbæ
Selfoss, en það er eftir Höllu Gunn-
arsdóttur myndhöggvara.
Þau undur gerðust að fjarlægð voru
grindverk umhverfis nýbyggingu á
horni Lækjargötu og Vonarstrætis,
sem þar hafa staðið langt út á götu í
þrjú ár og haldið miðbænum í
herkví. Ekki síst þar sem fram-
kvæmdir hafa litlar verið mestan
þann tíma og svæðið notað sem bíla-
stæði verktaka.
Tilraunir fjölmiðla til þess að ræða
við starfsmenn Landspítala um
sinnuleysi við fárveika konu með
heilahimnubólgu báru engan árang-
ur. Alma Möller landlæknir játaði
hins vegar að staðan væri óvið-
unandi og kvaðst binda vonir við að
nýtt viðbragðsteymi heilbrigð-
isráðherra leysti vandann.
Aftur var tekin upp grímuskylda á
Landspítala, en þar eru 30 sjúkling-
ar með kórónuveiruna á átta deild-
um. Í öðrum sóttvarnafréttum bólaði
lítið á fleiri apabólutilfellum, en hins
vegar kviknaði grunur um fjöló-
næmt berklasmit.
Önnur framkvæmd í Skorradal á
vegum Skógræktarinnar hefur verið
stöðvuð, en Þresti Eysteinssyni
skógræktarstjóra fannst ekki tilefni
til og telur að Skógræktin þurfi ekki
að leita skipulagsleyfis á sínu landi.
. . .
Þjóðhátíð var fagnað um allt land, en
rok og rigning settu víða þjóðlegan
brag á hátíðahöldin. Fjórtán fengu
fálkaorðuna í tilefni dagsins. Á Aust-
urvelli var Sylwia Zajkowska fjall-
kona og flutti hún ljóð eftir Brynju
Hjálmsdóttur.
Til átaka kom milli byggingarverka-
manna á Seltjarnarnesi og veittist
annar að hinum með klaufhamri og
haka, svo flytja þurfti á slysadeild
með höfuðáverka, en árásarmað-
urinn handtekinn.
Erlendur ferðamaður lést og er eig-
inkona hans alvarlega slösuð eftir að
þau lentu í árekstri við sendibíl, sem
kom úr gagnstæðri átt, á Suður-
landsvegi vestan Kúðafljóts,
skammt austur af Vík.
Þinglok og
þjóðhátíð
Gamla varðskipið Óðinn lét úr höfn í Reykjavík og hélt til Grindavíkur, en nú með þjóðfánann frekar en ríkisfánann við skut.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
12.6.-17.6.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Love, Your Person
Happy
Anniversary!