Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 Þ að var nokkur spenna í þjóð- félaginu þessa vikuna, í að- draganda þjóðhátíðarinnar undir lok vikunnar. Almenningur uggði um verðbólguna, ekki síst hvernig hún birtist við bensíndæl- una, en við Austurvöll höfðu menn áhyggjur af því hvort þinglok hefð- ust fyrir 17. júní, en þar voru aðrar dælur látnar ganga og annars konar verðbólga í gangi. Sjómannadagurinn var haldinn há- tíðlegur liðinn sunnudag, tveimur árum seinna en ella vegna plág- unnar. Um leið var gamla nafnið tek- ið upp á ný (og Hátíð hafsins kastað út í hafsauga) og tók almenningur virkan þátt í hátíðahöldunum. Erlendur ferðamaður lést í Reyn- isfjöru, sem vakti talsverða umræðu um varúðarráðstafanir þar og hvernig koma megi fólki í skilning um hættuna. Tilkynningar um lúsmýbit eru farn- ar að berast Náttúrufræðistofnun. Mótmælt var við rússneska sendi- ráðið á 12. júní sjálfstæðisdegi Rúss- lands, en þar á meðal voru Rússar búsettir á Íslandi. Varðskipið Óðinn, sem nú er orðið safnskip, var siglt nýuppgerðu og fánum prýtt til Grindavíkur, en til stendur að heimsækja fleiri hafnir. Bjartmar Guðlaugsson trúbador varð sjötugur. . . . Landsliðið í fótbolta karla gerði jafntefli við Ísraelsmenn á Laug- ardalsvelli, en það hefur ekki sýnt nein sérstök tilþrif í Þjóðadeildinni. Á Alþingi var fundað bæði í þingsöl- um og tiltækum skúmaskotum um hvernig unnt væri að ná þinglokum í vikunni sem var að líða. Stjórn- arflokkarnir sömdu við stjórnarand- stöðuna um að leyfa tilteknum mál- um að koma til afgreiðslu eða láta önnur daga uppi. Þingmannafrumvarp sjálfstæð- ismanna um netverslun með áfengi var látið detta upp fyrir í nafni ein- ingar ríkisstjórnarinnar við lítinn fögnuð flutningsmanna. Vart hefur orðið aukinnar kergju milli stjórn- arflokkanna að undanförnu og þetta mál einn angi af því. Hins vegar var rammaáætlunin af- greidd úr nefnd og nokkrir kostir færðir á milli flokka, átta úr vernd- arflokki í biðflokk, en þrír úr nýting- arflokki í bið. Búrfellslundur var fluttur í nýtingarflokk, en þar stend- ur til að koma upp vindorkuveri. Ýmsir urðu til þess að mótmæla breytingunum en fremur máttleys- islega. Forstjóri Landsvirkjunar taldi þetta skynsamlega málamiðlun. Landsvirkjun hóf umhverfismat vegna aflaukningar Sigöldu, en þar er fyrirhugað að bæta við fjórðu vél- inni og aukaorkubeislun hennar um 65 Mw í 215. Á sama tíma var mikið verðfall í kauphöllum heimsins, þar á meðal við Laugaveg. Dökkar efnahags- horfur, verðbólga, rofnar aðflutn- ingskeðjur og fyrirsjáanlegur mat- vælaskortur ýtir undir áhyggjur markaðsaðila, en þegar þeir verða smeykir er öðrum ráðlegt að grípa fastar um budduna. Samdægur birtust niðurstöður líf- heilsuvísi landlæknis, sem leiddu í ljós að Íslendingar eru óhamingju- samari en áður. Eftir stutta viðkomu við Ísland hélt fastafloti Atlantshafsbandalagsins á haf út til æfinga á Atlantshafi, þar sem einkum er æfð kafbátaleit. Við- sjár í alþjóðamálum hafa kallað á aukinn viðbúnað á hafsvæðinu milli Grænlands og Evrópu. Vikulangt Reykjavíkurmeist- aramót hestamannafélagsins Fáks hófst á mánudag. 920 voru skráðir til keppni, svo keppt er frá morgni og fram á kvöld. Blóðbankinn lét boð út ganga um að meira blóð vantaði í hirslur hans og bretti Willum Þór Þórsson heil- brigðisráðherra þegar upp ermina. . . . Móðir lýsti því hvernig fárveik 26 ára dóttir hennar hefði mætt algeru sinnuleysi á bráðamóttöku Land- spítalans, þrátt fyrir að hún léti í ljós áhyggjur af heilahimnubólgu. Veikindin hófust 26. maí, en farið var á bráðamóttöku hinn 30. Það var ekki fyrr en í þriðju heimsókninni 9. júní, sem heilahimnubólga var greind að þrábeiðni móðurinnar. Flugumferð færist óðum til fyrra horfs, bæði um íslenska flugstjórn- arsvæðið á Atlantshafi og til og frá Íslandi. Er stutt í að umferðin kom- ist í sama horf og var 2019, skömmu áður en plágan kviknaði í Kína. Sláturfélag Suðurlands (SS) boðaði methækkun á afurðaverði til bænda, sem ætlað er að koma til móts við gríðarlegar verðhækkanir á rekstrarvöru til bænda. Mestur hluti hækkunarinnar ratar til neytenda. Samtök fyrirtækja í landbúnaði gagnrýndu hins vegar niðurfellingu tolla á vöru frá Úkraínu og telja hana koma niður á íslenskum bænd- um. Málsvarar bænda telja slíka nið- urfellingu aðeins eiga að ná til vöru sem nú þegar er flutt frá Úkraínu til Íslands. Með öðrum orðum enga. Hins vegar lagði „spretthópur“ matvælaráðherra það til að beita 2,5 milljörðum króna úr ríkissjóði til þess að styrkja þá bændur, sem orð- ið hafa fyrir mestum kostnaðar- hækkunum upp á síðkastið. Ákveðið var í Skagafirði að Skaga- fjörður skyldi framvegis bera nafnið Skagafjörður. Nauðsynlegt var að árétta þetta eftir að Akrahreppur sameinaðist Skagafirði nú í maí. Ólafur Haukur Símonarson fékk heiðursverðlaun Sviðslista- sambandsins í ár. . . . Seðlabankinn ákvað að lækka há- mark veðsetningarhlutfalls fast- eignalána fyrstu kaupenda úr 90% í 85%. Fasteignasalar töldu það mikið óráð og „móðgun“ við ungt fólk. Hafa þó sárafáir fengið slík lán og hinir ekkert voða móðgaðir. Þinglokin gengu betur en á horftðist um hríð, þannig séð, þó einnig hafi verið fundið að vinnubrögðunum undir lokin, þegar stjórnarand- staðan komst óvænt að þeirri nið- urstöðu að óþarfi væri að liggja of lengi yfir málum, fá sérfræðiálitin öll og hlusta á möppudýrin. Viðnám gegn verðbólgu kom úr óvæntri átt þegar netverslunin Sante Wines fékk til sín gám, stút- fullan af bjór, sem seldur er á mun lægra verði en sama vara í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Forsvars- menn fyrirtækisins telja að áfeng- isverð í Ríkinu sé um 20% of hátt. Sauðfjárbændur vonast til þess að íslenskt lambaket fái evrópska upp- runatilvísun, líkt og parmaskinka, feta-ostur, kampavín og fleira stað- bundið góðgæti. Reykjavíkurborg lét gera útipalla við Frakkastíg til þess að fækka þar bílastæðum, sem mæltist misvel fyrir. Sumir bíleigendur tautuðu, öðrum þóttu þeir ljótir, en ekki síst var að því fundið að ekki virðist mið- að við að fatlaðir eigi erindi á þá. Ómar Garðarsson blaðamaður hef- ur gerst ritstjóri Eyjafrétta í þriðja sinn um ævina, en hann er 72 ára gamall og er auk þess fréttaritari Morgunblaðsins. . . . Hafrannsóknarstofnun gaf út ráð- gjöf fyrir næsta fiskveiðiár, þar sem gert er ráð fyrir að aflamark í þorski verði skert um 6%. Það er talsvert högg, ekki síst þar sem þorskstofninn er sterkur. Fyr- irsjáanlegt er að útflutnings- verðmæti minnki og atvinnuleysi aukist. Sagðar voru af því fréttir að aðstoð- arforsjóri HBO fagnaði auknum stuðningi íslenskra stjórnvalda við kvikmyndaiðnað á Íslandi, sem birt- ist í auknum skattendurgreiðslum til erlendra framleiðenda sem hing- að koma. Hver myndi ekki fagna peningagjöfum erlendra ríkja? Líkneski af Agli Gr. Thorarensen, fyrsta kaupfélagsstjóra Kaupfélags Árnesinga, var afhjúpað í miðbæ Selfoss, en það er eftir Höllu Gunn- arsdóttur myndhöggvara. Þau undur gerðust að fjarlægð voru grindverk umhverfis nýbyggingu á horni Lækjargötu og Vonarstrætis, sem þar hafa staðið langt út á götu í þrjú ár og haldið miðbænum í herkví. Ekki síst þar sem fram- kvæmdir hafa litlar verið mestan þann tíma og svæðið notað sem bíla- stæði verktaka. Tilraunir fjölmiðla til þess að ræða við starfsmenn Landspítala um sinnuleysi við fárveika konu með heilahimnubólgu báru engan árang- ur. Alma Möller landlæknir játaði hins vegar að staðan væri óvið- unandi og kvaðst binda vonir við að nýtt viðbragðsteymi heilbrigð- isráðherra leysti vandann. Aftur var tekin upp grímuskylda á Landspítala, en þar eru 30 sjúkling- ar með kórónuveiruna á átta deild- um. Í öðrum sóttvarnafréttum bólaði lítið á fleiri apabólutilfellum, en hins vegar kviknaði grunur um fjöló- næmt berklasmit. Önnur framkvæmd í Skorradal á vegum Skógræktarinnar hefur verið stöðvuð, en Þresti Eysteinssyni skógræktarstjóra fannst ekki tilefni til og telur að Skógræktin þurfi ekki að leita skipulagsleyfis á sínu landi. . . . Þjóðhátíð var fagnað um allt land, en rok og rigning settu víða þjóðlegan brag á hátíðahöldin. Fjórtán fengu fálkaorðuna í tilefni dagsins. Á Aust- urvelli var Sylwia Zajkowska fjall- kona og flutti hún ljóð eftir Brynju Hjálmsdóttur. Til átaka kom milli byggingarverka- manna á Seltjarnarnesi og veittist annar að hinum með klaufhamri og haka, svo flytja þurfti á slysadeild með höfuðáverka, en árásarmað- urinn handtekinn. Erlendur ferðamaður lést og er eig- inkona hans alvarlega slösuð eftir að þau lentu í árekstri við sendibíl, sem kom úr gagnstæðri átt, á Suður- landsvegi vestan Kúðafljóts, skammt austur af Vík. Þinglok og þjóðhátíð Gamla varðskipið Óðinn lét úr höfn í Reykjavík og hélt til Grindavíkur, en nú með þjóðfánann frekar en ríkisfánann við skut. Morgunblaðið/Sigurður Bogi 12.6.-17.6. Andrés Magnússon andres@mbl.is Love, Your Person Happy Anniversary!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.