Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
MATUR
Fyrir 6
3 kartöflur, skrældar og skornar í
miðlungsstóra bita
250-300 g spínat. Ef þið notið
frosið, látið þá þiðna í 10-15
mín.
1½ laukur, skorinn fínt
2-3 hvítlauksrif, skorin mjög fínt
1-2 cm bútur af engifer, skorinn
fínt
3 msk matarolía
smá salt
¼ tsk chiliduft eða cayennepipar
¼ tsk garam masala
¼ tsk kummínduft
Hitið 1½ msk af olíu á pönnu
og steikið kartöflur þar til
gullinbrúnar. Setjið til hliðar
og bætið afganginum af olíu-
nni á pönnuna. Bætið út í hvít-
lauk og engifer og látið malla
smá stund. Bætið þá lauknum
saman við og steikið þar til
gullinn á lit. Bætið þá við spí-
nati og smá salti og steikið
áfram þar til vatnið er gufað
upp og spínatið fulleldað. Bæt-
ið þá við kummíni, chilikryddi
og kartöflum. Smakkið til
með salti. Steikið áfram þar til
kryddið hefur blandast vel
hráefnunum. Bætið að lokum
við garam masala og hrærið
saman við. Berið fram strax.
Aloo Palak
Fyrir 4
2 bollar basmatihrísgrjón
4 bollar vatn
3 tsk kummínfræ
4 tsk ósaltað smjör
1 kanilstöng
salt
ferskur kóríander
Skolið grjónin og látið liggja í
vatni í 20 mínútur og sigtið svo
vatn frá.
Steikið saman kummínfræ og
kanilstöng í potti í smjörinu. Hell-
ið næst fjórum bollum af vatni í
pottinn og saltið. Þegar vatn nær
suðu bætið þá við grjónum og eld-
ið í um hálftíma á lægsta hita þar
til tilbúin. Skreytið með ferskum
kóríander.
Jerra-hrísgrjón
E
ftirvæntingin lá í loftinu þeg-
ar áhugakokkar nokkrir
komu saman hjá Salt eldhúsi
á námskeið fyrr í vikunni. Gesta-
kennari var að þessu sinni ekki af
verri endanum. Hin indverska Ra-
mya Shyam sem hér býr ásamt eig-
inmanni sínum, sendiherranum Shri
Balasubramanian Shyam, kann til
verka við matargerð. Ramya er
grænmetisæta og hefur verið alla
ævi. Hún byrjaði á að kynna fyrir
nemendum hvað hún hygðist kenna,
sem var að sjálfsögðu grænmetis-
réttir.
„Ég vil elda eitthvað sem er hollt
og gott fyrir líkama og sál. Þetta
eru allt réttir sem þið getið eldað
heima hjá ykkur reglulega. Þetta er
ekta heimilismatur sem lætur
manni líða vel,“ segir Ramya og
byrjar fimlega að skera lauk undir
vökulu auga nemendanna Elizu
Reid, forsetafrúar Íslands, og Mar-
grétar Sigfúsdóttur, fráfarandi
skólastjóra Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur.
Nemendur skiptust í nokkra litla
hópa og hófust handa við að elda
ilmandi hrísgrjón, spínat- og kart-
öflurétt, linsubaunaréttinn dal og
pakoda, sem eru steiktir lauk-
Ramya Shyam er sendiherrafrú Ind-
lands á Íslandi. Hún er ástríðukokkur
og elskar að miðla af reynslu sinni.
Morgunblaðið/Ásdís
Matur fyrir
líkama og sál
Sendiherrafrú Indlands á Íslandi, Ramya Shyam,
kenndi áhugakokkum að elda indverska
grænmetisrétti hjá Salt eldhúsi.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Það er ekki síður
skemmtilegt að
borða en elda!