Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 MATUR Fyrir 6 3 kartöflur, skrældar og skornar í miðlungsstóra bita 250-300 g spínat. Ef þið notið frosið, látið þá þiðna í 10-15 mín. 1½ laukur, skorinn fínt 2-3 hvítlauksrif, skorin mjög fínt 1-2 cm bútur af engifer, skorinn fínt 3 msk matarolía smá salt ¼ tsk chiliduft eða cayennepipar ¼ tsk garam masala ¼ tsk kummínduft Hitið 1½ msk af olíu á pönnu og steikið kartöflur þar til gullinbrúnar. Setjið til hliðar og bætið afganginum af olíu- nni á pönnuna. Bætið út í hvít- lauk og engifer og látið malla smá stund. Bætið þá lauknum saman við og steikið þar til gullinn á lit. Bætið þá við spí- nati og smá salti og steikið áfram þar til vatnið er gufað upp og spínatið fulleldað. Bæt- ið þá við kummíni, chilikryddi og kartöflum. Smakkið til með salti. Steikið áfram þar til kryddið hefur blandast vel hráefnunum. Bætið að lokum við garam masala og hrærið saman við. Berið fram strax. Aloo Palak Fyrir 4 2 bollar basmatihrísgrjón 4 bollar vatn 3 tsk kummínfræ 4 tsk ósaltað smjör 1 kanilstöng salt ferskur kóríander Skolið grjónin og látið liggja í vatni í 20 mínútur og sigtið svo vatn frá. Steikið saman kummínfræ og kanilstöng í potti í smjörinu. Hell- ið næst fjórum bollum af vatni í pottinn og saltið. Þegar vatn nær suðu bætið þá við grjónum og eld- ið í um hálftíma á lægsta hita þar til tilbúin. Skreytið með ferskum kóríander. Jerra-hrísgrjón E ftirvæntingin lá í loftinu þeg- ar áhugakokkar nokkrir komu saman hjá Salt eldhúsi á námskeið fyrr í vikunni. Gesta- kennari var að þessu sinni ekki af verri endanum. Hin indverska Ra- mya Shyam sem hér býr ásamt eig- inmanni sínum, sendiherranum Shri Balasubramanian Shyam, kann til verka við matargerð. Ramya er grænmetisæta og hefur verið alla ævi. Hún byrjaði á að kynna fyrir nemendum hvað hún hygðist kenna, sem var að sjálfsögðu grænmetis- réttir. „Ég vil elda eitthvað sem er hollt og gott fyrir líkama og sál. Þetta eru allt réttir sem þið getið eldað heima hjá ykkur reglulega. Þetta er ekta heimilismatur sem lætur manni líða vel,“ segir Ramya og byrjar fimlega að skera lauk undir vökulu auga nemendanna Elizu Reid, forsetafrúar Íslands, og Mar- grétar Sigfúsdóttur, fráfarandi skólastjóra Hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Nemendur skiptust í nokkra litla hópa og hófust handa við að elda ilmandi hrísgrjón, spínat- og kart- öflurétt, linsubaunaréttinn dal og pakoda, sem eru steiktir lauk- Ramya Shyam er sendiherrafrú Ind- lands á Íslandi. Hún er ástríðukokkur og elskar að miðla af reynslu sinni. Morgunblaðið/Ásdís Matur fyrir líkama og sál Sendiherrafrú Indlands á Íslandi, Ramya Shyam, kenndi áhugakokkum að elda indverska grænmetisrétti hjá Salt eldhúsi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það er ekki síður skemmtilegt að borða en elda!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.