Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Side 10
M
eðalfellsvatnið var speg-
ilslétt og algjör kyrrð ríkti í
sveitinni hans Björns Inga
Knútssonar þegar blaða-
mann bar að garði einn
fagran sumarmorgun í júní. Björn Ingi býr allt
árið í kring í sumarbústað við vatnið og er út-
sýnið út um stofugluggann eitt og sér nógu góð
ástæða fyrir því. Björn Ingi hefur staðið í
ströngu undanfarið við að byggja útiborðstofu
við hlið hússins síns þar sem hann hyggst reka
vínskóla innan skamms. Vínskólinn við vatnið
hefur verið draumur hans lengi en vínáhuginn,
sem lengi hefur verið fyrir hendi, hefur aðeins
farið vaxandi með árunum. Björn Ingi hefur
ferðast víða um heim og klárað ýmis við-
urkennd vínnámskeið, nokkuð sem aðeins allra
áhugasömustu vínáhugamenn myndu leggja á
sig.
Vínfræðsla er aðalatriðið
Það er bæði hlýlegt og smart í Vínskólanum
hans Björns Inga. Langt tréborð smellpassar
inn í rýmið og þar geta gestir horft út á vatn á
sólsetrið á meðan þeir dreypa á eðalvínum
þessa heims. Á einum vegg er betrekkt með
lokum af vínkössum úr tré sem gefur her-
berginu skemmtilegan blæ. Björn Ingi hellir
upp á dásamlegt kaffi og býður upp á fersk
kirsuber og súkkulaði sem er ekki amalegt að
gæða sér á með morgunkaffinu. Hann kemur
sér vel fyrir og segir blaðamanni allt um
ástríðuna fyrir vínum og hvernig hann brenn-
ur fyrir að vekja áhuga annarra á þeim guða-
veigum.
„Ég er einn í þessari kennslu til að byrja
með en konan mín Rakel mun stíga inn í ef
við þurfum að vera tvö. Ég mun taka hér á
móti hópum og hef tekið nokkra hópa nú þeg-
ar í prufur. Ég hef ástríðu fyrir þessu og er
sjálfur mjög fróðleiksþyrstur en efnið er
viðamikið og endalaust hægt að læra,“ segir
hann og segist hlakka til að taka á móti fyrstu
gestunum en hann mun taka hámark tíu
manns á námskeið. Björn Ingi segist ætla að
bjóða upp á einhver námskeið fyrir ferða-
menn, þótt hann hugsi þau fyrst og fremst
fyrir landann.
„Fyrir ferðamenn mun ég bjóða upp á ís-
lenska smárétti beint frá býlum hér í kring
og para saman við vín,“ segir hann en segist
alla jafna ekki ætla að bjóða upp á mat þar
sem þetta er ekki veitingahús heldur fræðsla
og smökkun, og þar er vín og matpörun eitt
viðfangsefnið. Til dæmis verður í vetur sér-
stakt námskeið um hvernig eigi að para sam-
an vín og hefðbundinn jólamat okkar Íslend-
inga.
„Fólk segir gjarnan að það sé að koma í vín-
smökkun til mín en ég leiðrétti það alltaf því
fólk er að koma hingað í vínfræðslu. Vín-
smökkun er þegar söluaðili leyfir þér að
smakka afurð sína til að selja þér hana og
kynna. Ég er ekki að kynna neinar vörur og
þessi námskeið eru ekki fyrir fólk sem er að
leita að djammi eða gæsa- og steggjapartíum.
Þetta eru hágæðanámskeið,“ segir hann en
þess má geta að fyrstu námskeiðin verða nú í
ágúst og hægt er að nálgast upplýsingar á vin-
skolinnvidvatnid.is.
Ævintýri í Kyrrahafinu
Þessi mikli vínáhugi og ástríða kviknaði allra
fyrst þegar Björn Ingi bjó í Ástralíu og Nýja-
Sjálandi, en þar bjó hann frá ársbyrjun 1996 til
ársloka 1998. Þar starfaði hann sem fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá frönsku skipa-
félagi.
„Ég var fyrst í Sydney og síðar í Auckland
en athafnasvæði fyrirtækisins var Suður-
Kyrrahaf. Ég fór oft í ferðir til Papúa Nýju-
Gíneu, Fídjí, Nýju-Kaledóníu og margra
fleiri eyja. Þetta var mikið ævintýri. Ég hafði
verið farinn að smakka vín áður en ég bjó í
þessum löndum en þarna vaknaði áhugi á að
vita meira um vín og víngerð frá þessum
stöðum. Það var vínbúð rétt hjá þar sem ég
bjó og einu sinni í viku mættu þangað vín-
bændur til að kynna afurð sína. Ég vandi
komur mínar þangað til að hlusta og smakka
og þar kviknaði þessi áhugi fyrir alvöru,“
segir Björn Ingi en hann flutti svo heim og
tók við stöðu flugvallarstjóra á Keflavíkur-
flugvelli.
„Ég hafði þá ekki mikinn tíma til að sinna
þessu áhugamáli því ég var í mjög annasömu
Björn Ingi kann sann-
arlega tökin á því að
skenkja í vínglas.
Morgunblaðið/Ásdís
Boðið verður upp
á fræðslu um létt-
vín og smökkun.
Vínskólinn við vatnið
Vínskólinn við vatnið ber nafn með rentu en þar fá gestir fræðslu um léttvín í dásamlegu umhverfi við bakka Meðalfellsvatns.
Björn Ingi Knútsson ræður þar ríkjum en draumur hans er að gera vínástríðuna að aðalstarfi.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’
Það var vínbúð
rétt hjá þar sem
ég bjó og einu sinni
í viku mættu þang-
að vínbændur til að
kynna afurð sína.
Ég vandi komur
mínar þangað til að
hlusta og smakka
og þar kviknaði
þessi áhugi fyrir
alvöru.
VÍN
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022