Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Síða 10
M eðalfellsvatnið var speg- ilslétt og algjör kyrrð ríkti í sveitinni hans Björns Inga Knútssonar þegar blaða- mann bar að garði einn fagran sumarmorgun í júní. Björn Ingi býr allt árið í kring í sumarbústað við vatnið og er út- sýnið út um stofugluggann eitt og sér nógu góð ástæða fyrir því. Björn Ingi hefur staðið í ströngu undanfarið við að byggja útiborðstofu við hlið hússins síns þar sem hann hyggst reka vínskóla innan skamms. Vínskólinn við vatnið hefur verið draumur hans lengi en vínáhuginn, sem lengi hefur verið fyrir hendi, hefur aðeins farið vaxandi með árunum. Björn Ingi hefur ferðast víða um heim og klárað ýmis við- urkennd vínnámskeið, nokkuð sem aðeins allra áhugasömustu vínáhugamenn myndu leggja á sig. Vínfræðsla er aðalatriðið Það er bæði hlýlegt og smart í Vínskólanum hans Björns Inga. Langt tréborð smellpassar inn í rýmið og þar geta gestir horft út á vatn á sólsetrið á meðan þeir dreypa á eðalvínum þessa heims. Á einum vegg er betrekkt með lokum af vínkössum úr tré sem gefur her- berginu skemmtilegan blæ. Björn Ingi hellir upp á dásamlegt kaffi og býður upp á fersk kirsuber og súkkulaði sem er ekki amalegt að gæða sér á með morgunkaffinu. Hann kemur sér vel fyrir og segir blaðamanni allt um ástríðuna fyrir vínum og hvernig hann brenn- ur fyrir að vekja áhuga annarra á þeim guða- veigum. „Ég er einn í þessari kennslu til að byrja með en konan mín Rakel mun stíga inn í ef við þurfum að vera tvö. Ég mun taka hér á móti hópum og hef tekið nokkra hópa nú þeg- ar í prufur. Ég hef ástríðu fyrir þessu og er sjálfur mjög fróðleiksþyrstur en efnið er viðamikið og endalaust hægt að læra,“ segir hann og segist hlakka til að taka á móti fyrstu gestunum en hann mun taka hámark tíu manns á námskeið. Björn Ingi segist ætla að bjóða upp á einhver námskeið fyrir ferða- menn, þótt hann hugsi þau fyrst og fremst fyrir landann. „Fyrir ferðamenn mun ég bjóða upp á ís- lenska smárétti beint frá býlum hér í kring og para saman við vín,“ segir hann en segist alla jafna ekki ætla að bjóða upp á mat þar sem þetta er ekki veitingahús heldur fræðsla og smökkun, og þar er vín og matpörun eitt viðfangsefnið. Til dæmis verður í vetur sér- stakt námskeið um hvernig eigi að para sam- an vín og hefðbundinn jólamat okkar Íslend- inga. „Fólk segir gjarnan að það sé að koma í vín- smökkun til mín en ég leiðrétti það alltaf því fólk er að koma hingað í vínfræðslu. Vín- smökkun er þegar söluaðili leyfir þér að smakka afurð sína til að selja þér hana og kynna. Ég er ekki að kynna neinar vörur og þessi námskeið eru ekki fyrir fólk sem er að leita að djammi eða gæsa- og steggjapartíum. Þetta eru hágæðanámskeið,“ segir hann en þess má geta að fyrstu námskeiðin verða nú í ágúst og hægt er að nálgast upplýsingar á vin- skolinnvidvatnid.is. Ævintýri í Kyrrahafinu Þessi mikli vínáhugi og ástríða kviknaði allra fyrst þegar Björn Ingi bjó í Ástralíu og Nýja- Sjálandi, en þar bjó hann frá ársbyrjun 1996 til ársloka 1998. Þar starfaði hann sem fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá frönsku skipa- félagi. „Ég var fyrst í Sydney og síðar í Auckland en athafnasvæði fyrirtækisins var Suður- Kyrrahaf. Ég fór oft í ferðir til Papúa Nýju- Gíneu, Fídjí, Nýju-Kaledóníu og margra fleiri eyja. Þetta var mikið ævintýri. Ég hafði verið farinn að smakka vín áður en ég bjó í þessum löndum en þarna vaknaði áhugi á að vita meira um vín og víngerð frá þessum stöðum. Það var vínbúð rétt hjá þar sem ég bjó og einu sinni í viku mættu þangað vín- bændur til að kynna afurð sína. Ég vandi komur mínar þangað til að hlusta og smakka og þar kviknaði þessi áhugi fyrir alvöru,“ segir Björn Ingi en hann flutti svo heim og tók við stöðu flugvallarstjóra á Keflavíkur- flugvelli. „Ég hafði þá ekki mikinn tíma til að sinna þessu áhugamáli því ég var í mjög annasömu Björn Ingi kann sann- arlega tökin á því að skenkja í vínglas. Morgunblaðið/Ásdís Boðið verður upp á fræðslu um létt- vín og smökkun. Vínskólinn við vatnið Vínskólinn við vatnið ber nafn með rentu en þar fá gestir fræðslu um léttvín í dásamlegu umhverfi við bakka Meðalfellsvatns. Björn Ingi Knútsson ræður þar ríkjum en draumur hans er að gera vínástríðuna að aðalstarfi. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Það var vínbúð rétt hjá þar sem ég bjó og einu sinni í viku mættu þang- að vínbændur til að kynna afurð sína. Ég vandi komur mínar þangað til að hlusta og smakka og þar kviknaði þessi áhugi fyrir alvöru. VÍN 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.