Morgunblaðið - 05.07.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Framkvæmdir við svokallaðan Heilsuhring við
Kópavogstún í Kópavogi eru á lokastigi. Stefnt er
að því stígurinn og tækin verði að mestu tilbúin
næstkomandi fimmtudag þegar þúsundir ungra
knattspyrnustúlkna mæta á Símamótið í Kópa-
vogi enda gistir hluti þátttakenda og foreldra ein-
mitt á Kópavogstúni.
Heilsuhringurinn hefur margfalda tengingu við
hringi, að sögn Friðriks Baldurssonar garðyrkju-
stjóra Kópavogsbæjar. Í fyrsta lagi verður liðlega
900 metra stígur með áfangastöðum þar sem upp-
haf og lok verða við Lýðheilsu- og geðrækt-
arhúsið á Kópavogstúni. Í öðru lagi er settur upp
hringur með ýmsum líkamsræktar- og leik-
tækjum fyrir börn og fullorðna. Í þriðja lagi vísar
heitið til kvenfélagsins Hringsins sem byggði og
rak Hressingarhælið sem nú hefur fengið nýtt
hlutverk sem lýðheilsu- og geðræktarhús.
Upplýstur stígur með merkingum
Heilsuhringurinn verður malbikaður og upp-
lýstur með merkingum á 100 metra fresti og án-
ingarstöðum á leiðinni. Hann liggur frá geðrækt-
arhúsinu, fram hjá gamla Kópavogsbænum, sem
er friðlýstur eins og Hælið, á stíginn sem liggur
meðfram Hafnarfjarðarveginum og síðan á nú-
verandi stíg sem liggur um túnið og meðfram
sjónum og á nýjan hliðarstíg upp að geðrækt-
arhúsinu. Til stendur að gera annan stíg, svip-
aðan að lengd, þar sem gengið verður eftir malar-
og kurlstígum og síðan gönguleið eftir fjörunni.
Stígurinn er mjög í anda heilsuhringsins sem
liggur í kringum Kópavogskirkjugarð og er mikið
notaður, að sögn garðyrkjustjórans. Ný garðlönd
fyrir almenning voru sett upp við geðræktar-
húsið.
Verið er að ganga frá tækjunum í líkamsrækt-
arhringnum, gróðursetja og fegra umhverfið.
Eftir eru einhverjar framkvæmdir við stíginn
sem unnið verður áfram að í haust og næsta sum-
ar. Meðal annars verður stígurinn sem liggur
meðfram Hafnarfjarðarveginum breikkaður eða
tvöfaldaður og það mun nýtast Heilsuhringnum.
Heilsuhringur að klárast
- Rúmlega 900 metra göngustígur með áningarstöðum gerður á Kópavogstúni
- Líkamsræktar- og leiktæki sett upp á hringlaga svæði við geðverndarhúsið
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tækjahringur Starfsmenn verktaka leggja þökur við svæðið. Í dag verða blóm og tré gróðursett og
gengið frá svæðinu. Búist er við fjölda gesta á Kópavogstúni vegna Símamótsins í knattspyrnu.
Marek Piotr Wegrzyn hlaut 12
mánaða fangelsi fyrir innflutning á
950 ml af amfetamínbasa með 35%
styrkleika, en maðurinn flutti efnið
hingað til lands í glerflösku með
flugi frá Varsjá í apríl. Um 2,1 kg af
amfetamíni með 14% styrkleika
hefði verið hægt að framleiða með
vökvanum.
Maðurinn játaði afdráttarlaust
sök í málinu og var dæmt í málinu
samkvæmt því og í samræmi við
rannsóknargögn.
Ekkert kom fram við meðferð
málsins um það hvort maðurinn
væri eigandi efnanna eða hvort
hann hefði tekið þátt í skipu-
lagningu innflutningsins.
Flutti inn 950 ml
af amfetamínbasa
Tilvísun féll niður
Í kafla úr bók Eiríks Rögnvalds-
sonar, Alls konar íslenska, sem birt-
ist í Morgunblaðinu í gær, vitnar Ei-
ríkur í bók eftir Ara Pál Kristinsson,
en tilvísun við þá tilvitnun féll niður.
Umræddur texti, sem hér fylgir,
er úr bókinni Málheimar, bls. 64,
sem Háskólaútgáfan gaf út 2017:
„Eitt málbrigði sem opinber skjöl
birtast á og sem útlendingum er
kennt í formlegu námi í viðkomandi
tungumáli; það er „hlutlaus samnefn-
ari“ í samfélaginu […]. Fyrst og
fremst er þetta markmið bundið
ritmáli.“
Nýr aðili að kaupa
Ranghermt var í frétt í blaðinu í gær
að sami aðili, og áður gerði tilboð í
gömlu varpskipin Ægi og Tý, hefði
nú gert annað kauptilboð. Um nýjan
aðila er að ræða sem Ríkiskaup eru í
viðræðum við. Beðist er velvirðingar
á rangherminu.
LEIÐRÉTT
Sumarútsalan er hafin
30-60% afsláttur af útsöluvörum
Garðatorg 6 | sími 551 5021 | aprilskor.is
Ten Points Pandora
27.990 kr. 19.593 kr.
Ten Points Pandora
24.990 kr. 17.493 kr.
Ten Points Pandora
27.990 kr. 19.593 kr.
Ten Points Maria
27.990 kr. 19.593 kr.
Ten Points Pandora
27.990 kr. 19.593 kr.
Ten Points Maya
18.990 kr. 13.293 kr.
Ten Points Pandora
26.990 kr. 18.893 kr.
Ten Points Malin
16.990 kr. 11.893 kr.
Vefverslun | aprilskor.is